Forsetakosningar 2016

Kjörskrá vegna kjörs forseta Íslands mun liggja frammi á á skrifstofu Hörgársveitar í Þelamerkurskóla á almennum skrifstofutíma frá og með miðvikudeginum 15. júní 2016 til kjördags.

Athygli er vakin á því að kjósendur geta nú kannað á vefnum kosning.is hvar þeir eru á kjörskrá.

Þeim sem vilja koma að athugasemdum við kjörskrá er bent á að senda þær sveitarstjórn.

 

Kjörfundur laugardaginn 25. júní 2016 verður í Þelamerkurskóla og stendur yfir frá kl. 10.00 til 20.00.

 

 

Fyrir hönd kjörstjórnar

Sveitarstjórinn í Hörgársveit