Velferðar- menningar- og tómstundarnefnd fundur nr. 1

01.10.2026 16:15

Fimmtudaginn 1. október 2026 kl. 16:15 kom velferðar- menningar- og tómstundarnefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins.
Fundarmenn voru, Eva Hilmarsdóttir formaður, Arnar Tryggvason varaformaður, Katrín Olsen Björnsdóttir, Jóhanna Margrét Gunnarsdóttir og Vikar Mar Valsson fulltrúar í nefndinni og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri og Kolbrún Lind Malmquist starfsmaður nefndarinnar sem ritaði fundargerð.


Þetta gerðist:

1. H2606017 - Erindisbréf nefnda 2026-2030 og fundartímar
Lagt fram erindisbréf velferðar-, menningar- og tómstundarnefndar fyrir kjörtímabilið 2026–2030. Jafnframt voru ræddir fundartímar nefndarinnar.

2. H2609028 - Menningarfélög og styrkir
Farið yfir styrki til menningarfélaga í Hörgársveit og fyrirkomulag styrkveitinga.
Velferðar-, menningar- og tómstundarnefnd tók málið til umræðu og kynningar.

3. H2609029 - Áfangastaðaáætlun 2026-27
Farið yfir stöðu þeirra fimm verkefna Hörgársveitar sem eru hluti af Áfangastaðaáætlun Norðurlands 2026–2027. Verkefnin voru rædd og næstu skref skoðuð.
Velferðar-, menningar- og tómstundarnefnd ræddi áhugaverða staði og verkefni sem gætu átt heima á áætluninni. Nefndin fól verkefnastjóra að auglýsa eftir nýjum verkefnum og uppfæra verkefni sveitarfélagsins.

4. H2609030 - Dranginn félagsmiðstöð
Farið yfir starfsemi og rekstur félagsmiðstöðvarinnar Dranginn á starfsárinu 2026–2027, þar á meðal starfsemi, dagskrá og helstu áherslur starfsársins.
Velferðar-, menningar- og tómstundarnefnd tók starfsemi Drangans til umræðu og kynningar.

5. H2609031 - Rekstur íþróttamiðstöðvar
Farið yfir rekstur og starfsemi íþróttamiðstöðvarinnar á Þelamörk, stöðu mála og helstu atriði er varða starfsemi hennar.
Velferðar-, menningar- og tómstundarnefnd tók rekstur og starfsemi íþróttamiðstöðvarinnar á Þelamörk til umræðu og kynningar.

6. H2609032 - Fjárhagsáætlun 2027
Farið yfir fjárhagsáætlun ársins 2027 með áherslu á þá málaflokka sem heyra undir nefndina.
Velferðar-, menningar- og tómstundarnefnd fór yfir áherslur varðandi fjárhagsáætlun ársins 2027 og stöðu þeirra málaflokka sem heyra undir nefndina. Nefndin leggur áherslu á við sveitarstjórn að aðgengismál við íþróttamiðstöðina á Þelamörk verði höfð í fyrirrúmi við gerð áætluninnar.

7. H2609033 - Handverks- og hönnunarmarkaður á Þelamörk 2027
Erindi hefur borist frá handverksfólki og hönnuðum á Eyjafjarðarsvæðinu þar sem lögð er fram hugmynd um að halda stærri handverks- og hönnunarhátíð í íþróttahúsinu á Þelamörk í ágúst 2027. Markmið verkefnisins er að skapa vettvang fyrir handverksfólk, hönnuði, frumkvöðla og aðila í matarhandverki til að kynna og selja afurðir sínar, auk þess að stuðla að uppbyggingu stærri handverkshátíðar á Norðurlandi.
Velferðar-, menningar- og tómstundarnefnd tekur jákvætt í hugmyndina og felur verkefnastjóra að vinna málið áfram í samstarfi við forsvarsmenn verkefnisins og leggja fyrir nefndina nánari útfærslu þegar hún liggur fyrir.

 

Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 17:50