Alþingiskosningar 2016

Kjörskrá vegna alþingiskosninga mun liggja frammi á skrifstofu Hörgársveitar í Þelamerkurskóla á almennum skrifstofutíma frá og með miðvikudeginum 19. október 2016 til kjördags.

Athygli er vakin á því að kjósendur geta nú kannað á vefnum kosning.is hvar þeir eru á kjörskrá.

Þeim sem vilja koma að athugasemdum við kjörskrá er bent á að senda þær sveitarstjórn.

 

Kjörfundur laugardaginn 29. október 2016 verður í Þelamerkurskóla og stendur yfir frá kl. 10.00 til 20.00.

 

 

Fyrir hönd kjörstjórnar

Sveitarstjórinn í Hörgársveit