Ársreikningur 2010 lagður fram

Ársreikningur Hörgársveitar fyrir árið 2010 var lagður fram á síðasta fundi sveitarstjórnar. Ársreikningurinn er sá fyrsti sem lagður er fram eftir sameiningu Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar, sem tók gildi 12. júní 2010. Hann er í raun ársreikningur þessara tveggja sveitarfélaga fram að sameiningunni, ásamt því að vera uppgjör fyrir hið sameinaða sveitarfélaga fram að áramótum.

Skv. ársreikningnum varð afgangur af rekstur sveitarfélagsins á árinu 2010 alls 5,9 millj. kr., sem nemur 1,9% af skatttekjum. Þær urðu alls 311,8 millj. kr. Á árinu 2009 varð samanlagður 17,8 millj. kr. halli af rekstri Arnarneshrepps og Hörgárbyggðar. Veltufé frá rekstri á árinu 2010 var 32,6 millj. kr., en var 35,0 millj. kr. á árinu 2009. Efnahagur sveitarfélagsins er traustur, eiginfjárhlutfallið í árslok var 0,66.

Áhrif þeirrar rekstrarhagræðingar sem fólst í sameiningu sveitarfélaganna kom ekki nema að hluta til fram á árinu, en gera má ráð fyrir að hún muni að mestu vera komin frá í rekstrarniðurstöðu ársins 2011.

Ársreikningurinn verður til síðari umræðu og lokaafgreiðslu á fundi sveitarstjórnar 18. maí nk.