Sveitarstjórn fundur nr. 209
209. fundur sveitarstjórnar Hörgársveitar haldinn á skrifstofu Hörgársveitar, mánudaginn 28. september 2026 og hófst hann kl. 09:45.
Fundinn sátu:
Sunna María Jónasdóttir, Árni Rúnar Örvarsson, Róbert F. Jósavinsson, Bjarki Freyr Brynjólfsson, Katrín Olsen Björnsdóttir og Snorri Finnlaugsson.
Fundargerð ritaði: Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri.
Dagskrá:
|
1. |
Fundargerðir HNE - 2026 - H2603033 |
|
|
Fundargerð frá 251. fundi lögð fram. Sveitarstjórn fagnar því að hafin er vinna við að bæta umgengni á svæði Skútabergs við Moldhaugnaháls og hvetur eigendur til að hraða þeirri vinnu.
Sveitarstjórn tekur undir áhyggjur Heilbrigðisnefndar vegna breytinga á starfsemi heilbrigðiseftirlits og óvissu þegar verkefni færast yfir til ríkisins um áramót. |
||
|
2. |
Hafnarsamlag Norðurlands - fundargerðir 2026 - H2608023 |
|
|
Fundargerð frá 309. fundi lögð fram. |
||
|
3. |
Fundargerðir stjórnar Markaðsstofu Norðurlands - 2026 - H2609016 |
|
|
Fundargerð frá fundi 28.8.2026 lögð fram. |
||
|
4. |
SSNE - fundargerðir 2026 - H2602034 |
|
|
Fundargerð frá 86. fundi lögð fram. |
||
|
5. |
Haustþing SSNE - 2026 - H2608007 |
|
|
Þinggerð haustþings SSNE lögð fram.
Sveitarstjórn Hörgársveitar tekur undir þau sjónarmið sem fram komu í ávarpi menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra á haustþingi SSNE 4. september 2026 um að sporna við samþjöppun verkefna, fjárfestinga og starfa og tryggja að stuðningskerfi nýsköpunar nýtist um land allt. Fyrirliggjandi gögn sýna mikla samþjöppun styrkveitinga Tækniþróunarsjóðs á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kallar á heildstætt mat á aðgengi og stöðu nýsköpunarverkefna á landsbyggðinni. Sveitarstjórn leggur áherslu á öfluga ráðgjöf í heimabyggð, gagnsæ matsviðmið og reglulega birtingu niðurstaðna eftir landshlutum. Sveitarstjórn hvetur SSNE til að fylgja málinu eftir gagnvart ráðuneytinu og leggja niðurstöður fyrir aðildarsveitarfélögin. |
||
|
6. |
Farsældarráð Norðurlands eystra - 2026 - H2603041 |
|
|
Fundargerð 8. fundar lögð fram. |
||
|
7. |
Farsæld barna á Norðurlandi eystra - 2027-2030 - H2609017 |
|
|
Erindi um áætlun um svæðisbundna forgangsröðun aðgerða um farsæld barna á Norðurlandi eystra 2027-2030 lögð fram.
Sveitarstjórn bendir á að misræmi er í orðalagi varðandi aukna sálfélagslega þjónustu barna og sálfélagslega þjónustu í framhaldsskólum. Sveitarstjórn bendir enn fremur á að samstarfssamningur var undirritaður í byrjun september milli Bergsins Headspace og allra sveitarfélaga á norðurlandi eystra um þjónustu við ungmenni á aldrinum 12-25 ára. |
||
|
Sveitarstjórn Hörgársveitar lýsir yfir vonbrigðum með að ríkisstjórnin skuli í fjárlagafrumvarpi ekki gera ráð fyrir áframhaldandi fjárframlagi til málaflokksins og hvetur Alþingi til að sjá til þess að í fjárlögum verði gert ráð fyrir áframhaldandi framlagi til farsældarmála barna. |
||
|
8. |
Flugklasinn Air 66N - H2605016 |
|
|
Erindi um ósk um stuðning við Flugklasann Air 66N lagt fram. |
||
|
Sveitarstjórn samþykkti áframhaldandi fjárstuðning við Flugklasann Air 66 N og samþykkir að greiða framlag að upphæð 500 kr. á hvern íbúa á ári til næstu þriggja ára (2027-2029). |
||
|
9. |
Fundargerðir Norðurorka - stjórn - 2026 - H2602024 |
|
|
Erindi vegna bókunar Hörgársveitar varðandi lántökur lagt fram. |
||
|
10. |
Norðurorka - erindi vegna lántöku - H2609018 |
|
|
Erindi um ósk um ábyrgð á lánum Norðurorku lagt fram. |
||
|
Rætt um samskipti og aðkomu allra hluthafa að stjórn Norðurorku hf. og samtöl við núverandi stjórnendur Akureyrarbæjar og verðandi stjórn Norðurorku hf þar um. Í ljósi þeirra og í því trausti að vilji sé til bættrar samvinnu er tekin ákvörðun um veitingu einfaldrar ábyrgðar, veðsetningu tekna til tryggingar ábyrgðinni og umboð til undirritunar lánasamnings vegna láns Norðurorku hf. í eigu sveitarfélagsins hjá Lánasjóði sveitarfélaga: Sveitarstjórn Hörgársveitar samþykkir hér með á fundi sínum að veita einfalda ábyrgð á láni Norðurorku hf. hjá Lánasjóði sveitarfélaga og veðsetja tekjur sveitarfélagsins til tryggingar ábyrgðinni í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 1. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Ábyrgðin nær til láns að fjárhæð, allt að kr. 300.000.000,- ásamt vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði, samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru þegar lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Sveitarstjórnin hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins. Samþykkið nær jafnframt til undirritunar lánasamnings og þess að sveitarfélagið taki á sig þær skyldur sem þar greinir.
