Sveitarstjórn fundur nr. 210

15.10.2026 10:00

210. fundur sveitarstjórnar Hörgársveitar haldinn á skrifstofu Hörgársveitar, fimmtudaginn 15. október 2026 og hófst hann kl. 10:00.

Fundinn sátu:
Sunna María Jónasdóttir oddviti, Árni Rúnar Örvarsson, Róbert F. Jósavinsson, Bjarki Freyr Brynjólfsson, Katrín Olsen Björnsdóttir og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.
Fundargerð ritaði: Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri.

Dagskrá:
1. Hafnarsamlag Norðurlands - kynning - H2610013
Pétur Ólafsson Hafnarstjóri hjá Hafnarsamlagi Norðurlands mætti á fundinn og kynnti starfsemi Hafnarsamlagsins og einkum stöðu mála er varðar höfnina á Hjalteyri og Dysnesi og áformaða uppbyggingu þar.

2. Skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar - 126 - 2608019F
Fundargerðin lögð fram ásamt fylgigögnum til afgreiðslu þeirra mála sem vísað er til sveitarstjórnar.

2.1 H2608021 - Lerkigerði L241757 - fyrirspurn um uppbyggingu
Lagt fram erindi frá Landslagi ehf. f.h. lóðarhafa Lerkigerðis L241757 þar sem óskað er eftir afstöðu sveitarfélagsins til fyrirhugaðrar uppbyggingar á lóðinni. Áformað er að reisa óupphitaða skemmu, um 100-300 m² að stærð og með mænishæð um 6 m. Lóðin er 1,0 ha að stærð og er innan skógræktar- og landgræðslusvæðis SL1 samkvæmt gildandi aðalskipulagi Hörgársveitar.
Skipulagsnefnd frestaði afgreiðslu þar til formleg breyting á landnýtingu er varðar samning um skógrækt liggur fyrir. Bent er á að áformin eru ekki samkvæmt samþykktu Aðalskipulagi.
Gefur ekki tilefni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

2.2 H2609011 - Glæsibær - erindi um skilmála efnistökusvæðis E11
Fyrir fundinum liggur erindi GLB17, dags. 25. ágúst 2026, f.h. landeiganda Glæsibæjar, þar sem óskað er eftir að skilmálar efnistökusvæðis E11 í landi Glæsibæjar verði teknir til skoðunar og framkvæmdaleyfi vegna svæðisins endurskoðað.
Sveitarstjórn tekur undir tillögu skipulagsnefndar og samþykkti að sérákvæði sem takmarka efnistöku á E11 við eigin not landeiganda eða framkvæmdir innan eigin lands verði fellt niður. Landeigandi þurfi að sækja um breytingu er varðar nýtt Aðalskipulag Hörgársveitar 2024-2044.

2.3 H2609012 - Blómsturvellir L175645 - fyrirspurn um niðursetningu smáhýsis
Lögð fram fyrirspurn Sveins A. Reynissonar og Reynis Hjartarsonar, dags. 19. ágúst 2026, þar sem spurst er fyrir um afstöðu sveitarfélagsins til þess að smáhýsi verði sett niður á lóð í landi Blómsturvalla (L175645).
Skipulagsnefnd vísaði erindinu frá enda liggur ekki fyrir skriflegt samþykki Akureyrarbæjar sem landeiganda fyrir staðsetningu hússins á lóðinni. Eins liggja ekki fyrir upplýsingar frá umsækjanda um stærð og notkun hússins og umsögn Minjastofnunar Íslands um áformin.
Gefur ekki tilefni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

2.4 H2609002 - Hagatún 10 og Hagatún 10B - deiliskipulagsbreyting vegna sameingu lóða
Lögð fram tillaga frá landeiganda að breytingu á deiliskipulagi íbúðarbyggðar í landi Glæsibæjar vegna lóðanna Hagatúns 10 (L230884) og Hagatúns 10B (L235577). Tillagan gerir ráð fyrir að Hagatún 10b sameinist Hagatúni 10 þannig að hin sameinaða lóð verði 2620 fermetrar að stærð. Ekki eru gerðar breytingar á ytri merkjum hinnar sameinuðu lóðar. Samhliða stækkar byggingarreitur í 5 m til vesturs en ekki eru gerðar breytingar á byggingarskilmálum.
Sveitarstjórn tekur undir tillögu skipulagsnefndar og samþykkti breytingu á deiliskipulagi íbúabyggðar í landi Glæsibæjar, til samræmis við fyrirliggjandi erindi. Breytingin er óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal grenndarkynnt. Komi ekki athugasemdir á grenndarkynningartímabilinu telst breytingin samþykkt.

