Sveitarstjórn fundur nr. 203
203. fundur sveitarstjórnar Hörgársveitar haldinn á skrifstofu Hörgársveitar, þriðjudaginn 9. júní 2026 og hófst hann kl. 10:00.
Fundinn sátu:
Sunna María Jónasdóttir, Árni Rúnar Örvarsson, Róbert Fanndal Jósavinsson, Bjarki Freyr Brynjólfsson, Katrín Olsen Björnsdóttir og Snorri Finnlaugsson.
Fundargerð ritaði: Snorri Finnlaugsson.
Sunna María Jónasdóttir setti fundinn, sem sá sveitarstjórnarfulltrúi sem á að baki lengsta setu í sveitarstjórninni og stýrði fundi fram að oddvitakjöri.
Dagskrá:
|
1. |
Sveitarstjórnarkosningar - 16.5.2026 - H2603047 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Lögð fram skýrsla kjörstjórnar um niðurstöður sveitarstjórnarkosninga í Hörgársveit 16.5.2026. Í skýrslu kjörstjórnar Hörgársveitar kom fram að niðurstaða kosninga til sveitarstjórnar í Hörgársveit þann 16. maí 2026 urðu þau að D-listi sjálfstæðismanna og óháðra fékk 174 atkvæði og 2 menn kjörna, G-listi Grósku fékk 241 atkvæði og tvo menn kjörna og H-listi Hörgársveitar fékk 89 atkvæði og einn mann kjörinn. Samkvæmt því voru eftirtalin kjörin i sveitarstjórnina: Sunna María Jónasdóttir af G-lista, Árni Rúnar Örvarsson af D-lista, Róbert Fanndal Jósavinsson af G-lista, Bjarki Brynjólfsson af H-lista og Katrín Olsen Björnsdóttir af D-lista. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
2. |
Málefnasamningur G-lista og H-lista kjörtímabilið 2026-2030 - H2606010 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Málefnasamningur lagður fram. Bókun D-lista: ,,D-listi og óháðir gera athugasemd við að samkomulagið leggur áherslu á lágreista byggð og gott rými milli húsa, en einmitt þessum markmiðum brást meirihlutinn stórkostlega við skipulag Reynihlíðar og Víðihlíðar í Lónsbakkahverfi. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
3. |
Kosning oddvita - 2026 - H2606011 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
Við kosningu oddvita hlaut Sunna María Jónasdóttir 3 atkvæði og Árni Rúnar Örvarsson 2 atkvæði. Samkvæmt því var Sunna María Jónasdóttir lýst réttkjörin oddviti sveitarstjórnar til loka kjörtímabilsins. Nýkjörinn oddviti gekk til dagskrár. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
4. |
Kosning varaoddvita - 2026 - H2606012 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
Við kosningu varaoddvita hlaut Bjarki Freyr Brynjólfsson 3 atkvæði og Árni Rúnar Örvarsson 2 atkvæði. Samkvæmt því var Bjarki Freyr Brynjólfsson lýstur réttkjörinn varaoddviti sveitarstjórnar til loka kjörtímabilsins. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
5. |
Ráðning sveitarstjóra - 2026 - H2606013 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
Ráðningarsamningur lagður fram. Bókun D-lista: D-listi og óháðir hefðu viljað að ráðning sveitarstjóra yrði til 3 ára í stað 4 ára. D-listi og óháðir telja það ekki góða stjórnsýslu að nýr sveitarstjóri taki við samhliða nýrri sveitarstjórn að loknu núverandi kjörtímabili. Snorri Finnlaugsson vék af fundi undir þessum lið. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
6. |
Breytingar á samþykktum um stjórn Hörgársveitar og fundarsköp sveitarstjórnar, fyrri umræða. - H2603002 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Neðanrituð tillaga að breytingum lögð fram til fyrri umræðu: 8. gr. (2.mgr.) Sveitarstjórn heldur reglulega fundi í skrifstofu sveitarfélagsins annan og fjórða fimmtudag í mánuði, kl. 10:00, nema sveitarstjórn ákveði annað. Þó heldur sveitarstjórn ekki reglulegan fund í júlímánuði. 