Ungmennaráð fundur nr. 5
Þriðjudaginn 26. ágúst 2025 kl. 17:00 kom Ungmennaráð Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu Hörgársveitar.
Fundarmenn voru, Hjördís Emma Arnarsdóttir, Ylva Sól Agnarsdóttir, Jósef Orri Axelsson, Lárus Sólon Biering Ottósson og Kolbrún Lind Malmquist starfsmaður nefndarinnar ritaði fundargerð.
Anna Lovísa kom ekki.
Þetta gerðist:
1. Nýtt merki félagsmiðstöðvarinnar
Ungmennaráð er sátt við nýtt merki félagsmiðstöðvarninnar.
2. Kynning á starfsárinu 2025-26 í Dranganum félagsmiðstöð
Starfsmaður ungmennaráðs og jafnframt forstöðukona félagsmiðstöðvarinnar fór yfir skipulag komandi starfsárs.
3. Starf fyrir 16-18 ára í Dranganum
Niðurstaða sveitarstjórnar kynnt þar sem hún samþykkti að koma félagsmiðstöðinni á, einu sinni í mánuði til reynslu.
Ungmennaráð leggur til að það verði gerð Messager grúbba og öllum bætt í hópinn sem eiga heima þar og fundið út hvaða tímasetning hentar best.
4. Forvarnarfræðsla
Ungmennaráð leggur til að aukin forvarnarfræðsla verði í skóla og félagsmiðstöð sem er byggð upp á skemmtilegan og athyglisverðan hátt.
5. Körfuboltavöllur við Þelamerkurskóla
Ungmennaráð ítrekar ósk sína við sveitarstjórn um að settur verði upp nýr og endurbættur körfuboltavöllur á leiksvæðið við Þelamerkurskóla.
6. Ungmennaþing SSNE
Kynning á fyrirkomulagi fyrri ára og áhugi kannaður hjá ungmennaráði að mæta á næsta þing.
Fundi slitið kl. 17:45