2.5 H2609015 - Lónsbakki - breyting á deiliskipulagi vegna íbúðargötunnar Skógarhlíðar
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi íbúðarbyggðar á Lónsbakka, dags. 8. apríl 2026. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi á að lengja íbúðargötuna Skógarhlíð til norðurs að leikskólanum Álfasteini. Í tillögunni er gert ráð fyrir að sú framlenging verði víkjandi. Breytingin nær aðeins til skilmála og skipulagsuppdrættinum verður ekki breytt.
Sveitarstjórn tekur undir tillögu skipulagsnefndar og samþykkti að áður en tillagan fái afgreiðslu verði unnið að framtíðarlausn er varðar aðkomu að Álfasteini sem haldist í hendur við uppbyggingu leikskólans og Lónsbakkahverfis.

2.6 H2609025 - Lónsvegur 3 L239648 - umsóknir um lóð
Lóðin Lónsvegur 3 var auglýst laus til umsóknar og bárust tvær umsóknir, frá:

1. HeiðGuðByggir ehf. kt. 610711-0570
2. Skálabrún ehf. kt. 681117-1210

Sveitarstjórn samþykkti að ganga til samningaviðræðna við Skálatún ehf, sem hæstbjóðanda, um úthlutun og uppbyggingu á lóðinni nr. 3 við Lónsveg í Hörgársveit.

2.7 H2609024 - Mið-Samtún - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Lögð fram umsókn frá eigendum Mið-Samtúns lóð L217228 um stöðuleyfi fyrir 40 feta gám á lóðinni.
Sveitarstjórn tekur undir tillögu skipulagsnefndar og gerir ekki athugasemd við veitingu stöðuleyfis til eins árs fyrir geymslugám á Mið-Samtúni lóð L217228 en bendir á að liggja þurfi fyrir samþykki eiganda Mið-Samtúns L152512 þar sem fyrirhuguð staðsetning er á lóðarmörkum. Jafnframt verði umsóknin grenndarkynnt.

Bjarki Brynjólfsson vék af fundi undir þessum lið.

2.8 H2506007 - Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2025-2037 - umsagnarbeiðni
Erindi frá Eyjafjarðarsveit þar sem óskað er umsagnar um tillögu að Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2025-2037.
Sveitarstjórn tekur undir tillögu skipulagsnefndar og samþykkir að gera ekki athugasemdir við tillögu að Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2025-2037.

3. Fundargerðir Velferðar-, menningar- og tómstundarnefndar - 2026 - H2610004
Fundargerð frá 1.10.2026 lögð fram ásamt fylgigögnum.

4. Fundargerðir rekstrar- og framkvæmdarnefndar - 2026 - H2602054
Fundargerð frá 13.10.2026 lögð fram ásamt fylgigögnum.
Sveitarstjórn samþykkti að sveitarfélaginu verði heimilt að taka þátt í kostnaði við að setja upp skýli fyrir börn vegna skólaaksturs í byggðakjörnum í sveitarfélaginu.

5. Fundargerð SÍS - 2026 - H2602035
Fundargerðir frá 1002 og 1003 fundi lagðar fram.
Umræður um PISA. Sveitarstjórn Hörgársveitar hvetur til þess að öll sveitarfélög í landinu fái niðurstöður úr PISA könnun fyrir sitt sveitarfélag

6. Fundargerðir Norðurorku - stjórn - 2026 - H2602024
Fundargerðir frá 326. og 327. fundi lagðar fram.
Sveitarstjórn Hörgársveitar lýsir yfir miklum vonbrigðum með að gjaldskrárhækkanir hjá Norðurorku fyrir árið 2027 séu ráðgerðar allt að 7% þegar almenn sátt er um að gjaldskrár sveitarfélaga og fyrirtækja þeirra hækki ekki umfram 2,5%.
Sveitarstjórn Hörgársveitar leggst alfarið gegn þessum hækkunum umfram 2,5% og hvetur til þess að gagngerð úttekt á rekstri Norðurorku verði gerð nú þegar, meðal annars til þess að fá fram hvers vegna hækkanir á gjaldskrám Norðurorku hafi nokkur ár í röð verið umfram almennar verðlagshækkanir og hvaða leiðir eru tiltækar til að snúa þessari þróun við.

7. Norðurorka - auka aðalfundur - fundarboð - H2610010
Fundarboðið lagt fram ásamt fylgigögnum.
Sveitarstjórn samþykkti að Bjarki Brynjólfsson varaoddviti fari með umboð Hörgársveitar á auka aðalfundi Norðurorku þann 20.10.2026.