40. gr. Fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem sveitarfélagið á aðild að. A. Fulltrúar kjörnir til 4 ára í fastanefndir á fyrsta eða öðrum fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum: 1. Yfirkjörstjórn við forseta-, sveitarstjórnar- og alþingiskosningar auk annara kosninga svo sem þjóðaratkvæðagreiðslur. Þrír aðalmenn og jafnmargir til vara skv. 17. gr. kosningalaga nr. 112/2021. Kjörstjórn kýs sér oddvita og ritara úr sínum hópi. 2. Skipulagsnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með málefni sveitarfélagsins er varðar skipulagsmál í samræmi við erindisbréf nefndarinnar og starfar skv. 6. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 3. Fræðslunefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með málefni sveitarfélagsins er varðar fræðslumál í samræmi við erindisbréf nefndarinnar og starfar skv. 4. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008 og skv. 6. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008. 4. Velferðarnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með málefni sveitarfélagsins er varðar velferðar-, jafnréttis- og húsnæðismál í samræmi við erindisbréf nefndarinnar og starfar skv. 5. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og 13. gr. laga um stjórnsýslu jafnréttismála nr. 151/2020. Velferðarnefnd fer jafnframt með stjórn og samræmingu húsnæðismála sveitarfélagsins sbr. 6. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998. 5. Fjallskilanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara, sbr. 2. gr. laga um afréttamálefni, fjallskil o.fl. nr. 6/1986. Fjallskilanefnd hefur heimild til fullnaðarákvarðana um skipulag fjallskila í sveitarfélaginu, þ.m.t. að jafna niður gangnadagsverkum, sbr. 29. gr. þessarar samþykktar. 6. Menningar- og tómstundanefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með málefni sveitarfélagsins er varðar menningu- og tómstundir í samræmi við erindisbréf nefndarinnar. 7. Landbúnaðar- atvinnu- og nýsköpunarnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með málefni sveitarfélagsins er varðar landbúnað, atvinnu og nýsköpun í samræmi við erindisbréf nefndarinnar. 8. Samgöngu- umhverfis og náttúruverndarnefnd. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin fer með málefni sveitarfélagsins er varðar samgöngu- umhverfis- og náttúruverndarmál í samræmi við erindisbréf nefndarinnar og starfar skv. 14. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013. 9. Öldungaráð. Skipað sjö fulltrúum og jafnmörgum til vara í samræmi við 7. gr. laga nr. 125/1999. Ráðið skal vera sveitarstjórn til ráðuneytis um málefni eldri borgara sveitarfélagsins í samræmi við erindisbréf ráðsins. 10. Ungmennaráð. Fimm aðalmenn og jafnmargir til vara. Ráðið skal vera sveitarstjórn til ráðuneytis um málefni sem tengjast ungu fólki í samræmi við erindisbréf ráðsins og 11. gr. æskulýðslaga nr. 70/2007. B. Aðrar stjórnir, fulltrúar og samstarfsnefndir á vegum sveitarfélagsins þar sem sveitarstjórn skipar fulltrúa eða fulltrúar skipaðir af viðkomandi nefndum/ráðum: 1. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Einn aðalmaður og einn varamaður skv. 4. gr. laga sambandsins. 2. Þing SSNE. Þrír aðalmenn og þrír varamenn samkvæmt samþykktum fyrir SSNE. 3. Stjórn SSNE. Einn aðalmaður og einn varamaður samkvæmt samþykktum SSNE. 4. Stjórn Hafnasamlags Norðurlands bs. Einn aðalmaður og einn varamaður skv. lögum um hafnamál nr. 61/2003 og gr. 3.0 í stofnsamningi byggðasamlagsins. 5. Skólanefnd Tónlistarskóla Eyjafjarðar. Einn aðalmaður og einn varamaður skv. 2. gr. laga um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla nr. 75/1985, sbr. og reglugerð um skólann. 6. Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar. Kjósa skal einn fulltrúa í nefndina og einn til vara. Kjörtímabil nefndarinnar er fjögur ár og er hið sama og sveitarstjórna. 