Almenningsbókasöfn - endurgreiðsla

Hörgársveit endurgreiði heimilum kostnað vegna eins árgjalds að bókasafni.

Sveitarfélagið vill auðvelda íbúum aðgegni að notkun almenningsbókasafna og jafnframt stuðla að auknum lestri íbúa á öllum aldri.

Reglur:

  1. Hvert heimili í Hörgársveit þar sem búa einn eða fleiri íbúar með lögheimili,  getur einu sinni á ári fengið endurgreiddan kostnað vegna eins árgjalds að bókasafni.
  2. Sækja skal um á rafrænu eyðublaði sem aðgengilegt er á heimasíðu sveitarfélagsins, eða senda eyðublaðið ásamt afriti af kvittun á tölvupóstfangið horgarsveit@horgarsveit.is, eða senda það ásamt afriti af kvittun á skrifstofu Hörgársveitar, Þelamerkurskóla 604 Akureyri.
  3. Gjaldið verður endurgreitt innan tveggja vikna eftir að fullgild gögn liggja fyrir.