Sveitarstjórn fundur nr. 204
Fundinn sátu:
Sunna María Jónasdóttir oddviti, Árni Rúnar Örvarsson, Róbert F. Jósavinsson, Bjarki Freyr Brynjólfsson, Katrín Olsen Björnsdóttir og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri
Dagskrá:
1. Vanhæfni sveitarstjórnarfulltrúa og nefndarmanna og boðun varamanna - H2604032
Erindi Árna Rúnars Örvarssonar um málið lagt fram. Samantekt lögfræðings sveitarfélagsins lögð fram.
Bókun sveitarstjórnar: Með hliðsjón af ákvæðum 20. gr. sveitarstjórnarlaga um hæfi til þátttöku í meðferð og afgreiðslu einstakra mála; ákvæðum 17. gr. um að sveitarstjórn sé ályktunarhæf, ef meirihluti sveitarstjórnarmanna er á fundi; og ákvæðum 31. gr. um boðun varamanna og frestun mála, en jafnframt með hliðsjón af sjónarmiðum um hraða málsmeðferð og skilvirka stjórnsýslu, skal eftirfarandi haft að leiðarljósi við sveitarstjórnarfundi:
Fylgja skal ákvæðum laga verði sveitarstjórnarmaður vanhæfur í máli. Verði aðalmaður á fundi vanhæfur til að taka þátt í meðferð og afgreiðslu máls, skal að kröfu hans fresta umræðu og afgreiðslu máls til næsta fundar og boða varamann í hans stað, enda verði innköllun varamanns ekki við komið þá þegar á fundinum. Aðrir en hinn vanhæfi geta gert tillögu um frestun fundar og ræður afl atkvæða. Sé fundur ályktunarfær og hinn vanhæfi krefst ekki frestunar fundar og boðunar varamanns, er heimilt að ræða og afgreiða mál, þó sveitarstjórn sé ekki full skipuð.
2. Skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar - 124 - 2606001F
Fundargerð 124 fundar skipulags- og umhverfisnefndar lögð fram til afgreiðslu.
2.1 H2601012 - Skógrækt í landi Fagraness í Öxnadal, nr. 0088.2026 Tilkynning um framkvæmd – Umsagnarbeiðni
Fyrir fundinum liggur ákvörðun HMS um matsskyldu vegna skógræktar í landi Fagraness í Öxnadal auk greinargerðar framkvæmdaraðila. Sveitarstjórn fjallaði síðast um málið á 197. fundi sínum þann 25. febrúar 2026 þar sem fyrir lá umsagnarbeiðni Skipulagsstofnunar vegna framkvæmdarinnar og samþykkti sveitarstjórn að mæla með því að umhverfismat færi fram.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að fresta afgreiðslu málsins þar sem borist hefur kæra vegna ákvörðunar HMS um matsskyldu.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að sveitarstjórn fjalli um málið.
Sveitarstjórn tekur undir afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar um að fresta afgreiðslu málsins.
2.2 H2411010 - Fagranes L2157606 - Umsókn um leyfi til skógræktar (stækkun á framkvæmdarsvæði)
Tekin fyrir að nýju umsókn ITF reforestation ehf. um framkvæmdaleyfi til stækkunar skógræktarsvæðis í landi Fagraness en umsóknin var seinast á fundi nefndarinnar 27. mars 2025 þar sem umsóknaraðila var falið að kalla eftir matsskylduákvörðun áður en framkvæmdaleyfisumsóknin yrði afgreidd. Ákvörðun HMS um matsskyldu liggur nú fyrir og var niðurstaðan að framkvæmdin væri ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Skipulags og umhverfisnefnd samþykkti að fresta afgreiðslu málsins þar sem borist hefur kæra vegna ákvörðunar HMS um matsskyldu.
Sveitarstjórn tekur undir afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar um að fresta afgreiðslu málsins.
2.3 H2605039 - Steðji - merkjalýsing og afmörkun jarðar
Fyrir fundinum liggur merkjalýsing, dags. 03.04.2026, vegna afmörkunar jarðarinnar Steðja L152540 gagnvart aðliggjandi jörðum.
