Sveitarstjórn fundur nr. 206
206. fundur sveitarstjórnar Hörgársveitar – aukafundur - haldinn á skrifstofu Hörgársveitar, mánudaginn 24. ágúst 2026 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Sunna María Jónasdóttir, Árni Rúnar Örvarsson, Róbert F. Jósavinsson, Katrín Olsen Björnsdóttir, Ásta Hafberg og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.
Fundargerð ritaði: Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri.
Dagskrá:
1. Beiðni um smölun úr landi Hóla - H260801
Áskorun um smölun ágangsfjár í landi Hóla í Öxnadal og er sveitarstjórn boðuð til aukafundar vegna málsins.
Ólafur Rúnar Ólafsson lögmaður sveitarfélagsins mætti á fundinn og fór yfir málið með sveitarstjórn.
Erindi: Áskorun um smölun ágangsfjár úr heimalandi Hóla í Öxnadal
1. Inngangur og formáli Fyrir er tekið erindi Ólafs Valssonar, landeiganda jarðarinnar Hóla í Öxnadal, dags. 17. og 18. ágúst 2026. Í erindinu er áskorun um að sveitarfélagið hlutist til um og fyrirskipi smölun ágangsfjár úr heimalandi jarðarinnar á grundvelli 31. gr. laga nr. 6/1986, um afréttarmálefni, fjallskil o.fl.
2. Málsatvik og rannsókn málsins. Mál þetta er samskonar fyrra erindi landeiganda Hóla frá 26. júlí sl. Því máli lauk með bréfi sveitarfélagsins dags. 7. ágúst sl. þar sem rakið var að við vettvangskönnun hefði ekkert fé fundist á staðnum. Fram kom við þá athugun að fjallsgirðingu skorti að hluta og væri að öðru leyti ógripheld.
Nýjar tilkynningar um ágang bárust dagana 17. ágúst um eina kind með tvö lömb, og 18. ágúst 2026 ásamt ljósmyndum þar sem bent var á að u.þ.b. tíu kindur væru í heimalandi jarðarinnar. Við úrvinnslu erindisins var gætt að rannsóknar- og andmælareglu stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og málsaðilum veittur kostur á að tjá sig. Sjónarmið voru sótt til landeiganda annars vegar og ætlaðs umráðamanns fjárins eða næsta nágranna, Arnars Tryggvasonar, bónda á Þverá, hins vegar.
Fyrir liggur í gögnum málsins að Arnar hefur vikið sæti sem formaður fjallskila-nefndar við umfjöllun sökum vanhæfis.
Sveitarfélagið stóð fyrir nýrri vettvangskönnun að Hólum þann 21. ágúst sl. Mættir voru þrír fulltrúar Hörgársveitar ásamt umráðamanni fjár frá Þverá, með samþykki landeiganda Hóla sem óskaði m.a. eftir að kannaðar yrðu slóðir við Þverárgil. Landeigandi Hóla var boðaður en hafði ekki tök á að mæta. Við könnunina fundust alls 11 kindur; fjórar fullorðnar og sjö lömb. Hluti fjárins bar gult merki sem bendir til uppruna úr Skagafirði. Engar skemmdir voru sjáanlegar, hvorki á birki né öðrum gróðri. Ekki sást annað fé í heimalandi Hóla.
3. Sjónarmið aðila. Af hálfu landeiganda Hóla er því haldið fram að ágangur fjár hafi færst í vöxt vegna stóraukins upprekstrar fjár ótengdra aðila á nágrannajörðum, sem sveitarfélagið hafi heimilað. Hann fer fram á að féð verði sótt og amast við því að ógirt heimaland hans sé nýtt sem sumarbeit fyrir fé annarra. Landeigandi telur skort á fjárheldum girðingum og vörslu skógræktarlands ekki leysa fjáreigendur eða sveitarfélagið undan ábyrgð á því að varna ágangi og sækja umrætt fé. Af hálfu bóndans á Þverá er bent á að mörk afréttar og heimalands í Hólum séu ógirt og eftirstandandi girðingar ónýtar og jafnvel skaðlegar búfé. Eðlilegt sé að fé leiti niður af afrétti þegar líða tekur á sumar og kólnar í veðri, óháð því hvaðan það komi upphaflega. Jafnframt vísar hann til þess að samkvæmt 13. gr. laga nr. 6/1986 sé óheimilt að smala afrétt eða gera afréttarbúpeningi ónæði fyrir fyrstu göngur án skýrs leyfis sveitarstjórnar, sem ekki liggi fyrir. Hann mótmælir því að hann beri sérstaka skyldu til að sækja fé inn á Hóladal undir þessum kringumstæðum.
