Baldur Logi hreppti bronsið

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Valsárskóla í gær. Þar lásu upp fulltrúar frá fjórum skólum, Valsárskóla, Hrafnagilsskóla, Grenivíkurskóla og Þelamerkurskóla. Hver skóli gat sent tvo fulltrúa á lokahátíðina.
Fulltrúar Grenivíkurskóla hlutu 1. og 2. sætið en Baldur Logi Jónsson frá Staðartungu þriðja sætið. Nemendur og starfsfólk Þelamerkurskóla óska honum til hamingju með árangurinn og þakka bæði honum og Agnari Páli fyrir framlag þeirra fyrir hönd skólans.
Smellið á myndina til að sjá betri mynd af þeim.
(Frétt af vef Þelamerkurskóla)