Sveitarstjórn fundur nr. 201
201. fundur sveitarstjórnar Hörgársveitar haldinn á skrifstofu Hörgársveitar, fimmtudaginn 30. apríl 2026 og hófst hann kl. 08:30.
Fundinn sátu:
Axel Grettisson oddviti, Ásrún Árnadóttir, Jón Þór Benediktsson, Sunna María Jónasdóttir, Jónas Þór Jónasson og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.
Fundargerð ritaði: Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri.
Dagskrá:
1. Ársreikningur - 2025 - H2604007
Lagður fram ársreikningur fyrir árið 2025 til síðari umræðu en fyrri umræða um ársreikninginn fór fram 15.apríl 2026. Fyrir fundinum lá einnig endurskoðunarskýrsla frá PwC og staðfestingarbréf sem var yfirfarið á fundinum og er oddvita og sveitarstjóra falið að undirrita bréfið. Rúnar Bjarnason og Aðalheiður Eiríksdóttir frá PricewaterhouseCoopers komu á fundinn og fóru yfir ársreikninginn og svöruðu fyrirspurnum um hann. Samkvæmt ársreikningnum urðu rekstrartekjur A hluta alls 1.506,6 millj. kr. og rekstrargjöld 1.420,2 millj. kr. á árinu 2025. Fjármagnsliðir A hluta voru neikvæðir um 62,7 millj. og þar af eru verðbætur kr. 34,2 millj. kr. Heildar rekstrarniðurstaða A hluta á árinu varð því jákvæð upp á 23,7 millj. kr. Hlutdeild í samstarfsverkefnum B-hluta var jákvæð um 25,2 millj. kr. Eigið fé A hluta í árslok er 1.220,7 millj. kr. og jókst um 111,7 millj. frá árinu áður og hefur alls hækkað um 377,5 millj. á kjörtímabilinu. Veltufé frá rekstri A hluta á árinu var 112 millj. kr. eða 7,4% af heildartekjum. Nettó fjárfesting A hluta í varanlegum rekstrarfjármunum var 230,9 millj. kr. á árinu 2025 og er hún að nær öllu leyti vegna endurbyggingar húsnæðis Þelamerkurskóla sem og framkvæmdir við gatna- og stígagerð. Skuldir og skuldbindingar voru í árslok kr. 1.119,5 millj. kr. og hækkuðu á árinu vegna lántöku til fjárfestinga og hækkunar verðbóta vegna verðbólgu. Skuldahlutfall Hörgársveitar A-hluta í árslok 2025 er 74,3% og skuldaviðmið 65,1%.
Sveitarstjórn samþykkti ársreikning Hörgársveitar fyrir árið 2025 og staðfesti hann með undirritun sinni.
2. Fundargerð fræðslunefndar - 27.4.2026 - H2602050
Fundargerð 60. fundar lögð fram.
Fundargerðin er í 14 liðum og þarfnast 3 liðir afgreiðslu sveitarstjórnar.
2.1 Menntastefna Hörgársveitar 2026-2030
Sveitarstjórn samþykkti framlagða menntastefnu Hörgársveitar 2026-2030.
2.2 Skóladagatal Álfasteins 2026-2027
Sveitarstjórn samþykkti skóladagatal Álfasteins 2026-2027 eins og það liggur fyrir.
2.3 Skóladagatal Þelamerkurskóla 2026-2027
Sveitarstjórn samþykkti skóladagatal Þelamerkurskóla 2026-2027 eins og það liggur fyrir.
3. Skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar - 122 - 2604011F
Fundargerðin er í 9 liðum og þarfnast 7 liðir afgreiðslu sveitarstjórnar.
3.1 H2604009 - Lækjarvellir 19 (L240260) - lóðaumsókn
Böggur ehf. kt 471004-3750 sækir um athafnalóðina Lækjarvelli 19 (L240260).
Sveitarstjórn samþykkti að úthluta lóðinni nr. 19 við Lækjarvelli til Böggs ehf kt. 471004-3750.
3.2 H2604021 - Fagranes (L152434) - Afmörkun á lóð fyrir heilsárshús
Tekin fyrir merkjalýsing unnin af Hákoni Jenssyni dags. 02.04.2026 þar sem verið er að stofna 683,3 m² lóð úr landi Fagraness L152434 undir heilsárshús. Sótt er um að nýja lóðin fái staðfangið Fagranes 2. Byggingarreitur undir 200 m² heilsárshús, sem nú er verið að stofna lóð undir, var samþykktur á fundi sveitarstjórnar 27. mars 2025 þegar jákvæð umsögn Minjastofnunar, Vegagerðarinnar og Veðurstofu Íslands lægi fyrir og fylgja umsagnirnar fundargögnum.
Sveitarstjórn samþykkti merkjalýsinguna á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024 og að lóðin fái staðfangið Fagranes 2.
