Sveitarstjórn fundur nr. 205
205. fundur sveitarstjórnar Hörgársveitar
haldinn á skrifstofu Hörgársveitar, föstudaginn 14. ágúst 2026 og hófst hann kl. 10:00.
Fundinn sátu:
Sunna María Jónasdóttir, Árni Rúnar Örvarsson, Róbert F. Jósavinsson, Bjarki Freyr Brynjólfsson, Katrín Olsen Björnsdóttir og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.
Fundargerð ritaði: Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri.
Dagskrá:
1. Skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar - 125 - 2608002F
Fundargerð 125. fundar skipulags- og umhverfisnefndar lögð fram til afgreiðslu.
1.1 H2608006 - Ytri-Bægisá 1, Ytri-Bægisá 2 og Garðshorn - framkvæmdaleyfisumsókn til malarnáms á svæði E18
Landeigendur Ytri-Bægisár 1, Ytri-Bægisár 2 og Garðshorns á Þelamörk sækja um efnistöku 45.000 m³ af malarefni úr malarnámu á efnistökusvæði E18. Umsókninni fylgir afstöðumynd dags. 05.01.2026 og undirritaður samningur landeigenda um efnistökuna.
Sveitarstjórn samykkti umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku á 45.000 m³ af malarefni úr malarnámu á efnistökusvæði E18. Skipulags- og byggingarfulltrúa verði heimilt að gefa út framkvæmdaleyfi til þriggja ára þegar Aðalskipulag Hörgársveitar 2024-2044 hefur hlotið fullnaðarafgreiðslu og tekið gildi. Uppfærður uppdráttur af námusvæðinu liggi fyrir áður en framkvæmdaleyfi verði gefið út.
1.2 H2603023 - Deiliskipulag Lónsbakkahverfis - breytingar v. Lónsvegar 1 - 3.
Tillaga að deiliskipulagsbreytingu Lónsbakkahverfis vegna Lónsvegar 1 og 3 var auglýst skv. 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og var umsagnarfrestur til 22. júlí sl. 6 umsagnir bárust á auglýsingatímabilinu og eru þær nú til umfjöllunar nefndarinnar.
1. erindi, sendandi Minjastofnun:
Umsögn: Minjastofnun Íslands gerir ekki athugasemd við fyrirhugaða breytingu á deiliskipulagi. Til er fornleifaskráning og eru engar minjar skráðar á því svæði sem deiliskipulagsbreytingin nær til. Einnig var svæðið skoðað á vettvangi af minjaverði þann 14. mars 2024.
Afgreiðsla sveitarstjórnar: Athugasemd krefst ekki breytinga á tillögunni.
2. erindi, sendandi Landsnet:
Umsögn: Landsnet sér ekki tilefni til efnislegrar umsagnar.
Afgreiðsla sveitarstjórnar: Athugasemd krefst ekki breytinga á tillögunni.
3. erindi, sendandi Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra:
Umsögn: Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra gerir ekki athugasemdir við fyrirhugaðar skipulagsbreytingar.
Afgreiðsla sveitarstjórnar: Athugasemd krefst ekki breytinga á tillögunni.
4. erindi, sendandi Vegagerðin:
Umsögn: Vegagerðin bendir á að óheppilegt er fyrir umferðarstraum út úr hringtorgi að hafa margar tengingar nærri því. Ekki er skýrt hvort veghelgunarsvæði sé á uppdrætti, vantar í útskýringar.
Afgreiðsla sveitarstjórnar: Eftir sem áður eru þrjár tengingar á Lónsvegi innan við 100 m frá hringtorgi en við bætist ein tenging rúmlega 100 m frá hringtorginu. Vegna þessa er breytingin ekki talin hafa áhrif á umferðarstraum út úr hringtorginu. Bætt er við í skýringum tákni fyrir veghelgunarsvæði.
Umsögn: Samkvæmt vegalögum nr. 80/2007, 8. gr. enda stofn- og tengivegir við fyrstu þvergötu sem tilheyrir vegakerfi þéttbýlis. Samkvæmt því á Lónsvegur (8298) að enda sem þjóðvegur við Berghól B og mun Vegagerðin fjalla um það í sér erindi óháð deiliskipulagi.
Samkvæmt Vegalögum nr. 80/2007 er veghelgunarsvæði 30 m breitt til hvorrar handar frá miðlínu stofnvega en 15 m frá miðlínu annara þjóðvega. Framkvæmdir og mannvirki innan veghelgunarsvæðis eru ávallt háðar leyfi frá Vegagerðinni. Á það við þótt mannvirki eða framkvæmdir séu í samræmi við samþykkt skipulag.