Sveitarstjórn samþykkti tillögu skipulags- og umhverfisnefndar um að gera ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu og samþykkti hana á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024.
2.4 H2605041 - Gásir II L234465 - umókn um stofnun nýs fasteignanúmers fyrir gestahús
Jón Björn Þorsteinsson Blöndal sækir um stofnun nýs fasteignanúmers fyrir gestahús á lóð Gása II.
Sveitarstjórn samþykkti tillögu skipulags- og umhverfisnefndar og hafnar umsókn um stofnun nýs fasteignanúmers fyrir gestahús að Gásum II L234465. Sveitarstjórn telur ekki forsendur til að stofna sérstakt fasteignanúmer fyrir húsið þar sem það stendur innan sömu lóðar og íbúðarhúsið.
2.5 H2606006 - Hafnarsvæði - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Norðursigling hf sækir um stöðuleyfi fyrir Vitann, miðasölu-/fjölnotahús, á hafnarsvæðinu á Hjalteyri sbr. meðfylgjandi umsókn dags. 02.06.2026.
Sveitarstjórn samþykkti tillögu skipulags – og umhverfisnefndar og gerir ekki athugasemd við að veitt verði stöðuleyfi til eins árs með fyrirvara um að lagðar verði fram frekari upplýsingar um fyrirhugaða starfsemi í aðstöðunni og að starfsemin sé í samræmi við aðalskipulag Hörgársveitar. Verði ekki starfsemi í aðstöðunni, sem samræmist aðalskipulagi Hörgársveitar, innan árs verði stöðuleyfi ekki framlengt. Erindinu er vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
2.6 H2606018 - Ásláksstaðir L152460 - afmörkun á landspildu
Eigandi Ásláksstaða L152460 sækir um stofnun 10.000 fm landspildu úr jörð sinni sem fengi staðfangið Litla-Stykkið sbr. meðfylgjandi merkjalýsingu dags. 03.06.2026.
Sveitarstjórn samþykkti tillögu skipulags- og umhverfisnefndar og gerir ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu og samþykkir hana á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024.
2.7 H2606019 - Umsókn um breytingar á aðalskipulagi í landi Skriðu
Fyrir fundinum liggur erindi frá Skriðuhestum ehf. þar sem óskað er eftir breytingu á Aðalskipulagi Hörgársveitar 2024-2044 vegna fyrirhugaðs efnistökusvæðis í landi Skriðu. Í erindinu felst að landbúnaðarsvæði verði breytt í efnistökusvæði fyrir allt að 49.500 m³ efnistöku á um 2,4 ha svæði.
Sveitarstjórn samþykkti tillögu skipulags- og umhverfisnefndar og heimilar umsækjanda að hefja vinnu við gerð skipulagslýsingar vegna breytingar á Aðalskipulagi Hörgársveitar 2024-2044 fyrir efnistökusvæði í landi Skriðu. Skipulagslýsingin verði lögð fyrir skipulags- og umhverfisnefnd til umfjöllunar og afgreiðslu þegar hún liggur fyrir.
2.8 H2512010 - Spónsgerði 2 (L239616) - umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku
Fyrir fundinum liggur að nýju umsókn Finns ehf. um framkvæmdaleyfi til efnistöku á 2,49 ha svæði í landi Spónsgerðis 2 (L239616). Umsóknin var áður tekin fyrir í sveitarstjórn þann 27.01.2026, þar sem samþykkt var að taka umsóknina fyrir að nýju þegar yfirstandandi endurskoðun Aðalskipulags Hörgársveitar lyki.
Sveitarstjórn samþykkti tillögu skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkti umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku í landi Spónsgerðis 2 (L239616). Skipulags- og og byggingarfulltrúa er heimilt að gefa út framkvæmdaleyfi þegar aðalskipulag Hörgársveitar 2024-2044 hefur hlotið fullnaðarafgreiðslu og tekið gildi. Jafnframt er það skilyrði að frágangi á eldra efnistökusvæði verði lokið.
