Sveitarstjórn fundur nr. 199
Mánudaginn 30. mars 2026 kl. 16:00 kom sveitarstjórn Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.
Axel Grettisson oddviti, Ásrún Árnadóttir, Sunna María Jónasdóttir, Jónas Þór Jónasson, Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir (vm) og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.
Fundarritari: Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri
Þetta gerðist:
1. Skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar - 121 - 2603007F
Fundargerðin lögð fram og er hún 10 liðum og þarfnast 9 liðir afgreiðslu sveitarstjórnar.
1.1 H2512007 - Moldhaugaháls - Framkvæmdaleyfi fyrir vegi að lóðum 21-23 og mön
Skútaberg ehf. sótti um framkvæmdaleyfi fyrir vegi að lóðum 21-23 á Moldhaugahálsi. Erindið var tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar 27.01.2026 þar sem afgreiðslu þess var frestað og skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ræða við umsækjendur. Nú liggja fyrir uppfærð gögn og nánari upplýsingar um framkvæmdina.
Sveitarstjórn samþykkti að veitt verði framkvæmdaleyfi samkvæmt samþykktu deiliskipulagi fyrir veg frá vegi að námu og að lóðum 21-23 á Moldhaugahálsi. Lögð er áhersla á að umgengni á svæðinu og ásýnd þess verði góð, sbr. kafla 3.12 í greinargerð deiliskipulagsins. Framkvæmdaleyfi verður ekki gefið út fyrr en skýrsla um stöðu framkvæmda á svæðinu hefur verið afhent skipulags- og byggingarfulltrúa. Framkvæmdaleyfið skal gilda til eins árs.
1.2 H2512006 - Moldhaugaháls - Framkvæmdaleyfi fyrir vegi frá Hringvegi að námu
Skútaberg ehf. sótti um framkvæmdaleyfi fyrir vegi frá Hringvegi að námu á Moldhaugahálsi. Erindið var tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar 27.01.2026 þar sem afgreiðslu þess var frestað og skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ræða við umsækjendur. Nú liggja fyrir uppfærð gögn og nánari upplýsingar um framkvæmdina.
Sveitarstjórn samþykkti að veitt verði framkvæmdaleyfi samkvæmt samþykktu deiliskipulagi fyrir veg frá Hringvegi að námu á Moldhaugahálsi. Bent er á að vegtengingin við Hringveg lendir utan skipulagssvæðis og því mikilvægt að framkvæmdin verði unnin í nánu samráði við Vegagerðina. Framkvæmdaleyfi verði ekki gefið út fyrr en samþykki Vegagerðarinnar liggur fyrir um útfærslu tengingarinnar við Hringveg og skýrsla um stöðu framkvæmda á svæðinu hefur verið afhent skipulags- og byggingarfulltrúa. Lögð er áhersla á að umgengni á svæðinu og ásýnd þess verði góð, sbr. kafla 3.12 í greinargerð deiliskipulagsins. Framkvæmdaleyfið skal gilda til eins árs.
1.3 H2501001 - Skútar L152537 - umsókn um framkvæmdaleyfi - mön við þjóðveg
Skútaberg ehf. sótti um framkvæmdaleyfi fyrir mön við Hringveg á Moldhaugahálsi ásamt vegslóða innan við mönina. Erindið var tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar 27.01.2026 þar sem afgreiðslu þess var frestað og skipulags- og byggingarfulltrúa falið að ræða við umsækjendur. Nú liggja fyrir uppfærð gögn og nánari upplýsingar um framkvæmdina.
Sveitarstjórn samþykkti að veitt verði framkvæmdaleyfi samkvæmt samþykktu deiliskipulagi fyrir mön við Hringveg á Moldhaugahálsi ásamt vegslóða innan við mönina. Hæð jarðvegsmanar skal vera næg til að byrgja innsýn á geymslusvæðið af þjóðvegi og frá íbúðarhúsum í nágrenni svæðisins og trjágróðri komið fyrir eftir því sem við á. Lögð er áhersla á að umgengni á svæðinu og ásýnd þess verði góð, sbr. kafla 3.12 í greinargerð deiliskipulagsins. Framkvæmdaleyfi verður ekki gefið út fyrr en skýrsla um stöðu framkvæmda á svæðinu hefur verið afhent skipulags- og byggingarfulltrúa. Framkvæmdaleyfið skal gilda til eins árs.
1.4 H2603023 - Deiliskipulag Lónsbakkahverfis - breytingar v. Lónsvegar 1 - 3.
Fyrir fundinum liggja hugmyndir að breytingu á deiliskipulagi Lónsbakkahverfis vegna Lónsvegar 1 og 3.
Sveitarstjórn samþykkti að skipulagshönnuði verði falið að vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Lónsbakkahverfis vegna Lónsvegar 1 og 3 í samræmi við umræður á fundinum. Tillagan verði lögð fram á næsta fundi skipulags- og umhverfisnefndar til frekari umfjöllunar.
1.5 H2603015 - Skógarhlíð 35 - stækkun lóðar
Tekið fyrir erindi frá lóðarhöfum Skógarhlíðar 35 (L179890) þar sem sótt er um stækkun lóðarinnar til norðurs um u.þ.b. 4,6 m sbr. meðfylgjandi gögn. Gildandi greinargerð deiliskipulags Lónsbakka fylgir með fundargögnum.
Sveitarstjórn samþykkti að kallað verði eftir deiliskipulagsbreytingarblaði og að erindið verði síðan grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ef ekki berast athugasemdir við grenndarkynningu telst erindið samþykkt. Bent er á að ef lóðarstækkunin verður samþykkt að lokinni grenndarkynningu þarf að láta merkjalýsa lóðina.
