Fjárhagsáætlun 2008 afgreidd

Fjárhagsáætlun Hörgárbyggðar fyrir árið 2008 liggur nú fyrir. Skv. henni eru heildarskatttekjur sveitarfélagsins ársins áætlaðar rúmlega 196 milljónir, sem yrði um 7% hækkun frá áætlaðri niðurstöðu ársins 2007. Af þessum tekjum er áætlað að alls tæplega 176 millj. kr. verði varið til rekstrarþátta sveitarfélagsins og tæplega 21 millj. kr. fari til framkvæmda. Hlutfall skatttekna til framkvæmda verður 10,6% skv. áætluninni. Það er mun hærra hlutfall en almennt gerist.

Helstu framkvæmdir sveitarfélagsins á árinu verða endurbætur á sundlauginni á Þelamörk, framhald á gatnagerð við Lækjarvelli,  endurbætur í Hlíðarbæ, endurbætur á rotþró Skógarhlíðarhverfis og frágangur í kringum Birkihlíð og nýbyggingu leikskólans.