Atvinna - Heimaþjónusta
28.10.2026
Atvinna - Heimaþjónusta í Hörgársveit
Lýsing á starfinu:
Um er að ræða einn til tvo starfsmenn þrisvar til fimm sinnum í viku á tímanum 10:30 – 14:30.
Heimaþjónustan veitir aðstoð við aðlhlynningu einstaklings og er félagslegur stuðningur.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi bíl til umráða og greitt er sérstaklega fyrir akstur.
Hæfniskröfur:
- Næmur skilningur og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Samviskusemi, frumkvæði, áreiðanleiki og hæfileiki til að bregðast við og taka á óvæntum atvikum.
- Umsækjandi þarf jafnframt að vera stundvís og heiðarlegur.
Launakjör: Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 4. nóvember 2026
Umsóknir sendist á horgarsveit@horgarsveit.is
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Hörgársveitar í síma 460-1750 eða á póstfangið horgarsveit@horgarsveit.is