1.6 H2603016 - Sólgarður L152369 - stækkun byggingarreits og fyrirhugaðar framkvæmdir
Lóðarhafi Sólgarðs (L152369) sækir um breytingu á deiliskipulagi Hjalteyrar þar sem byggingarreitur lóðarinnar stækkar um 2,5 m til austurs frá miðjuhúsi og til suðurs. Jafnframt er sótt um að fá að hækka lóð og færa bílastæði og gögnguleið nær inngangi á bakhlið húss svo bæta megi aðgengi, öryggi og aðkomu að húsinu. Gildandi deiliskipulag Hjalteyrar fylgir með fundargögnum.
Afgreiðsla nefndarinnar gefur ekki tilefni til bókunar sveitarstjórnar þar sem nefndin óskaði eftir frekari gögnum.
1.7 H2603026 - Hjalteyrarvegur 13-15 - Lóðarstækkun
Fyrir fundinum liggur erindi um stækkun lóða við Hjalteyrargötu 13 og 15 á Hjalteyri. Um er að ræða stækkun sem nemur 10 x 37,8 m, eða 378 m², og er ekki gert ráð fyrir mannvirkjagerð á stækkunarsvæðinu.
Sveitarstjórn samþykkti að hafna erindinu enda samræmist það ekki gildandi deiliskipulagi.
1.8 H2404003 - Breyting á Aðalskipulagi Akureyrarbæjar vegna Blöndulínu 3 - umsagnarbeiðni
Fyrir fundinum liggur umsagnarbeiðni þar sem Akureyrarbær óskar eftir umsögn Hörgársveitar um breytingu á Aðalskipulagi Akureyrarbæjar 2018-2030 vegna Blöndulínu 3. Umsagnarfrestur er til 23.04.2026.
Sveitarstjórn samþykkti að gera ekki athugasemd við auglýsta tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrarbæjar 2018-2030.
1.9 H2503050 - Dalvíkurbyggð: Sandvík, Hauganesi - Umsagnarbeiðni vegna breytingar á ASK (381/2025) og nýtt DSK (383/2025)
Fyrir fundinum liggur umsagnarbeiðni þar sem Dalvíkurbyggð óskar eftir umsögn Hörgársveitar vegna breytingar á aðalskipulagi og nýs deiliskipulags fyrir Sandvík á Hauganesi.
Sveitarstjórn samþykkti að gera ekki athugasemdir við framlagðar aðalskipulagsbreytingar er varðar landnotkun á Hauganesi.
1.10 H2603037 - Skriða umsókn um framkvæmdarleyfi vegna efnistöku E8 - Skipulagsmál
Nesbræður ehf. sækja um framkvæmdaleyfi fyrir hönd landeigenda Skriðu, Skriðuhesta ehf., vegna efnistöku og landmótunar. Umrætt framkvæmdasvæði er 3,2 ha að stærð og er ætlunin er að taka 25.000 m3 af malarefni og flytja svo í það moldarefni og móta sem landbúnaðarland. Framkvæmdasvæðið er á svæði E8 en samkvæmt Aðalskipulagi er heimild fyrir að taka 75.000 m³ af efni á svæðinu. Landeigendur Skriðu eiga rétt á 1/3 af því efni skv. samkomulagi frá 2022 eða 25.000 m³ þessu til viðbótar hafa landeigendur Fornhaga 1 heimilað landeigendum Skriðu, Skriðuhestum ehf. að nýta 1/3 heildarheimildinn alls 25.000 m³ og hefur það efnismagn ekki verið fullnýtt
Sveitarstjórn samþykkti að framkvæmdaleyfi verði veitt fyrir framkvæmdinni í samræmi við umsókn og framlagðar teikningar. Heildarmagn verði 25.000 m3 og til frádráttar er það magn sem búið er að taka. Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja málinu eftir og fullnusta útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 11.gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdarleyfi. Framkvæmdaleyfið verði ekki veitt fyrr en fyrir liggur staðfest heildarmagn sem búið er að taka áður á svæðinu.
2. Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar – afgreiðslufundur H2602039
Fundargerð frá 108. afgreiðslufundi SBE lögð fram.
3. Fundargerð SSNE - H2602034
Fundargerð frá 81. fundi lögð fram.
4. Fundargerð HNE - H2603033
Fundargerð frá 246. fundi lögð fram.
5. Fundargerðir stjórn Sambands Íslenskra sveitarfélaga - H2602035
Fundargerðir frá 994. og 995. fundi lagðar fram.
6. Framtíðarsýn í húsnæðis- og atvinnumálum fatlaðs fólks - H2603040
Skýrsla vinnuhóps um málefni fatlaðs fólks lögð fram.
7. Svæðisráð um strandsvæðaskipulag - H2603042
Ósk um tilnefningu í svæðisráð um strandsvæðisskipulag fyrir Eyjafjörð.
Sveitarstjórn Hörgársveitar leggur til að Sunna María Jónasdóttir verði tilnefnd sem fulltrúi Hörgársveitar í svæðisráðið.
8. Vinnuskóli - 2026 - H2603043
Lagt fram minnisblað og tillaga að launum sumarið 2026.
Lögð fram tillaga að starfsemi vinnuskóla sumarið 2026.
Sveitarstjórn samþykkti að laun í vinnuskóla sumarið 2026 verði 1.709 kr./klst. fyrir börn f. 2012, 1.875 kr./klst. fyrir börn f. 2011 og 2.251 kr./klst. fyrir börn f.2010. Orlof er innifalið.
9. Aðalfundur Norðurorku - 2026 - H2603045
Fundarboð 20.4.2026 lagt fram.
Sveitarstjórn samþykkti að Axel Grettisson verði fulltrúi Hörgársveitar á fundinum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:01