Lónsvegur uppfyllir í dag ekki skilyrði í veghönnunarreglum um lágmarksfjarlægð á milli vegamóta. Fyrirhuguð breyting fjölgar tengingum á svæði þar sem þegar er of þétt á milli vegamóta
Gera þarf ráð fyrir breikkun Hringvegar og stækkun á hringtorgi í framtíðinni og þarf því að gæta að því að skipulag takmarki ekki möguleika á stækkun. Æskilegt er að fjarlægðir á milli tenginga séu málsettar á uppdrætti, það á einnig við um næstu tengingar utan skipulagsreits.
Afgreiðsla sveitarstjórnar: Skv. umsögn Vegagerðarinnar mun tengivegurinn Lónsvegur enda við fyrstu þvergötu þéttbýlisins sem er við Berghól B. Óskað var eftir frekari upplýsingum frá Vegagerðinni vegna málsins og komu fram þær upplýsingar að tengivegurinn Lónsvegur endar nú við Birkihlíð en mun nú þegar framkvæmum við hringtorg er lokið enda við fyrstu þvergötu þéttbýlisins sem er við Berghól B. Vegna þessa á 15m veghelgunarsvæði ekki við nema á litlum hluta lóðar við Lónsveg 1 þar sem gert er ráð fyrir bílastæðum innan lóðar eins og í gildandi deiliskipulagi. Ekki er talið að breyting á deiliskipulagi takmarki stækkun á hringtorgi í framtíðinni en samt sem áður er lóð við Lónsveg 1 minnkuð um nokkra metra þar sem hún er næst hringtorgi. Ekki talin þörf á að málsetja fjarlægðir á milli vegtenginga þar sem Lónsvegur er ekki tengivegur nema að fyrstu þvergötu þéttbýlisins.
5. erindi, sendandi Rarik:
Umsögn: Rarik gerir ekki athugasemdir við tillöguna.
Afgreiðsla sveitarstjórnar: Athugasemd krefst ekki breytinga á tillögunni.
6. erindi, sendandi Norðurorka:
Umsögn: Hitaveita, vatnsveita og fráveita: Á lóðum 1 og 3 er lagnakvöð. Norðurorka kemur til með að nýta kvöðina og leggja innan lóða hita-, vatns-, og fráveitu. Núverandi hitaveitulögn er innan lóðar en hún verður endurnýjuð. Afgreiðsla sveitarstjórnar: Eftir sem áður er kvöð á lóðinni um lagnasvæði. Lagnakvöðin er 6 m breið frá lóðarmörkum meðfram Lónsvegi. Byggingarreitirnir tveir á lóð nr. 3 voru um 3-4 m frá lóðarmörkum en sú breyting er gerð að byggingarreitunum er hliðrað og verða 5 m frá lóðarmörkum og því er aðeins 1 m af kvaðarsvæðinu innan byggingarreita.
Umsögn: Fráveita: Vakin er athygli á að tengihæð heimæðar skólps er ekki á miklu dýpi og kann að vera takmarkandi (ráðandi) fyrir gólfhæð húsa.
Afgreiðsla sveitarstjórnar: Athugasemd krefst ekki breytinga á tillögunni.
Umsögn: Ekki er unnt að tengja ofanvatn frá lóðunum við fráveitukerfið og því þarf lóðarhafi að leysa losun þess á annan hátt s.s. með blágrænum lausnum með tengingu við Lónsá.
Afgreiðsla sveitarstjórnar: Bætt er við þeim skilmálum að ekki er hægt að tengja ofanvatn frá lóðunum við fráveitukerfið og því þarf lóðarhafi að leysa losun þess á annan hátt.
Sveitarstjórn samþykkti að auglýstri deiliskipulagstillögu verði breytt eins og fram kemur í afgreiðslu á athugasemdum og að svo breytt skipulagstillaga verði samþykkt skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa er falið að vinna að gildistöku skipulagsins og senda það til HMS þegar uppfærð gögn berast.
1.3 H2606040 - Stórabrekka L152349 - Umsókn um byggingareit
Landeigendur Stórubrekku L152349 sækja um byggingarreit fyrir 210-230 fermetra einbýlishús á jörðinni sbr. meðfylgjandi erindi og afstöðumynd. Á jörðinni Stórubrekku L152349 er núna eitt íbúðarhús svo heimild er fyrir byggingarreit fyrir öðru íbúðarhúsi skv. gildandi Aðalskipulagi.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að kallað verði eftir uppdrætti með hnitsettum byggingarreit. Þarfnast ekki afgreiðslu sveitarstjórnar að sinni.
1.4 H2410008 - Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045 - umsagnarbeiðni (1264/2024)
Dalvíkurbyggð óskar umsagnar Hörgársveitar um tillögu að nýju Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2025-2045 en tillagan er í auglýsingu skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og er umsagnarfrestur til 16. ágúst nk.
