Sveitarstjórn fundur nr. 200
200. fundur sveitarstjórnar Hörgársveitar haldinn á skrifstofu Hörgársveitar, miðvikudaginn 15. apríl 2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Axel Grettisson oddviti, Ásrún Árnadóttir, Jón Þór Benediktsson, Sunna María Jónasdóttir og Jónas Þór Jónasson.
Fundargerð ritaði: Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri.
Dagskrá:
1. Ársreikningur - 2025 - H2604007
Ársreikningur 2025 - fyrri umræða.
Sveitarstjórn samþykkti að vísa ársreikningi Hörgársveitar fyrir árið 2025 til síðari umræðu.
2. Fundargerð kjörstjórnar - H2602055
Fundargerð lögð fram.
3. Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar - Afgreiðslufundir 109 og 110. - H2602039
Fundargerðir lagðar fram.
4. Fundargerð stjórnar SSNE frá 82. fundi - H2602034
Fundargerð lögð fram
5. Fundargerðir Norðurorku frá 321. og 322. fundi. - H2602024
Fundargerðir lagðar fram.
6. Fundargerð stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga frá 996. fundi. - H2602035
Fundargerð lögð fram.
7. Frumvarp til sveitarstjórnarlaga - H2604004
Greinargerð fyrir fámenn sveitarfélög unnin af Guðjóni Bragasyni lögð fram.
8. Hlaðir L152500 - umsókn um byggingarreit fyrir fjós - H2603039
Eigendur jarðarinnar Hlaða (L152500) sækja um byggingarreit fyrir 1000-2000 fermetra fjósbyggingu sem yrði staðsett vestan við núverandi fjósbyggingar sbr. meðfylgjandi teikningu frá Ívari Ragnarssyni dags. 17.03.2026. Í gildi er deiliskipulag á Hlöðum frá 2010 vegna viðbygginga við fjós og er það meðfylgjandi skipulagsgögnum. Sveitarstjórn samþykkti að kallað verði eftir deiliskipulagsbreytingarblaði þar sem nýji byggingarreiturinn nær inn á skipulagsmörk gildandi deiliskipulags. Deiliskipulagsbreytingin verði síðan grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
9. Bárulundur - breyting á deiliskipulagi - H2604002
Landeigandi Bárulundar L229102 (áður Ytri-Bakki) óskar eftir breytingu á deiliskipulagi Ytri-Bakka sem tók gildi 26.06.2019. Sótt er um nýjan byggingarreit fyrir íbúðarhús með byggingarmagni allt að 200 m2 Einbýlishúsið yrði á sér rotþró og myndi nýta sama aðkomuveg og Bárulundur.
Sveitarstjórn samþykkti erindið sem óverulega deiliskipulagsbreytingu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem erindið varðar ekki hagsmuni annarra en málshefjanda og sveitarfélagsins skal fallið frá grenndarkynningu, sbr. 3. mgr. 44. gr. sömu skipulagslaga. Skipulagsfulltrúa er falið að fullnusta deiliskipulags-breytinguna þegar öll gögn liggja fyrir. Jón Þór Benediktsson vék af fundi undir þessum lið.
10. Deiliskipulag Lónsbakkahverfis - breytingar v. Lónsvegar 1 - 3. - H2603023
Tekin fyrir tillaga að deiliskipulagsbreytingu Lónsbakkahverfis vegna Lónsvegar 1 og 3, unnin af Landslagi dags. 10.04.2026. Breytingin felur m.a. í sér stækkun lóðar, stækkun byggingarreits, aukningu hámarks byggingarmagns og að heimilt verði að byggja 3-4 hæða byggingu á lóðinni Lónsvegur 1. Lóðin Lónsvegur 3 stækkar einnig lítillega og þar yrðu m.a. skilgreindir 2 byggingarreitir í stað eins, byggingarnar yrðu á 2 hæðum í stað 3ja og heildarfjöldi íbúða fækkar.
Sveitarstjórn samþykkti að deiliskipulagsbreytingin verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
11. Loftlagsstefna Norðurlands eystra - H2603022
SSNE óskar eftir að sveitarfélögin á starfssvæði SSNE skipi fulltrúa í samvinnuvettvang sem er ætlað að vinna að framfylgd stefnunnar, vinna saman að fyrirliggjandi markmiðum og taka samtaka skref í aðgerðum.
Sveitarstjórn samþykkti að Anna G Kristjánsdóttir verði fulltrúi Hörgársveitar.
12. Árni Rúnar Örvarsson, erindi um skipulagsmál og framkvæmdaleyfi - H2604006
Lögð fram erindi frá Árna Rúnari Örvarssyni um skipulagsmál og framkvæmdaleyfi í Hörgársveit þar sem óskað er eftir gögnum, upplýsingum og afstöðu sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn samþykkti að oddvita og sveitarstjóra verði falið að vinna málið áfram ásamt starfsmönnum og ráðgjöfum sveitarfélagsins, ræða við bréfritara um afmörkun málsins og erinda hans og svara í samræmi við upplýsingalög og með tíðkanlegum hætti.
13. Trúnaðarmál - H2502026
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30