Auglýsing tillögu vegna deiliskipulagsbreytingar

Sveitarstjórn Hörgársveitar samþykkti á fundi sínum 15. apríl sl. að vísa skipulagstillögu, vegna breytingar á deiliskipulagi Lónsbakka fyrir lóðirnar Lónsveg 1 og 3, í auglýsingu skv. 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Deiliskipulagsbreytingin tekur til lóðanna Lónsvegar 1 og Lónsvegar 3 í Lónsbakkahverfi, Hörgársveit. Breytingin fyrir Lónsveg 1, sem er verslunar og þjónustulóð, felur m.a. í sér stækkun lóðar, stækkun byggingarreits, aukningu hámarks byggingarmagns og að heimilt yrði að byggja 3-4 hæða byggingu á lóðinni. Lóðin Lónsvegur 3, sem er íbúðarlóð, stækkar einnig lítillega og þar yrðu m.a. skilgreindir 2 byggingarreitir í stað eins, byggingarnar yrðu á tveimur hæðum í stað þriggja og heildarfjöldi íbúða fækkar.

Skipulagstillagan er aðgengileg á skrifstofu Hörgársveitar, Þelamerkurskóla, á heimasíðu sveitarfélagsins, www.horgarsveit.is og á skipulagsgáttinni www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 512/2026. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn frestur til 22. júli nk. til að gera athugasemdir við tillöguna og skulu þær berast í gegnum skipulagsgátt. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9 eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.

Skipulags- og byggingarfulltrúi

 

Deiliskipulagstillaga