8. Styrkbeiðni - H2503010
Erindi frá Kvennaathvarfi lagt fram ásamt tillögu að skiptingu milli sveitarfélaga.
Erindið varðar umsókn um rekstrarstyrk fyrir húsaleigu til Kvennaathvarfs á Norðurlandi.
Sveitarstjórn samþykkti styrkbeiðnina og að framlag Hörgársveitar 2027 verði í samræmi við skiptingu á milli sveitarfélaga á svæðinu.

9. Ósk um fjárstuðning - 2027 - H2610014
Erindi frá Stígamótum lagt fram.
Sveitarstjórn samþykkti að vísa erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2027.

10. Fjárhagáætlun 2026 - viðauki 01 2026 og viðauki 02 2026 - H2610006
Lagðar fram tillögur að viðauka 01/2026 og viðauka 02/2026.
Viðauki 01/26:
Sveitarstjórn Hörgársveitar samþykkir framlagðan viðauka 01/26 við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna innleiðingar á breyttri málaflokka- og deildaskiptingu samkvæmt reglugerð nr. 145/2026, um breytingu á reglugerð nr. 1212/2015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga. Fjárheimildir eru færðar af 12 eldri deildarlyklum yfir á nýja deildarlykla samkvæmt yfirliti sem fylgir viðaukanum og breytingarnar skráðar í Áætlun 2026V. Samtals eru 85.854.000 kr. lækkaðar á eldri deildum og sama fjárhæð hækkuð á nýjum deildum. Viðaukinn felur eingöngu í sér tæknilega endurflokkun og hefur engin áhrif á heildartekjur, heildargjöld eða áætlaða rekstrarniðurstöðu Hörgársveitar. Sveitarstjóra er falið að færa breytingarnar í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins og tryggja að framsetning bókhalds og reikningsskila verði í samræmi við breytta flokkun.

Viðauki 02/26:
Sveitarstjórn Hörgársveitar samþykkir framlagðan viðauka 02/26 við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna tilfærslu milli liða úr upphaflegri fjárhagsáætlun 2026 og nauðsynlegra breytinga á áætluðum rekstrartekjum, rekstrargjöldum, afskriftum, fjármagnsliðum, fjárfestingum og lántöku á árinu 2026. Helstu breytingar eru að áætlaðar rekstrartekjur aukist um 84,8 millj. kr. Áætluð rekstargjöld aukist um 57,1 millj. kr. Áætlaðar afskriftir lækki um 8 millj. kr. og áætlað er að fjármagnsgjöld (vextir og verðbætur) hækki um 32,6 millj. kr. Því er áætlað að rekstarniðurstaðan 2026 verði hagstæðari um 3 millj. og verði jákvæð um 53,5 millj. kr. Áætlað er að fjárfesting í varanlegum rekstarfjármunum verði á árinu 2026 168,8 millj. kr. eða 43,8 milljónum meiri en í upphaflegri áætlun. Til að mæta þessu er áætlað að auka lántöku um 50 millj. kr. og að hún verði í heild á árinu 135 millj. kr. Áætlað er að handbært fé í árslok verði 71 millj. kr. Sveitarstjóra er falið að færa breytingarnar í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins og tryggja að framsetning bókhalds og reikningsskila verði í samræmi við reglur þar um.

11. Lántaka - Lánasjóður sveitarfélaga - H2603032
Lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Umræður og afgreiðsla.
Sveitarstjórn samþykkti að taka NIB lán í samræmi við þá skilmála sem fyrir liggja frá Lánasjóðnum.
Sveitarstjórn Hörgársveitar samþykkir hér með á fundi sínum að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að útgreiðlsufjárhæð allt að kr. 50.000.000,- samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru þegar lánið er tekið. Lántakan er langtímalán í þeim lánaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Sveitarstjórn hefur kynnt sér skilmála viðkomandi lánaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins.
Til tryggingar láninu þ.m.t. höfuðstól, vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði samþykkir sveitarstjórn að tekjur sveitarfélagsins, sbr. 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, verði veðsettar.
Lánið er tekið til endurbyggingar á húsnæði grunnskóla sveitarfélagsins. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.
Jafnframt er Snorra Finnlaugssyni sveitarstjóra kt. 210260-3829, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Hörgársveitar. Umboðið tekur jafnframt til móttöku, undirritunar, útgáfu og afhendingar allra skjala, fyrirmæla og tilkynninga sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.

12. Samtök landbúnaðarsveitarfélaga - stofnun - H2610015
Tillaga að Hörgársveit verði stofnaðili. Fylgigögn til stofnfundar lögð fram.
Sveitarstjórn samþykkti að Hörgársveit verði stofnaðili að Samtökum landbúnaðarsveitarfélaga.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:50