7. Framkvæmdaráð vegna þjónustu við fatlað fólk. Einn aðalmaður og einn varamaður í framkvæmdaráð sameiginlegs þjónustusvæðis um þjónustu við fatlað fólk, sbr. samning fimm sveitarfélaga við Eyjafjörð þar að lútandi. 8. Stjórn Minjasafnsins á Akureyri. Einn aðalmaður/varamaður, sbr. 5. gr. stofnskrár safnsins. 9. Stjórn Skipulags- og byggingarfulltrúaembættis Eyjafjarðar bs. Einn aðalmaður og einn varamaður sbr. 4. gr. samþykktar um Skipulags- og byggingarfulltrúaembætti Eyjafjarðar bs. 10. Almannavarnarnefnd í umdæmi lögreglustjórans á Norðurlandi eystra. Einn aðalmaður og einn varamaður. 11. Stjórn Flokkunar Eyjafjarðar ehf. Einn aðalmaður og einn varamaður. 12. Fulltrúaráð EBÍ. Einn aðalmaður og einn til vara samkvæmt samþykktum fyrir Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands. C. Auk þess tekur sveitarstjórn þátt í kosningu í eftirtaldar nefndir, stjórnir og ráð á sameiginlegum vettvangi sveitarstjórna í Eyjafirði, eftir því sem við á hverju sinni: 1. Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra. 2. Skólanefnd Menntaskólans á Akureyri. 3. Skólanefnd Menntaskólans á Tröllaskaga. 4. Skólanefnd Verkmenntaskólans á Akureyri. 5. Gróðurverndarnefnd. 6. Byggingarnefnd Menntaskólans á Akureyri. 7. Byggingarnefnd Menntaskólans á Tröllaskaga. 8. Byggingarnefnd Verkmenntaskólans á Akureyri. 9. Stjórn Moltu ehf. 10. Málefni fatlaðs fólks. Áheyrnarfulltrúi á fundum Velferðarráðs Akureyrarbæjar þegar til umræðu eru málefni samstarfsverkefnisins. 11. Umdæmisráð barnaverndar. Samkvæmt samningi um rekstur umdæmisráðs landsbyggða skipa aðildarsveitarfélögin fimm manna valnefnd sem fer með umboð sveitarfélaganna til skipunar í umdæmisráð barnaverndar. Skipunartími umdæmisráðs er fimm ár. 12. Barnaverndarþjónusta Norðurlands eystra. Samkvæmt samningi um rekstur barnaverndarþjónustu Norðurlands eystra, sbr. auglýsingu (samningur Akureyrarbæjar, Dalvíkurbyggðar, Eyjafjarðarsveitar, Fjallabyggðar, Grýtubakkahrepps, Hörgársveitar, Langanesbyggðar, Norðurþings, Svalbarðsstrandarhrepps, Tjörneshrepps og Þingeyjarsveitar um Barnaverndarþjónustu Norðurlands eystra og samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá Barnaverndarþjónustu Norðurlands eystra), fer Akureyrarbær með verkefni barnaverndarþjónustu samkvæmt 10.gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 sem ekki eru falin öðrum. D. Verkefnabundnar nefndir: Sveitarstjórn getur skipað nefndir til að vinna að afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur sjálfkrafa niður við lok kjörtímabils sveitarstjórnar eða fyrr ef verki nefndarinnar er lokið. Sveitarstjórn getur afturkallað umboð slíkrar nefndar hvenær sem er. Breytingartillaga D-lista: D-listi og óháðir gera tillögu um að nefndin sbr. A-7 heiti Atvinnu-og nýsköpunarnefnd með sérstöku Landbúnaðarráði sér til ráðgjafar varðandi málefni landbúnaðarins.
Breytingartillaga D-lista: D-listi og óháðir gera tillögu um að nefndin sbr. A-8 heiti Umhverfis-og náttúruverndarnefnd og að samgöngumálin heyri áfram undir skipulagsnefnd.
Bókun D-lista: ATHUGASEMDIR OG TILLÖGUR VIÐ DRÖG AÐ BREYTINGUM Á SAMÞYKKT UM STJÓRN HÖRGÁRSVEITAR OG FUNDARSKÖP SVEITARSTJÓRNAR
Í 11. gr. núgildandi samþykktar er vísað til þagnarskyldu við birtingu fundargagna og dagskrár, en hvergi í samþykktinni er vísað sérstaklega til persónuverndarlaga eða reglna um meðferð persónuupplýsinga. Lagt er til að í samþykktinni verði skýrt vísað til laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og ábyrgðar kjörinna fulltrúa og starfsmanna við meðferð persónuupplýsinga.
