Eignarhaldsfélag stofnað á Hjalteyri

Í gær var stofnað félag um rekstur húseignirnar á Hjalteyri. Félagið heitir Hjalteyri ehf og eru hluthafar 26 talsins. Fyrirhugað er að félagið kaupi húseignir verksmiðjanna á Hjalteyri og leigja þær út til margvíslegrar starfsemi.

Húseignirnar, sem eru um 7.000 fermetrar alls, eru af margvíslegu tagi og bjóða upp á ótal möguleika.

 

Nú þegar hafa nokkrir aðilar lagt drög að starfsemi á Hjalteyri og verður forvitnilegt að fylgjast með því hvernig þessar miklu byggingar vakna til lífs á ný.

Stjórn Hjalteyrar ehf. skipa þau Guðmundur Sigvaldason, Lene Zachariassen og Marinó Sveinsson, en varamenn eru Jón Þór Brynjarsson, Hákon Rúnarsson og Valgeir E. Ásbjörnsson.