Ungmennaráð fundur nr. 6

10.11.2025 16:00

Mánudaginn 10. nóvember 2025 kl. 16:00 kom Ungmennaráð Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu Hörgársveitar.

Fundarmenn voru, Anna Lovísa Arnarsdóttir, Hjördís Emma Arnarsdóttir, Ylva Sól Agnarsdóttir, Jósef Orri Axelsson, Lárus Sólon Biering Ottósson og Kolbrún Lind Malmquist starfsmaður nefndarinnar ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Erindi til ungmennaráðs Hörgársveitar frá SSNE vegna Ungmennaþings 2026
Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) undirbúa nú næsta Ungmennaþing SSNE, sem stefnt er að því að halda á vordögum 2026. Í ljósi umræðu og niðurstöðu á fundi starfsfólks ungmennaráða þann 22. október 2025 vill SSNE óska eftir ykkar innleggi og hugmyndum varðandi eftirfarandi:
Umgjörð og skipulag þingsins – t.d. tímasetningu, staðsetningu, dagskrá, þátttakendur o.s.frv.
Tillögur að umfjöllunarefnum, verkefnum, áskorunum eða málaflokkum sem snerta ungt fólk í ykkar sveitarfélagi eða á svæðinu almennt sem þið teljið mikilvægt að ungmennaþing taki fyrir á komandi ári.
Ungmennaráð Hörgársveitar leggur til að þingið verði haldið í mars 2026 fyrir páska og að öllum skipuðum fulltrúum í ungmennaráðum eigi kost á að taka þátt. Þau eru opin fyrir ýmsum umfjöllunarefnum t.d. hvað varðar frístundartíma barna og ungmenna. Gaman væri að fara í vetvangsferð/ir til þess að brjóta upp daginn eða vera með smiðjur. Gagnlegt væri að vera með gagnvirka fræðslu um starf ungmennaráða og hvaða áhrif þau geta haft í sínu sveitarfélagi.

2. Ráðstefna ungmennaráða sveitarfélaga
Ráðstefna ungmennaráða sveitarfélaga á vegum Sambandsins sem verður haldin 5. desember næstkomandi í Reykjavík. Hörgársveit á frátekin 3 pláss á ráðstefnunni og möguleiki að koma fleirum að.
Allir meðlimir í Ungmennaráði Hörgársveitar óska eftir að fá sæti á þinginu og fela starfsmanni ráðsins að óska eftir fleiri miðum.

3. Reglur ungmennaráðs Hörgársveitar
Breytingar á reglum ráðsins.
Ungmennaráð leggur til við sveitarstjórn að breytt verði reglum um aldur og tíma þess sem nefndarmenn sitja úr tveimur árum í fjögur líkt og aðrar nefndir sveitarfélagsins og að valið verði í ráðið á kosningarári. Ungmennaráð leggur jafnframt til að fulltrúar séu á aldrinum 12-20 ára þegar þeir eru valdir í ráðið og megi sitja í því út tímabilið óháð því hvort þeir séu komnir yfir tvítugt.

 

Fundi slitið kl. 16:50