Í 22. gr. núgildandi samþykktar er fjallað um siðareglur sveitarstjórnarfulltrúa, en ekki kemur fram hvert íbúar eða aðrir skulu beina kvörtunum vegna meintra brota eða annmarka starfa kjörinna fulltrúa á siðareglum, trúnaði eða góðum stjórnsýsluháttum. Lagt er til að bætt verði við ákvæði þar sem skýrt kemur fram:
3. Upplestur prentaðs máls Í 16. gr. fundarskapa segir: „Ekki má lesa prentað mál nema oddviti leyfi.“ Ákvæðið á rætur að rekja til eldri fundarskapa og er óskýrt í nútímafundarstjórn þar sem flest gögn eru rafræn. Óljóst er:
Lagt er til að ákvæðið verði fellt brott og í stað þess komi: „Ræðumenn skulu almennt flytja mál sitt með eigin orðum. Oddviti getur takmarkað upplestur skjala eða annarra texta ef hann telur að slíkt torveldi eðlilega framvindu fundar.“
Í 25. gr. er fjallað um þóknanir sveitarstjórnarfulltrúa, en ekki er kveðið á um birtingu þeirra. Lagt er til að bætt verði við ákvæði um að:
Markmið breytingarinnar er að efla gagnsæi og traust í stjórnsýslu sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn samþykkti að vísa tillögunum og breytingartillögum til vinnslu á milli umræðna og vísar þeim til síðari umræðu í sveitarstjórn. Tillögur að erindisbréfum nefnda samkvæmt tillögum að breyttum samþykktum lagðar fram til kynningar. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
7. |
Kosning í nefndir og ráð - 2026-2030 - H2606014 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
Kosið í nefndir og ráð samkvæmt samþykktum um stjórn Hörgársveitar og fundarsköp sveitarstjórnar. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Þá var samþykkt að kjósa í eina verkefnabundna nefnd, sbr.d.lið 40 gr. samþykktar um stjórn Hörgársveitar og fundarsköp sveitarstjórnar.
Bókun D-lista: |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
8. |
Laun sveitarstjórnarfulltrúa og nefndarmanna - 2026 - H2606015 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Lagt fram yfirlit yfir laun sveitarstjórnarfulltrúa og nefndarmanna. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
9. |
Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar - Afgreiðslufundir - 2026 - H2602039 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Fundargerð 113. fundar lögð fram. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
10. |
Fundargerðir ungmennaráð - 2026 - H2602057 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Fundargerð frá 12. maí 2026 lögð fram. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
11. |
Fundargerð stjórnar Samb.ísl.sveitarfélaga - 2026 - H2602035 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Fundargerð frá 998. fundi lögð fram. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
12. |
Fundargerð stjórnar SSNE 2026 - H2602034 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Fundargerð 83. fundar ásamt þinggerð ársþings og niðurstöðuskýrslu um ungmennaþing lögð fram. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
13. |
Skipan stjórnar og þingfulltrúar SSNE - 2026 - H2606004 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Erindið lagt fram. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
14. |
Samband íslenskra sveitarfélaga - landsþing - 2026 - H2602033 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Erindi um skipan landsþingsfulltrúa 2026 - 2030 lagt fram. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
15. |
EBÍ - aðildarsveitarfélög - H2505017 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Erindi um kjör í fulltrúaráð lagt fram. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
16. |
Bergið headspace - 2026 - H2606005 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Drög að samstarfssamningi lögð fram ásamt tillögu að kostnaðarskiptingu. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
17. |
Fjallskil - umsóknir um upprekstur 2026 - H2606007 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Lagður fram listi yfir umsóknir um upprekstur og hagabeit.
Sveitarstjórn samþykkti umsóknir nr. 1-5. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
18. |
Gistileyfi - umsagnarbeiðni - H2606008 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra, umsókn um gistileyfi, umsögn. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
19. |
Greiðslur vegna vistunar barna - reglur - H2606009 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Tillögur að breytingum lagðar fram til kynningar. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
20. |
Greið leið ehf. aðalfundur - hluthafafundur - tillaga um slit - 2026 - H2606016 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Fundarboð lögð fram ásamt ársreikningi 2025 og tillögu að slitum.
Þar sem fundirnir eru á sama tíma og sveitarstjórnarfundur hafði fulltrúi Hörgársveitar ekki tök á að sækja fundina. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:13