Framkvæmdir við Sundlaugina

Nú stendur yfir endurnýjun á girðingunni í kringum sundlaugina á Þelamörk. Það er Girðingarþjónustan á Akureyri sem annast verkið. Þá er unnið að endurbótum á búningsklefum og árlegri málun á sundlaugarkerjunum sjálfum er lokið að þessu sinni.

Sundlaugin hefur verið lokuð í nokkra daga vegna framkvæmdanna, en hún verður opnuð aftur sunnudaginn 10. júní kl. 10.

Aðsóknin að sundlauginni hefur verið góð og vaxandi undanfarin ár og er búist við að sú þróun haldi áfram.