Búfjárfjöldi í Hörgárbyggð

Skv. forðagæsluskýrslu vorið 2008 er heildarfjöldi búfjár í Hörgárbyggð alls 11.574.

Stærsta kúabúið er á Bakka í Öxnadal. Þar eru 112 kýr, auk 139 annarra nautgripa. Næstflestar kýr eru á Dagverðareyri, 70 talsins. Þar eru 107 aðrir nautgripir. Alls eru kúabúin 20 að tölu.

Stærsta sauðfjárbúið er á Staðarbakka í Hörgárdal. Þar voru 498 ær í vetur og auk þess 135 af öðru sauðfé. Litlu færra var á nágrannabænum Þúfnavöllum. Þar voru 485 ær í vetur og sami fjöldi af öðru fé og á Staðarbakka.

Á sjö bæjum í sveitarfélaginu voru 40-50 hestar.