Sveitarstjórn samþykkti að gera ekki athugasemdir við tillögu að nýju Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2025-2045, en minnir á nauðsyn þess að allar tengingar vega, stíga og veitna séu samræmdar á sveitarfélagamörkum.
1.5 H2606042 - Glæsibær 5 - ný lóð í landi Glæsibæjar
Fyrir fundinum liggur ósk frá GLB17 ehf. um nýjan 990 m² byggingarreit í landi Glæsibæjar þar sem ætlunin er að byggja tvö lítil íbúðarhús þar sem hámarksstærð bygginga á reitnum yrði samtals 200 m². Ekkert íbúðarhús er skráð á jörðinni Glæsibæ L152488 en á Glæsibæ 2, 3 og 4 eru samtals þrjú íbúðarhús á sér lóðum. Auk þess hefur landeigandi (GLB17 ehf.) skipulagt íbúðarsvæði á jörðinni.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að óskað verði eftir að lagt verði fram deiliskipulag af svæðinu eða því bætt við núverandi deiliskipulag. Þarfnast ekki afgreiðslu sveitarstjórnar að sinni.
1.6 H2608002 - Skógarhlíð 41 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Bjarki Örvar Auðbergsson sækir um stöðuleyfi fyrir um 20 feta geymslugám á norðvestur-horni lóðarinnar Skógarhlíðar 41 sbr. meðfylgjandi umsókn og afstöðumynd.
Sveitarstjórn samþykkti að ekki verði gerðar athugasemdir við veitingu stöðuleyfis til eins árs fyrir geymslugám á norðvestur-horni lóðarinnar Skógarhlíðar 41.
Sunna María Jónasdóttir vék af fundi undir þessum lið.
1.7 H2608001 - Skógarhlíð 39 - stækkun lóðar
Fyrir fundinum liggur erindi frá lóðarhafa Skógarhlíðar 39 þar sem óskað er eftir að lóðin verði stækkuð um 126 m² til suðurs, í samræmi við meðfylgjandi uppdrátt. Jafnframt er óskað eftir heimild til að reisa allt að 6 m² skúr á lóðinni.
Sveitarstjórn samþykkti að hafna erindinu, enda telur hún umbeðna stækkun ekki samræmast áformum um nýtingu svæðisins sem opið svæði.
1.8 H2608004 - Búland 3 L239280 - beiðni um breytta notkun íbúðarhúss
Erindi frá eigendum Purity Herbs ehf. þar sem óskað er eftir breyttri notkun á einbýlishúsinu á Búlandi 3 þar sem því yrði breytt yfir í húsnæði fyrir starfsemi undir snyrtivöruframleiðslu.
Sveitarstjórn samþykkti að ekki verði gerð athugasemd við að starfsemi Purity Herbs ehf. verði tímabundið í húsnæðinu sem skilgreint er sem íbúðarhúsnæði. Bent er á að leita þarf samþykkis um breytta notkun húsnæðisins til byggingarfulltrúa.
1.9 H2608005 - Björg 2 L219557 - beiðni um heimild til deiliskipulagningar ferðaþjónustusvæðis, íbúðarhúss og golfvallar
Fyrir fundinum liggur skipulagslýsing unnin af Lilium teiknistofu þar sem óskað er eftir heimild sveitarfélagsins til að breyta Aðalskipulagi og vinna nýtt deiliskipulag fyrir ferðaþjónustu á Björgum 2 L219557. Áætlað er að reisa 3 ferðaþjónustuhús með gistirými fyrir allt að 17 manns samtals, 9 holu golfvöll fyrir almenning og eitt nýtt íbúðarhús á svæðinu.
Sveitarstjórn samþykkti að skipulagslýsingin verði uppfærð þannig að hún taki mið af endurskoðuðu Aðalskipulagi Hörgársveitar 2024-2044 og henni verði síðan vísað í kynningu skv. 1. mgr. 30. gr. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar Aðalskipulag Hörgársveitar 2024-2044 hefur hlotið fullnaðarafgreiðslu og tekið gildi.
2. Fundargerðir fjallskilanefnd - 2026 - H2602053
Fundargerð fjallskilanefndar frá 3.7.2026 lögð fram.
3. Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar - Afgreiðslufundir - 2026 - H2602039
Fundargerðir frá 116. og 117. fundi lagðar fram.
4. Fundargerðir HNE - 2026 - H2603033
Fundargerðir frá 248., 249. og 250. fundi lagðar fram.
5. Fundargerðir Norðurorka - stjórn - 2026 - H2602024
Fundargerð frá 324. fundi lögð fram.
6. SSNE - fundargerðir 2026 - H2602034
Fundargerð frá 84. fundi lögð fram.
Gerð er athugasemd við að Hörgársveit eigi hvorki aðalfulltrúa né varafulltrúa í úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs.
