Deiliskipulag Hjalteyrar

Sveitarstjórn Hörgársveitar samþykkti þann 15. mars 2018 afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar frá 26.febrúar 2018 á innkomnum athugasemdum vegna deiliskipulags Hjalteyrar.Afgreiðsluna má finna í fundargerð nefndarinnar á heimasíðu sveitarfélagsins, horgarsveit.is. Óverulegar breytingar voru gerðar frá auglýstri deiliskipulagstillögu og má finna deiliskipulagið ásamt greinargerð og skýringaruppdrætti svo breytt á hér heimasíðunni, horgarsveit.is.
Hægt er að kæra samþykkt sveitarstjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.


Hörgársveit, 16. mars 2018
Skipulags- og byggingarfulltrúi Hörgársveitar