Egill Már Íslandsmeistari

Egill Már Þórsson frá Skriðu varð á dögunum Íslandsmeistari barna í fjórgangi.  

Egill hefur keppt í hestaíþróttum frá fimm ára aldri enda snýst daglegt líf á Skriðu mikið um hesta og hestamennsku.

Í fjórgangi er keppt í feti,  tölti, brokk og stökk

Reiðskjótinn var 6 vetra meri, Saga frá Skriðu. Verður að teljast ánægjulegt að svo ungur knapi á svo ungum reiðskjóta hampi Íslandsmeistaratitli. Það verður spennandi að fylgjast með þeim í framtíðinni.