Álfasteinn fær Heilsufánann

Leikskólinn Álfasteinn fékk í dag afhentan Heilsufána Heilsustefnunnar.  Heilsustefnan er kennd við Unni Stefánsdóttur.  Yfirmarkmið hennar eru að auka gleði og vellíðan barnanna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik.   

Athöfnin fór fram á vorhátíð leikskólans í blíðskaparveðri. Leikskólinn fékk góðar gjafir, m.a. frá Þelamerkurskóla. Boðið var upp á grillaðar pylsur og seld voru listaverk sem leikskólabörnin höfðu unnið.

 

 

 

Kór leikskólabarna söng af hjartans lyst. Hægt er að smella á myndina til að sjá hana betur.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hugrún Ósk leikskólastjóri dregur fánann að hún.

 

 

 

Fáninn blaktir fagurlega yfir Álfasteini.