Félagsmála- og jafnréttisnefnd, fundur nr. 13
Miðvikudaginn 15. ágúst 2018 kl. 16:15 kom fjallskilanefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.
Fundarmenn: Þór Jónsteinsson formaður, Jónas Þór Jónasson, Davíð Jónsson, Jósavin Gunnarsson og Arnar Ingi Tryggvason nefndarmenn og Snorri Finnlaugsson, sveitar-stjóri, sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
1. Álagning gangnadagsverka
Lögð fram drög að álagningu fjallskila haustið 2018. Nefndin fór yfir drögin og gerði á þeim breytingar. Heildarfjöldi gangnadagsverka er 478. Samkvæmt síðustu forðagæsluskýrslu er alls um að ræða 7.913 kindur, sem er fjölgun um 419 frá fyrra ári. Af þeim voru 174 kindur innan girðingar í sumar, þannig að til álagningar vegna fjallskilanna koma 7.739 kindur. Meðaltalsfjöldi kinda í dagsverki er því 16,19.
Fjallskilanefnd samþykkti framlögð drög að álagningu fjallskila haustið 2018, með þeim breytingum sem gerðar voru á þeim á fundinum.
2. Tímasetning gangna haustið 2018
Rætt um tímasetningu gangna. Tímasetning gagna var samþykkt á fundi nefndarinnar þann 15. júlí 2018. Frávik frá þeim dagsetningum koma fram á gangnaseðlum.
3. Undanþágur frá fjallskilum
Fram kom að borist hefðu beiðnir frá jörðunum Árhvammi, Bitru, Gásum og Steinkoti um að vera undanþegnar fjallskilum í haust, enda hafi fé þaðan verið í fjárheldum girðingum sumarlangt, sbr. samþykkt nefndarinnar 15. júlí 2018. Samtals er um að ræða 174 kindur.
Fjallskilanefnd samþykkti framkomnar beiðnir um undanþágur frá fjallskilum haustið 2018.
4. Viðhald fjárrétta
Rætt um stöðu mála varðandi ásigkomulag og viðhald fjárrétta.
5. Fé úr heimaréttum
Fjallskilanefnd samþykkti að þar sem rekið er í heimarétt skuli viðkomandi gangnastjóri sjá um að koma utansveitarfé í skilarétt viðkomandi deildar. Tilkynna skal eigendum innansveitarfjár um þeirra fé og ber þeim að sækja það svo fljótt sem auðið er.
6. Hrossasmölun
Rætt um hrossasmölun utan afgirtra heimalanda.
Fjallskilanefnd leggur til við sveitarstjórn að kannað verði með að settar verði skýrari reglur um um heimild til að hafa hross utan afgirtra heimalanda og reglur um smölun á ákveðnun svæðum.
Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 20:55