Álfasteinn fær Grænfánann

Á fimmtudaginn, 11. júní, kl. 12:00 mun leikskólinn Álfasteinn fá Grænfánann afhentan við athöfn, sem verður á árlegri sumargrillhátíð skólans. Allir íbúar sveitarfélagsins og aðrir gestir eru velkomnir. 

Nemendur og starfsmenn Álfasteins hafa undirbúið sig vel í nærri tvö ár undir að taka við Grænfánanum. Sjá hér dæmi um starfið sem unnið hefur verið. Skólinn mun flagga Grænfánanum næstu tvö ár en sú viðurkenning fæst endurnýjuð ef hann nær að halda áfram góðu starfi.

Grænfánaverkefnið, öðru nafni "Skólar á grænni grein" er alþjóðlegt verkefni til að auka umhverfismennt og styrkja umhverfisstefnu í skólum. Þeir skólar sem vilja komast á græna grein í umhverfismálum leitast við að stíga skrefin sjö. Þegar því marki er náð fá skólarnir leyfi til að flagga Grænfánanum næstu tvö ár en sú viðurkenning fæst endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi. Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Skrefin sjö eru ákveðin verkefni sem efla vitund nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans um umhverfismál. Verkefnin eru bæði til kennslu í bekk og til að bæta daglegan rekstur skóla. Þau auka þekkingu nemenda og skólafólks og styrkja grunn að því að tekin sé ábyrg afstaða og innleiddar raunhæfar aðgerðir í umhverfismálum skóla. Jafnframt sýnir reynslan í Evrópu að skólar sem taka þátt í verkefninu geta sparað talsvert í rekstri. Nánar hér.