4. Álitaefni til úrlausnar Sveitarstjórn stendur frammi fyrir því að taka stjórnvaldsákvörðun um það hvort atvik málsins, þ.m.t. fjöldi fjár (um 11 kindur), beitarþol á afréttarlöndum/sumarbeitarhögum og ástand fjallsgirðinga á svæðinu og atriði er lúta að sumarhagabeit, feli í sér „verulegan eða óeðlilegan ágang“ í skilningi 31. gr. laga nr. 6/1986. Miðað við fyrirliggjandi upplýsingar um beitarþol, sbr. fyrirliggjandi bréf frá Landi og skógi í máli nr. H2606007, sem var 10. mál á dagskrá 204. fundar sveitarstjórnar 16. júní 2026, verður ekki séð að fé leiti með óeðlilegum þunga í heimaland Hóla vegna skorts á beit. Ekki er um að ræða að fé gangi úr einu heimalandi í annað. Lausaganga sauðfjár á sumarbeitarhögum og afréttarlöndum er heimil í sveitarfélaginu og ekki vörsluskylda á því fé.
Afgreiðsla:
Að virtum gögnum og upplýsingum málsins er það mat sveitarstjórnar ekki virðist vera um verulegan eða óeðlilegan ágang búfjár úr afrétti heimahaga. Er það niðurstaða sveitarstjórnar að hafna beiðni landeiganda Hóla í Öxnadal, dags. 17. og 18. ágúst 2026, um að fyrirskipuð verði sérstök smölun ágangsfjár úr heimalandi jarðarinnar á kostnað fjallskilasjóðs eða fjáreigenda.
Samþykkt samhljóða.
Rökstuðningur:
Ákvörðunin byggist á mati sveitarstjórnar á 31. gr. laga nr. 6/1986 um afréttamálefni, fjallskil o.fl.og helstu sjónarmiðum og gögnum sem hér getur. Sveitarfélagið hefur rannsakað málið, m.a. með vettvangsferð þann 21. ágúst sl. þar sem 11 kindur fundust á svæðinu en engin teljanleg merki um tjón á gróðri eða skógrækt. Þar sem engar virkar fjallsgirðingar skilja að heimaland jarðarinnar og afrétt er viðbúið að sauðfé leiti að einhverju marki niður í heimalönd þegar líður á sumar. Að mati sveitarstjórnar er sjálfsögð krafa að landeigendur bújarða hverra lönd liggja að sumarbeitarhögum frá fornu fari, viðhaldi girðingum sem skilji að heimalönd frá afréttarlöndum þar sem lausaganga búfjár er heimil, í samræmi við það sem tíðkast hefur í sveitinni frá fornu fari. Er þar horft til atvinnustefnu meðal annars í aðalskipulagi fyrir Hörgársveit, sbr. Umhverfisstefnu Hörgársveitar 2021-2031, einkum 5.kafli og nýtingu fjalllendis ofan heimalanda frá fornu fari í Öxnadal og öðrum svæðum sveitarfélagsins fyrir sumarhagabeit. Heimildir eru um sumarbeit í fjalllendi og tilheyrandi fjallskil að hausti á Hóladal og öðrum löndum í fjallskiladeildinni frá fornu fari. Eignarlönd Hóla sem þannig háttar til hafa ekki verið gerð að heimalandi með samþykki sveitarstjórnar, sbr. 5. gr. afréttarlaga nr. 6/1986.
Miðað við fyrirliggjandi upplýsingar um beitarþol, sbr. fyrirliggjandi bréf frá Landi og skógi í máli nr. H2606007, sem var 10. mál á dagskrá 204. fundar sveitarstjórnar 16.júní 2026, verður ekki séð að fé leiti með óeðlilegum þunga í heimaland Hóla vegna skorts á beit. Þá benda upplýsingar til að fé sem farið hefur um land Hóla sé meðal annars úr afréttarlöndum í Skagafirði og því staðfest að ekki er aðeins um að ræða fé sem rekið hefur verið upp frá Steinsstöðum og Þverá. Ekki virðist því vera um að ræða að fé sé beitt á eignarlönd Hóla jarðarinnar, heldur sé um að ræða fé sem gangi milli afréttarlanda líkt og verið hefur frá fornu. Fé sem leitar niður í heimahaga Hóla virðist slæðast þar niður úr afréttarlandi jarðarinnar vegna þess að þar eru ekki fjárheldar girðingar. Sveitarstjórn metur það svo, með hliðsjón af fjölda fjárins í landi Hóla, öðrum aðstæðum og atvikum sem hér er getið, að umræddur ágangur nái ekki þeim lögboðna þröskuldi að teljast verulegur eða óeðlilegur í skilningi laganna.
Ekki er því fyrir hendi lagaskilyrði til að fyrirskipa sértæka smölun að svo stöddu. Sveitarstjórn bendir jafnframt á að stutt er í almennar haustgöngur á svæðinu (11. september) og verður umrætt fé fært til skilaréttar við þá framkvæmd, en fram að þeim tíma gilda ákvæði 13. gr. laga nr. 6/1986 um friðun afréttarfjár utan heimalanda.
Landeiganda skal tilkynnt um þessa niðurstöðu og honum leiðbeint um kæruheimildir.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:15