2.9 H2606020 - Spónsgerði 2 L239616 - framkvæmdaleyfi vegna frágangs efnistökusvæðis og tilfærslu heimreiðar
Fyrir fundinum liggur erindi frá Finni ehf., dags. 08.06.2026, þar sem óskað er eftir framkvæmdaleyfi vegna frágangs á eldra malarnámusvæði í landi Spónsgerðis í Hörgársveit og tilfærslu heimreiðar.
Sveitarstjórn samþykkti tillögu skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkti að framkvæmdaleyfi verði veitt vegna frágangs á eldra malarnámusvæði í landi Spónsgerðis og tilfærslu heimreiðar, í samræmi við fyrirliggjandi gögn og fyrirvara um samþykki Vegagerðar um staðsetningu heimreiðar. Sveitarstjórn leggur áherslu á að leyfið taki eingöngu til frágangs svæðisins, landmótunar og tilfærslu efnis innan svæðisins, en ekki nýrrar efnistöku eða brottflutnings efnis. Skipulagsfulltrúa er falið að ganga frá útgáfu framkvæmdaleyfisins.
2.10 H2606021 - Reynihlíð 2 - 12 Lóðarstækkanir
Lögð er fram tillaga að lóðarstækkun fyrir lóðir við Reynihlíð nr. 2-12 í Hörgársveit. Gert er ráð fyrir að lóðirnar stækki um um 110 m² hver, sbr. meðfylgjandi uppdrátt/skýringarmynd. Sveitarstjórn samþykkti tillögu skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkti að unnin verði tillaga að deiliskipulagsbreytingu í samræmi við þær hugmyndir sem lagðar voru fram. Sunna María Jónasdóttir lýsti sig vanhæfa við umfjöllun málsins og vék af fundi og tók Bjarki Freyr Brynjólfsson við stjórn fundarins undir þessum lið.
2.11 H2606022 - Gáseyri L152495 - framkvæmdaleyfisusókn vegna efnistöku
Gáseyrin ehf. sækir um framkvæmdaleyfi til efnistöku úr sjó á Gáseyri L152495 á svæði E17 í endurskoðuðu Aðalskipulagi Hörgársveitar 2024-2044. Sótt er um að taka 49.500 m³ af sandi til þriggja ára sbr. meðfylgjandi umsókn dags. 09.06.2026 og fylgigögn.
Sveitarstjórn samþykkti tillögu skipulags- og umhverfisnefndar og samþykkti umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku úr sjó á Gáseyri (L152495). Skipulags- og byggingarfulltrúa er heimilt að gefa út framkvæmdaleyfi þegar aðalskipulag Hörgársveitar 2024-2044 hefur hlotið fullnaðarafgreiðslu og tekið gildi.
Árni Rúnar Örvarsson vék af fundi undir þessum lið vegna vanhæfis og sat Jónas Þór Jónasson fundinn undir þessum lið í hans stað.
2.12 H2606032 - Glæsibær - erindi um áframhaldandi skipulagsvinnu
Tekið fyrir erindi frá GLB17 ehf. um áframhald skipulagsvinnu í landi Glæsibæjar.
Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og að fundað verði með fulltrúum GLB17 ehf og fulltrúum sveitarstjórnar og skipulagsnefndar um áframhald skipulagsvinnu í landi Glæsibæjar.
3. Fundargerðir framkvæmda- og rekstrarnefndar - 2026 - H2602054
Fundargerð frá 24. fundi 11.6.2026 lögð fram til umræðu.
4. Stjórn Hörgársveitar og fundarsköp sveitarstjórnar - breyting á samþykktum - H2603002
Tillögur að breytingum lagðar fram ásamt fylgigögnum.
Lögð fram neðanrituð tillaga að breytingum á samþykktum um stjórn Hörgársveitar og fundarsköp sveitarstjórnar við síðari umræðu, en fyrri umræða fór fram í sveitarstjórn 9.6.2026.
8. gr. (2.mgr.)