7. Haustþing SSNE - 2026 - H2608007
Erindið lagt fram.
Boðað er til haustþings SSNE á Dalvík þann 9. september 2026.
8. Tækifæris- og gistileyfi - umsagnir - H2608008
Umsagnir um tækifæris- og gistileyfi lagðar fram til staðfestingar.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra óskar umsagnar Hörgársveitar á eftirfarandi leyfisumsóknum:
a) Lagt fram erindi þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar frá NV veitingum ehf. um tækifærisleyfi fyrir áfengisveitingar á tónlistarhátíðinni Kveldúlfi á Hjalteyri 15.8.2026.
Sveitarstjórn samþykkti að gera ekki athugasemd fyrir sitt leyti við að leyfið verði veitt.
b) Lagt fram erindi þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar frá Vetrarvíddum ehf um gistileyfi fyrir rekstur gististaðar í flokki II - H frístundahús að Þrastarlundi F1257155.
Sveitarstjórn samþykkti að gera ekki athugasemd fyrir sitt leyti við að leyfið verði veitt.
c) Lagt fram erindi þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar Sonata guesthouse ehf um breytingu á leyfi fyrir rekstur gististaðar í flokki IV - B frístundahús að Engimýri III F1257615.
Sveitarstjórn samþykkti að gera ekki athugasemd fyrir sitt leyti við að leyfið verði veitt.
9. Samkomulag við ríkið - börn með fjölþættan vanda - H2608009
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi málið lagt fram.
Sveitarstjórn Hörgársveitar tekur undir vonbrigði Sambands íslenskra sveitarfélaga með stöðu málsins.
10. Stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga - Grænbók - H2608010
Erindi frá Innviðaráðuneyti lagt fram ásamt spurningum til sveitarfélaga.
Sveitarstjórn mun vinna að svörum og senda þau inn.
11. Freyjulundsvegur - tilkynning um niðurfellingu af vegaskrá - H2608011
Tilkynning frá Vegagerðinni um fyrirhugaða nidurfellingu Freyjulundsvegar 8157-01 af vegaskrá.
12. Kolka - rafrænt losunarbókhald fyrir rekstur sveitarfélaga - H2608012
Erindi frá SSNE til sveitarfélaga þar sem óskað er eftir formlegu samþykki fyrir þátttöku í Kolku, rafrænu losunarbókhaldi fyrir rekstur sveitarfélaga.
Sveitarstjórn samþykkti formlega þátttöku Hörgársveitar.
13. Skipan öldungarráðs - erindi - H2608013
Erindi frá Landssambandi eldri borgara um skipun öldungaráða og fleira lagt fram.
Skipað verður í öldungaráð á næsta fundi sveitarstjórnar.
14. Gjaldskrár - samtal vegna kjarasamninga - H2608014
Erindið lagt fram.
Eining Iðja óskar eftir samtali við sveitarfélög um stefnu á komandi kjörtímabili varðandi gjaldskrár. Sveitarstjórn lýsir vilja til samtals um áframhaldandi ábyrgrar stefnu í gjaldskrármálum.
15. Kattamál í Lónsbakkahverfi - erindi - H2608016
Lagt fram erindi frá íbúa í Lónsbakkahverfi varðandi lausagöngu og fjölda katta í hverfinu.
Sveitarstjórn samþykkti að vinna að reglum varðandi dýrahald í þéttbýli.
16. Upprekstrarmál og ágangur búfjár - H2608019
Mál til umræðu.
Rætt um kvartanir sem borist hafa til sveitarfélagsins varðandi ágang sauðfjár í sumar og viðbrögð við þeim. Sveitarstjórn Hörgársveitar hvetur til þess að tekið verði á þessum málum á landsvísu. Þá var lagt fram erindi undirritað af 20 íbúum á Hjalteyri með kröfu um úrbætur vegna lausagöngu sauðfjár. Fulltrúar sveitarfélagsins munu funda með hluteigandi aðilum til að tryggja að úrbætur verði gerðar.
17. Íbúaþing - opið hús - H2608017
Mál til umræðu.
Rætt um undirbúning að opnu húsi þar sem íbúum gefst kostur á að kynna sér starfsemi sveitarfélagsins og koma með ábendingar og hugmyndir.
18. Vegamál í sveitarfélaginu - H2608018
Mál til umræðu.
Rætt um áherslumál sem koma þarf á framfæri við Vegagerðina á fundi sem fyrirhugaður er með starfsmönnum Vegagerðarinnar á Norðurlandi.
19. Göngu- og hjólreiðastígur norðan Lónsbakka - H2503034
Staða mála.
Rætt um stöðu mála og farið yfir framhald verkefnis.
20. Trúnaðarmál - H2606029
Fært í trúnaðarmálabók.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:40