Fræðslunefnd, fundur nr. 16
Þriðjudaginn 12. ágúst 2014 kl. 20:00 kom fræðslunefnd Hörgársveitar saman til fundar í Þelamerkurskóla.
Fundarmenn voru: Axel Grettisson, Ásrún Árnadóttir og María Albína Tryggvadóttir fulltrúar í nefndinni, og auk þeirra Ingileif Ástvaldsdóttir, skólastjóri, Jónína Sverrisdóttir, fulltrúi starfsfólks Þelamerkurskóla, og Guðmundur Sigvaldason, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
1. Breyting á starfsáætlun Þelamerkurskóla skólaárið 2014-2015
Lögð fram tillaga frá skólastjóra um að skólastarf Þelamerkurskóla á skólaárinu 2014-2015 hefjist með skólasetningu 28. ágúst, í stað 21. ágúst, að skólaslit verði 6. júní, í stað 4. júní, svo og að skipulag skólastarfs á skólaárinu verði aðlagað að þessum breytingum á upphafi og lokum skólastarfs.
Tillagan er framkomin vegna þeirrar röskunar sem orðið hefur á upphaflegri verkáætlun framkvæmda við skólann sem stafar af umfangsmiklum viðbótarverkum og aukaverkum sem komið hafa til á framkvæmdatímanum.
Fræðslunefnd samþykkti framlagða tillögu að breyttri starfsáætlun fyrir Þelamerkurskóla á skólaárinu 2014-2015.
2. Vistunarúrræði fyrir yngstu nemendur 25.-29. ágúst
Rætt um vistunarúrræði fyrir yngstu nemendur þá daga sem nemur frestun skólabyrjunar.
Fræðslunefnd samþykkti að útveguð verði vistunarúrræði fyrir nemendur 1.-4. bekkja dagana 25.-29. ágúst fyrir þá sem þess þurfa.
Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 20:50