Sveitarstjórn fundur nr. 207
207. fundur sveitarstjórnar Hörgársveitar haldinn á skrifstofu Hörgársveitar, þriðjudaginn 1. september 2026 og hófst hann kl. 16:00.
Fundinn sátu:
Sunna María Jónasdóttir, Árni Rúnar Örvarsson, Róbert F. Jósavinsson, Bjarki Freyr Brynjólfsson, Katrín Olsen Björnsdóttir og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.
Fundargerð ritaði: Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri.
Dagskrá:
|
1. |
Fundargerðir fjallskilanefnd - 2026 - H2602053 |
|||||||||||||||||||
|
Fundargerð fjallskilanefndar frá 17.8.2026 lögð fram. Sveitarstjórn tekur undir með fjallskilanefnd nauðsyn þess að koma niður rimlahliði og fjárgirðingu á Öxnadalsheiði hið fyrsta í samvinnu við Sveitarfélagið Skagafjörð og Vegagerðina. |
||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||
|
2. |
Fundargerðir kjörstjórn - 2026 - H2602055 |
|||||||||||||||||||
|
Fundargerðir frá 13.8 og 26.8.2026 lagðar fram |
||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||
|
3. |
Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar - Afgreiðslufundir - 2026 - H2602039 |
|||||||||||||||||||
|
Fundargerðir afgreiðslufunda nr. 118, 119 og 120 lagðar fram. |
||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||
|
4. |
Fundargerðir Norðurorka - stjórn - 2026 - H2602024 |
|||||||||||||||||||
|
Fundargerð frá 325. fundi lögð fram.
Sveitarstjórn Hörgársveitar lýsir undrun sinni á því að fyrirhuguð sé lántaka hjá Norðurorku með ábyrgð Hörgársveitar og annarra eiganda án þess að fulltrúar sveitarfélaganna annarra en Akureyrar komi nokkuð að ákvörðun um lántöku. |
||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||
|
5. |
SSNE - fundargerðir 2026 - H2602034 |
|||||||||||||||||||
|
Fundargerð frá 85. fundi lögð fram. |
||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||
|
6. |
Hafnarsamlag Norðurlands - fundargerðir 2026 - H2608023 |
|||||||||||||||||||
|
Fundargerð frá 308. fundi lögð fram. |
||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||
|
7. |
Kosning í nefndir og ráð - 2026-2030 - H2606014 |
|||||||||||||||||||
|
Kosið í nefndir og ráð samkvæmt nýjum samþykktum. |
||||||||||||||||||||
|
Svohljóðandi tillaga D-lista lögð fram:
Bókun fulltrúa D-lista: D-listi gerir athugasemdir við nefndina og telur að samgöngumálum væri betur komið fyrir í rekstrar- og framkvæmdanefnd sveitarstjórnar frekar en í sérstakri samgöngunefnd sem hittist, skv. erindisbréfi, að lágmarki þrisvar á ári og kostar sveitarfélagið aukið fjármagn í nefndarsetu. Einnig gerir D-listi athugasemdir við að meirihlutinn hafi engar tillögur um mælanlegan árangur nefndarinnar.
Bókun fulltrúa G og H lista: Samgöngu-, umhverfis- og náttúruverndarnefnd er hluti af samþykkt um stjórn Hörgársveitar, sem hlaut tvær umræður í sveitarstjórn og staðfestingu ráðuneytis. Henni verður því ekki breytt með bókun heldur kallar slíkt á sömu málsmeðferð og stofnun hennar. Meirihlutinn hafnar því að ekki séu málefnalegar forsendur fyrir nefndinni. Nefndin sinnir lögbundnu hlutverki á sviði náttúruverndar samkvæmt 14. gr. laga nr. 60/2013, sem segir að á vegum hvers sveitarfélags starfi kjörin náttúruverndarnefnd. Sveitarfélaginu er því skylt að tryggja að þessu hlutverki sé sinnt af kjörinni nefnd, en ekki falið einstökum starfsmönnum með afmörkuðum erindum. Auk þess sinnir nefndin samgöngu-, umhverfis- og innviðamálum. Samskipti við Vegagerðina eru einn þáttur af mörgum en ekki forsenda nefndarinnar í heild. Þá hefur verið kallað eftir stórbættu viðhaldi í sveitarfélaginu í samgöngum og innviðamálum, meðal annars varðandi vegi og heimreiðar. Það undirstrikar þörfina fyrir vettvangi eins og þessari nefnd. Hvað fjárhagslegar forsendur varðar bendir meirihlutinn á að áætlaður sparnaður í tillögunni, um 1,2 m.kr., er ekki í samræmi við fyrirliggjandi forsendur. Óskað er eftir sundurliðun á þeirri fjárhæð sem tillagan tilgreinir, þar á meðal á hvaða „tengda kostnaði" hún byggist. Þá telur meirihlutinn að sparnaði verði ekki náð með því að leggja niður nefnd sem sveitarfélaginu er skylt að lögum að starfrækja. Sveitarstjórn kaus eftirtalda í nefndir og ráð á vegum sveitarfélagsins:
|
