Breyting á gangnatíma

Tilkynning frá fjallskilanefnd Hörgársveitar:

 

Á fundi sínum 12. ágúst 2011 ákvað fjallskilanefnd, að höfðu samráði við fjallskilastjóra nágrannasveitarfélaga,  að fresta göngum í Glæsibæjar-, Öxnadals- og Skriðudeild niður að Syðri-Tunguá um viku frá fyrri ákvörðun nefndarinnar, sem tekin var á fundi þann 22. júní sl. 1. göngur verða því þar frá miðvikudeginum 14. september til sunnudagsins 18. september og seinni göngur viku síðar. 

Þessi ákvörðun er tekin í ljósi þess að heyskapur er mun seinni en verið hefur undanfarin ár og einnig verða yfirborganir sláturleyfishafa þær sömu í vikum 37 og 38, en gert var ráð fyrir verulegum mun milli þessara vikna í fyrri ákvörðun nefndarinnar.

Í Arnarnesdeild og Skriðudeild fram að Syðri-Tunguá gildir ákvörðun nefndarinnar frá 22. júní sl. að því undanskildu að seinni göngur á Tungudölum fylgja fremri svæðunum, þar verður því hálfur mánuður milli gangna.