Sveitarstjórn fundur nr. 195
Miðvikudaginn 14. janúar 2026 kl. 16:00 kom sveitarstjórn Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.
Fundarmenn: Axel Grettisson oddviti, Jón Þór Benediktsson, Ásrún Árnadóttir, Sunna María Jónasdóttir og Jónas Þór Jónasson.
Fundarritari: Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri
Þetta gerðist:
1. Fundargerðir afgreiðslufunda SBE frá 103. og 104. fundi
Fundargerðirnar lagðar fram.
2. Fundargerð Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra frá 245. fundi
Fundargerðin lögð fram.
3. Fundargerðir stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga frá 990. og 991. fundi
Fundargerðirnar lagðar fram.
4. Vegagerðin, tilkynningar um niðurfellingu vega af vegaskrá
Lögð fram afrit af þremur bréfum frá Vegagerðinni þar sem tilkynnt er um niðurfellingar á vegum af vegaskrá. Ákveðið að leita eftir röksemdum fyrir niðurfellingu þessar vega af vegaskrá.
Sveitarstjórn Hörgársveitar gerir athugasemdir við verkferil Vegagerðarinnar um að vegir þurfi að uppfylla önnur skilyrði þegar þeir eru teknir aftur inn á vegaskrá heldur en þegar þeir voru afskráðir. Um þetta er í það minnsta eitt nýlegt dæmi í Hörgársveit. Eðlilegt megi telja að úttekt fari fram á ástandi vegar við afskráningu og að ekki sé þá gerð ríkari krafa til vegarins þegar hann er tekinn inn aftur. Þá vekur furðu hversu fljótt Vegagerðin grípur til niðurfellinga vega við breytingar á lögheimilisskráningum við viðkomandi vegi.
5. Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra, umsóknir um tækifærisleyfi, umsagnir
a) Lagt fram erindi þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar um tækifærisleyfi til skemmtanahalds vegna þorrablóts á Melum í Hörgársveit þann 24.1.2026.
Sveitarstjórn samþykkti að gera ekki athugasemd fyrir sitt leyti við að leyfið verði veitt.
b) Lagt fram erindi þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar um tækifærisleyfi til skemmtanahalds vegna þorrablóts í Íþróttamiðstöðinni Þelamörk, Hörgársveit þann 7.2.2026.
Sveitarstjórn samþykkti að gera ekki athugasemd fyrir sitt leyti við að leyfið verði veitt.
6. Hjalteyri, erindi vegna ferðaþjónustu
Lagt fram erindi þar sem kynntar eru hugmyndir um viðbót við ferðaþjónustu á Hjalteyri með staðsetningu á skipi að hluta til uppá landi.
Sveitarstjórn sér ekki fyrir sér að þessi áhugaverða hugmynd sé raunhæf á Hjalteyri út frá þeim gögnum sem liggja fyrir.
7. Húsnæðisáætlun, uppfærsla
Umræður vegna vinnslu við uppfærslu húsnæðisáætlunar Hörgársveitar 2026.
8. Gjalddagar fasteignagjalda
Umræður og ákvörðun um fjölda gjalddaga og dagsetningu á fyrsta gjalddaga ársins.
Sveitarstjórn samþykkti að fyrsti gjalddagi fasteignagjalda verði 5. febrúar og eindagi 30 dögum síðar. Gjalddagar á ári verði 10.
9. Lánasjóður sveitarfélaga, lántaka
Lagt fram minnisblað vegna lántöku samkvæmt fjárhagsáætlun 2026.
Ákvörðun um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga með veði í tekjum sveitarfélagsins:
Sveitarstjórn Hörgársveitar samþykkir hér með á fundi sínum að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 85.000.000,- samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru á þeim tíma sem lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Sveitarstjórnin hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins.
Til tryggingar láninu – þ.m.t. höfuðstól, vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði – samþykkir sveitarstjórnin að tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, verði veðsettar.
Lánið er tekið til endurbyggingar á húsnæði grunnskóla sveitarfélagsins. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.
Jafnframt er Snorra Finnlaugssyni sveitarstjóra Hörgársveitar kt. 210260-3829, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undiririta lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Hörgársveitar, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.
10. Fundardagar janúar – maí 2026
Lögð fram áætlun um fundardaga sveitarstjórnar janúar – maí 2026.
11. Trúnaðarmál
Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 18:00