Aðalskipulagið hefur tekið gildi

Í byrjun vikunnar var aðalskipulag Hörgárbyggðar 2006-2026 staðfest af umhverfisráðherra og hefur þar með öðlast gildi. Það er fyrsta aðalskipulag fyrir það svæði sem sveitarfélagið nær yfir. Skipulagsvinnan sjálf stóð yfir í tæplega fjögur ár og virkan þátt í henni tóku allir fulltrúar í sveitarstjórn og skipulagsnefnd á tveimur kjörtímabilum, tveir sveitarstjórar og allir aðrir sem komu á þrjá vel sótta kynningar- og umræðufundi um skipulagstillöguna á meðan hún var í mótun. Mestu þungi vinnunnar hvíldi þó á skipulagsráðgjafanum, Yngva Þór Loftssyni, og aðstoðarfólki hans á landslagsarkitektastofunnni Landmótun sf. í Kópavogi.

Staðfesting aðalskipulagsins eru merk tímamót í sögu sveitarfélagsins. Skipulagið mun auðvelda framþróun byggðar og atvinnulífs í sveitarfélaginu á næstu árum. Jafnframt þarf það að vera í sífelldri endurskoðun til að hægt sé bregðast við því að forsendur þess eru háðar stöðugum breytingum.