Samþykkt með fjórum atkvæðum með gegn einu og óskaði Árni Rúnar Örvarsson að bóka: Oddviti D-lista óskar eftir að erindinu verði frestað vegna þeirrar staðreyndar að Hörgársveit eigi ekki hið minnsta áheyrnarfulltrúa í stjórn Norðurorku. Þar til Hörgársveit hefur endurheimt áheyrnarfulltrúasæti í stjórn Norðurorku mun hann ekki geta samþykkt að ábyrgjast lánið að svo stöddu. |
||
|
11. |
Notendaráð - 2026-2030 - H2609019 |
|
|
Samband Íslenskra sveitarfélaga, erindi vegna notendaráða lagt fram. |
||
|
Hörgársveit telur sig uppfylla ákvæði um þau þjónusturáð sem rætt er um í erindinu og vinna við þjónustustefnu er hafin. |
||
|
12. |
Þjóðarsátt um verðstöðuleika - erindi - H2609020 |
|
|
Erindi Starfsgreinasambands Íslands, VR, Landssambands íslenskra verslunarmanna og Rafiðnaðarsambandsins lögð fram. |
||
|
Í erindunum er skorað á sveitarfélagið að taka þátt í þjóðarsátt um verðstöðugleika. Sveitarstjórn Hörgársveitar lýsir yfir fullum vilja til þátttöku í þjóðarsátt um verðstöðuleika. |
||
|
13. |
Siðareglur Hörgársveitar - H2609004 |
|
|
Drög að siðareglum ræddar. |
||
|
Lagt fram minnisblað frá lögfræðingi sveitarfélagsins þar sem bent er á að í frumvarpi til breytinga á sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011 sem lagt hefur verið fram á Alþingi, er lagt til að 29. gr. laganna verði breytt, þannig að siðareglur skuli vera tvískiptar, annars vegar skulu vera siðareglur fyrir kjörna fulltrúa og nefndarmenn annars vegar og hins vegar siðareglur fyrir framkvæmdastjóra og lykilstjórnendur. Sveitarstjórn samþykkti að fresta afgreiðslu til áramóta eða þar til ný sveitarstjórnarlög hafa tekið gildi. |
||
|
14. |
Vatnasvæðanefnd - skipun fulltrúa - H2609021 |
|
|
Skipun fulltrúa Hörgársveitar í vatnasvæðanefnd. |
||
|
Sveitarstjórn samþykkti að Katrín Olsen Björnsdóttir verði aðalfulltrúi Hörgársveitar í Vatnasvæðanefnd og Bjarki Brynjólfsson verði varafulltrúi. |
||
|
15. |
Forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga - 2027-2031 - H2609022 |
|
|
Umræður um gjaldskrármál ofl. |
||
|
Sveitarstjórn samþykkti að gjaldskrárhækkanir Hörgársveitar verði á árinu 2027 ekki umfram 2,5%. Önnur viðmið varðandi fjárhagsáætlun 2027-2031 verði í samræmi við forsendur Sambands íslenskra sveitarfélaga. |
||
| 16. |
Háls – vegamál - H2510001 |
|
|
Rætt um stöðu heimreiðar að Hálsi og stöðu annarra heimreiða í sveitarfélaginu. Málinu vísað til Samgöngu- umhverfis- og náttúruverndarnefndar til að vinna málinu framgöngu. |
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:02