Breytingar á sorphirðu í Lónsbakkahverfi og Hagabyggð
26.10.2026
Breytingar eru fram undan á fyrirkomulagi sorphirðu í Lónsbakkahverfi og Hagabyggð. Íbúar munu fá þriðju sorptunnuna við heimili sín og verður úrgangi því safnað í þrjár tunnur í stað tveggja. Með breytingunni verður úrgangur flokkaður í fjóra flokka: pappa, plast, almennan úrgang og matarleifar. Matarleifum verður áfram safnað í sérílát inni í tunnunni fyrir almennan úrgang.
Breytingin er liður í innleiðingu hringrásarlaganna, sem gera auknar kröfur um sérsöfnun og flokkun úrgangs. Markmiðið er að uppfylla lagakröfur, auka endurvinnslu og draga úr urðun.
Afhending nýrrar tunnu
Afhending þriðju sorptunnunnar í Lónsbakkahverfi og Hagabyggð fer fram í vikunni 16.–20. nóvember 2026.
Íbúar þurfa ekki að panta tunnuna, heldur verður hún afhent sjálfkrafa við heimili þeirra.
Óskir um annað fyrirkomulag
Þeir íbúar sem óska eftir öðru fyrirkomulagi en því sem fyrirhugað er eru beðnir um að hafa samband við Hörgársveit eigi síðar en 15. nóvember 2026.
Í rað- og parhúsum er mögulegt að sameinast um sorptunnur svo þær rúmist í núverandi sorpskýlum.
Óskir og athugasemdir má senda á netfangið kolbrun@horgarsveit.is.
Nánari upplýsingar
Ef íbúar hafa spurningar um breytingarnar eða fyrirkomulag sorphirðu er þeim velkomið að hafa samband við Hörgársveit.
Sími: 460 1754
Netfang: kolbrun@horgarsveit.is
Netfang: kolbrun@horgarsveit.is
Við hvetjum íbúa til að kynna sér breytingarnar og taka þátt í að bæta flokkun úrgangs í sveitarfélaginu.