Atvinna - Heilsuleikskólinn Álfasteinn

Við óskum eftir starfsfólki í sumarafleysingar í Heilsuleikskólann Álfastein í Hörgársveit frá maí til og með ágúst 2026. Leikskólinn lokar frá 6. júlí til 4. ágúst. Umsækjendur þurfa að vera að lágmarki 18 ára á árinu. Leikskólinn er 4ja deilda skóli fyrir börn á aldrinum 1 til 6 ára. Við leitum eftir fólki sem hefur gleði og ánægju af að starfa með börnum. Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Hæfniskröfur

· Kostur ef viðkomandi hefur reynslu af starfi í leikskóla eða með börnum
· Jákvæðni, félagslyndi og góð færni í samskiptum
· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
· Mjög góð færni í íslensku
· Hreint sakavottorð

Starfið hentar öllum kynjum. Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um óháð kyni og uppruna. Umsóknarfrestur er til og með 10. mars nk. og skal umsóknum skilað á alfasteinn@horgarsveit.is
Upplýsingar gefur Hugrún Hermannsdóttir skólastjóri í síma 460-1760 eða á netfangið alfasteinn@horgarsveit.is