Sveitarstjórn heldur reglulega fundi í skrifstofu sveitarfélagsins annan og fjórða fimmtudag í mánuði, kl. 10:00, nema sveitarstjórn ákveði annað. Þó heldur sveitarstjórn ekki reglulegan fund í júlímánuði.
19. gr.
Skyldur sveitarstjórnarfulltrúa.
Sveitarstjórnarfulltrúa ber skylda til að taka þátt í öllum sveitarstjórnarfundum og fundum í nefndum og ráðum sem hann hefur verið kjörinn til nema lögmæt forföll hamli.
Aðalmönnum og varamönnum í sveitarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum sveitarfélagsins, sem og til annarra trúnaðarstarfa á vegum sveitarfélagsins. Sá sem verið hefur oddviti heilt kjörtímabil eða lengur eða gegnt ákveðnu starfi innan sveitarstjórnar jafnlangan tíma eða lengur getur skorast undan kosningu til þess starfs jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið með höndum. Ósk um undanþágu skal sett fram áður en kjör í viðkomandi nefnd eða trúnaðarstarf fer fram.
Hverjum sveitarstjórnarfulltrúa er skylt að inna af hendi störf sem sveitarstjórn felur honum og varða verkefni sveitarstjórnarinnar.
Sveitarstjórnarfulltrúar skulu gæta trúnaðar um það sem þeir verða áskynja í starfi sínu og leynt á að fara samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.
Sveitarstjórnarfulltrúar skulu í störfum sínum gæta ákvæða laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. 40. gr.
Fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem sveitarfélagið á aðild að.
A. Fulltrúar kjörnir til 4 ára í fastanefndir á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum:
1. Yfirkjörstjórn við forseta-, sveitarstjórnar- og alþingiskosningar auk annara kosninga svo sem þjóðaratkvæðagreiðslur. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 17. gr. kosningalaga nr. 112/2021.
2. Skipulagsnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með málefni sveitarfélagsins er varðar skipulagsmál í samræmi við erindisbréf nefndarinnar og starfar skv. 6. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
3. Fræðslunefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með málefni sveitarfélagsins er varðar fræðslumál í samræmi við erindisbréf nefndarinnar og starfar skv. 4. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008 og skv. 6. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008.
4. Velferðar-, menningar- og tómstundanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með málefni sveitarfélagsins er varðar velferðar-, jafnréttis- og húsnæðismál. Þá fer nefndin með málefni sveitarfélagsins er varðar menningu og tómstundir í samræmi við erindisbréf nefndarinnar. Nefndin fer jafnframt með hlutverk félagsmálanefndar samkvæmt lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga og lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk. Þá starfar nefndin í samræmi við 13. gr. laga um stjórnsýslu jafnréttismála nr. 151/2020. Nefndin fer jafnframt með stjórn og samræmingu húsnæðismála sveitarfélagsins sbr. 6. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998.
5. Fjallskilanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara, sbr. 2. gr. laga um afréttamálefni, fjallskil o.fl. nr. 6/1986. Fjallskilanefnd hefur heimild til fullnaðarákvarðana um skipulag fjallskila í sveitarfélaginu, þ.m.t. að jafna niður gangnadagsverkum, sbr. 29. gr. þessarar samþykktar.
6. Landbúnaðar-, atvinnu- og nýsköpunarnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með málefni sveitarfélagsins er varðar landbúnað, atvinnu og nýsköpun í samræmi við erindisbréf nefndarinnar.
7. Samgöngu-, umhverfis og náttúruverndarnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með málefni sveitarfélagsins er varðar samgöngu- umhverfis- og náttúruverndarmál í samræmi við erindisbréf nefndarinnar og starfar skv. 14. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013.
8. Öldungaráð. Skipað sjö fulltrúum og jafnmörgum til vara í samræmi við 7. gr. laga nr. 125/1999. Ráðið skal vera sveitarstjórn til ráðuneytis um málefni eldri borgara sveitarfélagsins í samræmi við erindisbréf ráðsins.
9. Ungmennaráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Ráðið skal vera sveitarstjórn til ráðuneytis um málefni sem tengjast ungu fólki í samræmi við erindisbréf ráðsins og 11. gr. æskulýðslaga nr. 70/2007.
