Tinbræðsluvinnustofa fyrir ungt fólk

30. ágú
kl. 11:00

Tinbræðsluvinnustofa fyrir ungt fólk

Hefur þú einhvern tíma reynt að lesa framtíðina úr bráðnum málmi?

Í mörgum Evrópulöndum hefur fólk lengi brætt tin, hellt því í kalt vatn og lesið úr formunum sem myndast. Þessi gamla hefð, Bleigießen, snýst um að finna merkingu í hinu ófyrirsjánalega

Í tilefni síðasta sýningardags SÝNI, sýningu sem fjallar um sögu og ferðalag áls frá Íslandi, Grænlandi og Jamaíka alla leið til tunglsins, bjóðum við ungu fólki að prófa þetta sjálft.

Vinnustofan hefst á stuttu listamannaspjalli þar sem Bryndís, einn listamanna sýningarinnar, segir frá verkefninu, sýningunni og verkunum. Að því loknu fá þátttakendur að bræða tin, hella því í kalt vatn og uppgötva lítinn hlut sem hefur aldrei verið til áður.

Hvernig lítur hann út?
Hvað sérð þú í honum?
Hvað gæti hann þýtt?

Vinnustofan er ætluð ungu fólki, um 6 ára og eldri. Gott að vera í fylgd ef við á. Engin reynsla er nauðsynleg – bara forvitni og ímyndunarafl.

Þátttaka er ókeypis en skráning er nauðsynleg fyrir 29. ágúst.
Skráning fer fram með tölvupósti á bryndisbjorns@gmail.com.