||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||
|
8. |
Erindisbréf nefnda 2026-2030 - H2606017 |
|||||||||||||||||||
|
Tillögur að erindisbréfum eftirtaldra nefnda lagðar fram: Sveitarstjórn samþykkti erindisbréfin með lagfæringum. |
||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||
|
9. |
Kjör sveitarstjórnarfulltrúa og nefndarmanna. - H2608024 |
|||||||||||||||||||
|
Umræður um kjör sveitarstjórnarfulltrúa og nefndarmanna. Könnun sem gerð var á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga um kjör sveitarstjórnarmanna lögð fram. Bókun: Launaviðmiðum var síðast breytt á þar síðasta kjörtímabili. Breyting á mánaðarlaunum sveitarstjórnarfulltrúa er í samræmi við það sem fram kemur í launakönnun Sambands íslenskra sveitarfélaga og er þar við miðbik sambærilegra sveitarfélaga. Breyting þessi er í takt við íbúafjölgun í sveitarfélaginu og umfang starfsins. |
||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||
|
10. |
Fjölmenningarráð SSNE - ósk um tilnefningu fulltrúa - H2608025 |
|||||||||||||||||||
|
Erindi frá SSNE er varðar ósk um skipan í fjölmenningarráð lagt fram. |
||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||
|
11. |
Lónsvegur 3 - erindi KEA - H2608026 |
|||||||||||||||||||
|
Lagt fram erindi frá KEA þar sem lýst er yfir vilja fyrir hönd Skálabrúnar ehf. til þess þess að kaupa lóðina Lónsveg 3. |
||||||||||||||||||||
|
Sveitarstjórn samþykkti að auglýsa lóðina til úthlutunar þegar deiliskipulag hefur fengið staðfestingu. Sveitarstjórn þakkar sýndan áhuga og hvetur Skálabrún ehf til að sækja um lóðina þegar hún verður auglýst. |
||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||
|
12. |
Vegamál í sveitarfélaginu - H2608027 |
|||||||||||||||||||
|
Umræður um vegamál í sveitarfélaginu í kjölfar fundar með Vegagerðinni. |
||||||||||||||||||||
|
Farið var yfir þau fjölmörgu mál sem til umræðu voru á þeim fundi og ákveðið að senda erindi til Vegagerðarinnar í framhaldinu. Svohljóðandi tillaga fulltrúa D-lista um undirgöng lögð fram: |
||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||
|
13. |
Stígagerð - H2608028 |
|||||||||||||||||||
|
Staða varðandi göngu-, hjóla- og reiðstíga. Skjöl sem málið varðar lögð fram. |
||||||||||||||||||||
|
Rætt um stöðu mála varðandi stígagerð m.a. í framhaldi af fundum með fulltrúum Vegagerðar. Ákveðið var að klára stígagerðina með malbikun frá gatnamótum við Álfastein að landamerkjum við Dvergastein í haust. |
||||||||||||||||||||
|
|
|
|
||||||||||||||||||
|
14. |
Mannauðsmál - H2608033 |
|||||||||||||||||||
|
Umræður um skipulag og stjórn mannauðsmála. |
||||||||||||||||||||
|
Sveitarstjórn samþykkti að fela sveitarstjóra að ræða við fulltrúa annarra sveitarfélaga sem aðild eiga að SBE um möguleika á sameiginlegum starfsmanni mannauðsmála. |
||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||
|
15. |
Númerslaus ökutæki og vélar - H2608029 |
|||||||||||||||||||
|
Svohljóðandi tillaga fulltrúa D-lista lögð fram: Afgreiðslu tillögunnar frestað þar til nýjar reglur um númerslaus ökutæki taka gildi. Sveitarstjórn hvetur íbúa til að huga að sínu nærumhverfi með góðri umgengni. |
||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||
|
16. |
Framkvæmdaleyfi og umgengi við Moldhaugnaháls - H2608030 |
|||||||||||||||||||
|
Svohljóðandi tillaga fulltrúa D-lista lögð fram: Sveitarstjórn samþykkti að óska eftir fundi með forsvarsmönnum Skútabergs, heilbrigðisfulltrúa og skipulags- og byggingarfulltrúa vegna umgengnismála á framkvæmdasvæði við Moldhaugnaháls. |
||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||
|
17. |
Stefna um þjónustustig í byggðum og byggðarlögum - H2608031 |
|||||||||||||||||||
|
Svohljóðandi tillaga fulltrúa D-lista lögð fram: Sveitarstjórn samþykkti að vísa málinu til Velferðar- menningar- og tómstundanefndar til úrvinnslu. Nefndin hafi gott samráð við íbúa um gerð stefnunnar. |
||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||
|
18. |
Endurskoðun samþykkta um gjaldskrár um hunda- og kattahald - H2608032 |
|||||||||||||||||||
|
Svohljóðandi tillaga fulltrúa D-lista lögð fram: Tillagan samþykkt samhljóða. |
||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:11