B. Aðrar stjórnir, fulltrúar og samstarfsnefndir á vegum sveitarfélagsins þar sem sveitarstjórn skipar fulltrúa eða fulltrúar skipaðir af viðkomandi nefndum/ráðum:
1. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Einn aðalmaður og einn varamaður skv. 4. gr. laga sambandsins.
2. Þing SSNE. Þrír aðalmenn og þrír varamenn samkvæmt samþykktum fyrir SSNE.
3. Stjórn SSNE. Einn aðalmaður og einn varamaður samkvæmt samþykktum SSNE.
4. Stjórn Hafnasamlags Norðurlands bs. Einn aðalmaður og einn varamaður skv. lögum um hafnamál nr. 61/2003 og gr. 3.0 í stofnsamningi byggðasamlagsins.
5. Skólanefnd Tónlistarskóla Eyjafjarðar. Einn aðalmaður og einn varamaður skv. 2. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985, sbr. og reglu-gerð um skólann.
6. Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar. Kjósa skal einn fulltrúa í nefndina og einn til vara. Kjörtímabil nefndarinnar er fjögur ár og er hið sama og sveitarstjórna.
7. Framkvæmdaráð vegna þjónustu við fatlað fólk. Einn aðalmaður og einn varamaður í framkvæmdaráð sameiginlegs þjónustusvæðis um þjónustu við fatlað fólk, sbr. samning fimm sveitarfélaga við Eyjafjörð þar að lútandi.
8. Stjórn Minjasafnsins á Akureyri. Einn aðalmaður/varamaður, sbr. 5. gr. stofnskrár safnsins.
9. Stjórn Skipulags- og byggingarfulltrúaembættis Eyjafjarðar bs. Einn aðalmaður og einn varamaður sbr. 4. gr. samþykktar um Skipulags- og byggingarfulltrúaembætti Eyjafjarðar bs.
10. Almannavarnarnefnd í umdæmi lögreglustjórans á Norðurlandi eystra. Einn aðalmaður og einn varamaður.
11. Stjórn Flokkunar Eyjafjarðar ehf. Einn aðalmaður og einn varamaður.
12. Fulltrúaráð EBÍ. Einn aðalmaður og einn til vara samkvæmt samþykktum fyrir Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands.
C. Auk þess tekur sveitarstjórn þátt í kosningu í eftirtaldar nefndir, stjórnir og ráð á sameiginlegum vettvangi sveitarstjórna í Eyjafirði, eftir því sem við á hverju sinni:
1. Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra.
2. Skólanefnd Menntaskólans á Akureyri.
3. Skólanefnd Menntaskólans á Tröllaskaga.
4. Skólanefnd Verkmenntaskólans á Akureyri.
5. Gróðurverndarnefnd.
6. Byggingarnefnd Menntaskólans á Akureyri.
7. Byggingarnefnd Menntaskólans á Tröllaskaga.
8. Byggingarnefnd Verkmenntaskólans á Akureyri.
9. Stjórn Moltu ehf.
10. Málefni fatlaðs fólks. Áheyrnarfulltrúi á fundum Velferðarráðs Akureyrarbæjar þegar til umræðu eru málefni samstarfsverkefnisins.
11. Umdæmisráð barnaverndar. Samkvæmt samningi um rekstur umdæmisráðs landsbyggða skipa aðildarsveitarfélögin fimm manna valnefnd sem fer með umboð sveitarfélaganna til skipunar í umdæmisráð barnaverndar. Skipunartími umdæmisráðs er fimm ár.
12. Barnaverndarþjónusta Norðurlands eystra. Samkvæmt samningi um rekstur barnaverndarþjónustu Norðurlands eystra, sbr. auglýsingu (samningur Akureyrarbæjar, Dalvíkurbyggðar, Eyjafjarðarsveitar, Fjallabyggðar, Grýtubakkahrepps, Hörgársveitar, Langanesbyggðar, Norðurþings, Svalbarðsstrandarhrepps, Tjörneshrepps og Þingeyjarsveitar um Barnaverndarþjónustu Norðurlands eystra og samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá Barnaverndarþjónustu Norðurlands eystra), fer Akureyrarbær með verkefni barnaverndarþjónustu samkvæmt 10.gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 sem ekki eru falin öðrum.
