Álagning fasteignagjalda 2026
03.02.2026
Álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði lækkar
Álagningu fasteignagjalda 2026 í Hörgársveit er lokið og álagningarseðlar verða aðgengilegir undir „mínar síður“ á upplýsingasíðunni www.island.is.
Á fundi sínum í nóvember s.l. ákvað sveitarstjórn m.a. að lækka álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði úr 0,40% í 0,36% vegna ársins 2026.
Jafnframt ákvað sveitarstjórn að fyrsti gjalddagi fasteignagjalda verði 5. febrúar og eindagi verði þrjátíu dögum eftir gjalddaga. Gjalddagar á ári verði tíu í stað átta áður.