3.3 H2603048 - Hagaskógur 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Erindi dagsett 31.03.2026 þar sem Böggur ehf. sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóðinni Hagaskógur 2, Hörgársveit. Erindinu fylgja uppdrættir eftir Steinmar Heiðar Rögnvaldsson. Samkvæmt deiliskipulagi er heimilt að byggja 280 m² hús á lóðinni en skv. innsendri umsókn fer húsið 12,5 m² yfir nýtingarhlutfall með B-Rými.
Sveitarstjórn samþykkti að þar sem um óverulegt frávik er að ræða, er ekki er talin þörf á breytingu á deiliskipulagi með vísan í ákvæði 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sveitarstjórn samþykkti erindið.
3.4 H2604022 - Umsókn um uppsetningu hraðhleðslustöðva í Hörgársveit
Gefur ekki tilefni til afgreiðslu sveitarstjórnar.
3.5 H2604005 - Umsókn um stöðuleyfi
Gefur ekki tilefni til afgreiðslu sveitarstjórnar.
3.6 H2604010 - Stórabrekka 2 - Umsókn um byggingarheimild
Reynir Örn Hannesson sækir um byggingu 280,8 fm stálgrindaskemmu á jörðinni Stórubrekku 2 (L239272) sbr. meðfylgjandi umsókn og aðaluppdrætti, unna af Magnúsi Val Benediktssyni dags. 10.04.2026.
Sveitarstjórn samþykkti að gera ekki athugasemd við byggingaráformin. Þar sem áformin varða hvorki aðra en málsaðila og sveitarfélagið skal fallið frá grenndarkynningu skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en leita skal umsagnar Minjastofnunar áður en byggingarleyfi verður veitt.
Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri vék af fundi undir þessum lið.
3.7 H2604033 - Hreinsunardagar 2026
Sveitarstjórn tekur undir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og hvetur íbúa til þátttöku í fegrun og hreinsun svæða í nærumhverfinu. Sveitarfélagið tekur þátt í móttöku og förgun og kynni það fyrir íbúum. Hreinsunardagar verði 15.-17. maí 2026.
3.8 H2604030 - Bárulundur 2 - Merkjalýsing fyrir nýja lóð.
Merkjalýsing vegna afmörkunar og hnitsetningu á landspildu innan Bárulundar lögð fram til staðfestingar.
Sveitarstjórn samþykkti að gera ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu og er hún samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024. Jón Þór Benediktsson vék af fundi undir þessum lið.
3.9 H2604034 - Umræður um framkvæmdarleyfi vegna efnistöku
Sveitarstjórn tekur undir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og áréttar til handhafa framkvæmdaleyfa vegna efnistöku að taka fullt tillit til nærumhverfis er varðar flutninga um sveitarfélagið.
4. Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar - Afgreiðslufundur - 2026 - H2602039
Fundargerð afgreiðslufundar SBE frá 111. fundi lögð fram.
5. Fundargerð HNE - H2603033
Fundargerð HNE frá 247. fundi lögð fram.
6. Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar - 2022 - 2026 - H2604023
Fundargerð 19. fundar lögð fram. Fréttatilkynning frá nefndinni lögð fram.
7. Umboðsmaður barna - H2604024
Sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna, bréf lagt fram.
8. Erindi til sveitarstjórnar - skipulagsmál og framkvæmdaleyfi og um störf sveitarstjórnar og starfsemi sveitarfélagsins - H2604006
Tekin eru fyrir, sum að nýju, erindi frá Árna Rúnari Örvarssyni sem borist hafa frá 29.3.2026 til 24.4.2026, en áður hafði hluti þeirra verið kynntur í sveitarstjórn. Alls er um að ræða 86 spurningar í 8 erindum bréfritara, þar sem ekki er aðeins óskað eftir fyrirliggjandi gögnum og upplýsingum, heldur er farið fram á skýringar, afstöðu og pólitískt mat sveitarstjórnar gagnvart margvíslegum málefnum. Þannig er um að ræða umfangsmikil erindi sett fram á breiðum grunni og beint til sveitarstjórnar. Bréfritari afþakkaði fund með fulltrúum sveitarstjórnar þar sem leitast átti við að afmarka erindin. Að áliti oddvita sveitarstjórnar er oft á tíðum erfitt að greina nákvæmlega skil þarna á milli og hvernig skilja beri erindin, sem torveldar úrvinnslu málsins, en unnið er með erindi bréfritara sem eitt mál. Oddviti lagði fyrir sveitarstjórn tillögu að svari sveitarfélagsins til bréfritara sem viðbrögð af hálfu sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn samþykkti eftir umræður að fela oddvita að svara bréfritara í samræmi við tillöguna og umræður á fundinum.
Jónas Þór Jónasson sat hjá við umræður og afgreiðslu málsins.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:50