D. Verkefnabundnar nefndir:
Sveitarstjórn getur skipað nefndir til að vinna að afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur sjálfkrafa niður við lok kjörtímabils sveitarstjórnar eða fyrr ef verki nefndarinnar er lokið. Sveitarstjórn getur afturkallað umboð slíkrar nefndar hvenær sem er.
Sveitarstjórn samþykkti tillöguna við síðari umræðu og felur sveitarstjóra að sjá til þess að breytingar öðlist gildistöku.
5. Greið leið ehf. aðalfundur - hluthafafundur fundargerðir - H2606016
Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.
6. Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar - Afgreiðslufundir - 2026 - H2602039
Fundargerðir nr. 114 og 115 lagðar fram til kynningar.
7. Fundargerð SÍS - 2026 - H2602035
Fundargerðir nr. 999 og 1000 lagðar fram til kynningar.
8. Húsnæðisáætlun - 2026 - H2602027
Erindi um stöðu húsnæðisuppbygginga í Hörgársveit frá HMS lagt fram til kynningar. Sveitarstjórn þakkar fyrir erindið og lýsir yfir vilja til samstarfs við HMS m.a. við endurskoðun húsnæðisáætlunar.
9. Flugklasinn Air 66N - H2605016
Erindi um starf Flugklasans lagt fram til kynningar.
10. Fjallskil - umsóknir um upprekstur 2026 - H2606007
Umsókn sem frestað var á síðasta fundi þar sem gögn um beitarþol bárust of seint. Einnig lögð fram fylgigögn vegna umsóknarinnar.
Lögð fram eftirtalin gögn vegna málsins.
a) Arnar Tryggvason frá Þverá/Steinstöðum sækir um upprekstur fyrir 500 fjár á eignarlöndum Þverár og Steinstaða fyrir Agnar Þór Magnússon í Garðshorni á Þelamörk.
b) Tvö erindi frá Ólafi Valssyni dags. 29.5.26 og 3.6.26 þar sem andmælt er að leyfið verði veitt.
c) Svar frá Hörgársveit til Ólafs Valssonar dags 2.6.26
d) Bréf frá Landi og skógum um mat á beitarþoli dags. 8.6.26.
e) Erindi frá Hörgársveit til umsækjanda sent 10.6.26
f) Erindi frá umsækjanda dags. 11.6.26
Sveitarfélaginu hafa borist erindi nokkurra landeigenda um að taka við fé af öðrum innan sveitar til upprekstrar í sitt land. Á fundi sveitarstjórnar þann 9. júní sl. var afgreiðslu umsóknar landeiganda Þverár og Steinstaða um að taka við 500 fjár til upprekstrar frá Agnari Þór Magnússyni í Garðshorni á Þelamörk frestað. Sjálfur hyggst Arnar reka um 150 fjár af eigin bústofni til fjalls.
Við úrvinnslu málsins liggja fyrir andmæli landeiganda Ólafs Valssonar f.h. eigenda Hóla, sem er næsta jörð sunnan við Þverá. Landeigandi telur að ágangur fjár sem rekið er á fjall frá Þverá og Steinsstöðum hafi haft afgerandi áhrif innan jarðarinnar Hóla og fé sem rekið hafi verið þar upp leiti yfir í land Hóla og Hóladals. Telur hann að sá fjöldi fjár sem sótt er um leyfi til að taka við frá Garðshorni sé langt umfram það sem aðrir sæki um í sveitarfélaginu og meira en unnt sé að una við, auk fleiri sjónarmiða.
