Kveldúlfur tónlistarhátíð
Viðburðir
15.
ágú
Allar upplýsingar um hátíðina er að finna á heimasíðu þeirra auk þess er hægt að kaupa miða þar inni.
KVELDÚLFURFESTIVAL.IS
Hátíðin var fyrst haldin í júlí 2025 og er óhagnaðardrifinn menningarviðburður. Tilgangurinn er að skapa stuð og stemningu sem tosar ekki of mikið í budduna.
Við trúum því að menning ætti að vera öllum aðgengileg og vinnum við hart að því að halda miðaverði í lágmarki.
Hátíðin dregur nafn sitt af Kveldúlfi, fyrirtæki sem rak verksmiðjuna árum áður. Síldarverksmiðjan var um sinn sú elsta í heiminum, stofnuð árið 1937.
TEYMIÐ
Barinn Leyni á Akureyri rekur hátíðina undir listrænni verkefnastjórn Söru Bjarnason.
Netfang: herrakveldulfur@gmail.com