Arnari Tryggvasyni voru kynnt framkomin sjónarmið eiganda Hóla og gefið færi á að koma að sínum sjónarmiðum. Arnar vísar til fyrirliggjandi jákvæðs mats frá Landi og Skógum um um beitarþol, dags. 8.6.2026. Hann vísar í ákvæði stjórnarskrár um atvinnufrelsi og eignarréttindi um beiðni sína og til aðalskipulags Hörgársveitar um atvinnumál, að verja landbúnaðarstarfsemi. Hann tiltekur að Agnar í Garðshorni hafi ekki aðgang að öðrum beitarlöndum, en hann stundi landbúnað í atvinnuskyni í Garðshorni á Þelamörk hér í sveit, auk fleiri sjónarmiða. Hann segir að samvinna þeirra að þessu leyti sé nauðsynleg fyrir búskap beggja.
Við vinnslu málsins aflaði sveitarfélagið umsagnar frá Landi og Skógi dags. 8.6.2026. Þar kemur m.a. fram að fyrirhuguð beitarnýting sé ekki líkleg til að hafa neikvæð áhrif á ástand lands eða vera í ósamræmi við gildandi viðmið um sjálfbæra nýtingu. Einnig er lagt til að beitarþolið verði endurskoðað að tveimur árum liðnum.
Tillaga:
Að virtum öllum gögnum máls og því að umsókn dags. 13.5.2026, fullnægir að áliti sveitarstjórnar lagaskilyrðum, veitir sveitarstjórn Arnari Tryggvasyni og Hallstekk ehf. heimild fyrir upprekstri fyrir 500 ær með lömbum í landi Þverár og Steinsstaða frá Agnari Þór Magnússyni í Garðshorni sumarið 2026. Tillagan samþykkt samhljóða.
11. Greiðslur vegna vistunar barna - reglur - H2606009
Tillaga að reglum lögð fram til afgreiðslu. Lögð fram tillaga að reglum hörgársveitar um heimgreiðslur. Sveitarstjórn samþykkti nýjar reglur um heimgreiðslur og felur sveitarstjóra að sjá til þess að þær fái góða kynningu.
12. Nemendur úr Hörgársveit - kostnaður - H2507016
Tvær umsóknir um greiðslu námskostnaðar í Tónlistarskóla Akureyrar lagðar fram ásamt áætluðum kennslukostnaði.
Erindi Tónlistarskóla Akureyrar varða:
Umókn um greiðslu námsgjalds fyrir nemenda á grunnskólaaldri fyrir nám á grunnstigi.
Sveitarstjórn hafnaði umsókninni enda er sambærilegt nám í boði í Tónlistarskóla Eyjafjarðar sem Hörgársveit er aðili að.
Umókn um greiðslu námsgjalds fyrir nemenda á framhaldskólaaldri fyrir nám sem aukafag við framhaldsnám.
Sveitarstjórn samþykkti umsóknina.
13. Erindisbréf nefnda og ráða - H2606017
Tillögur að erindisbréfum lagðar fram.
14. Fundaáætlun - 2026 - H2606028
Tillögur lagðar fram. Fundaáætlun samþykkt og verður kynnt.
15. Siðareglur - H2606030
Tillaga fulltrúa D-lista og óháðra lögð fram. Sveitarstjórn samþykkti að endurskoða siðareglur kjörinna fulltrúa Hörgársveitar.
16. Aðkeypt Þjónusta - H2606031
Tillaga fulltrúa D-lista og óháðra lögð fram. Sveitarstjórn samþykkti að vísa því til framkvæmda- og rekstrarnefndar að endurskoða í heild aðkeypta þjónustu sveitarfélagsins.
17. Trúnaðarmál - H2606029
18. Skógarkerfill og eyðing hans - H2606033
Lagt fram erindi frá Sigurði Gíslasyni um eyðingu skógarkerfils.
Sveitarstjórn þakkar fyrir erindið og lýsir sig til jákvæðs samstarfs með aðstoð þjónustumiðstöðvar og vinnuskóla sveitarfélagsins.
19. Laun sveitarstjórnarfulltrúa og nefndarmanna - 2026 - H2606015
Samþykkt var að birta á heimsíðu það hlutfall af þingfararkaupi sem greitt er til sveitarstjórnarfulltrúa og nefndarmanna Hörgársveitar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:42