Sveitarstjórn fundur nr. 198

10.03.2026 17:00

Þriðjudaginn 10. mars 2026 kl. 17:00 kom sveitarstjórn Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.
Fundarmenn: Axel Grettisson oddviti, Jón Þór Benediktsson, Ásrún Árnadóttir, Sunna María Jónasdóttir og Jónas Þór Jónasson.
Fundarritari: Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri

Þetta gerðist:

1. Deiliskipulag Lónsbakkahverfis og Hjalteyrar
Framhald umræðu frá síðasta fundi. Ómar Ívarsson skipulagshöfundur mætti til fundar við sveitarstjórn.
Sveitarstjórn samþykkti að vísa til skipulags- og umhverfisnefndar til skoðunar, breytingu á deiliskipulagi Lónsbakkahverfis er varðar Lónsveg 1-3.
Sveitarstjórn samþykkti að akvegur milli Skógarhlíðar og Álfasteins verði víkjandi í deiliskipulagi Lónsbakkahverfis. Skipulagshönnuði verði falið að vinna tillögu í þá veru sem fari í lögbundið afgreiðsluferli.

2. Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar frá 3.3.2026
Fundargerðin lögð fram og er hún 6 liðum og þarfnast 2 liðir afgreiðslu sveitarstjórnar.

a) Í lið 1 erindi frá Verksmiðjunni á Hjalteyri
Fyrir liggja drög að þriggja ára samstarfssamningi milli Verksmiðjunnar á Hjalteyri og Hörgársveitar fyrir árin 2026–2028.
Sveitarstjórn samþykkti framlagðan samstarfssamning.

b) Í lið 2, erindi frá Félagi eldri borgara í Hörgársveit
Félag eldri borgara í Hörgársveit óskar eftir styrk vegna menningarviðburðar á aðalfundi félagsins þriðjudaginn 14. apríl 2026, þar sem fyrirhugað er að fá listamanninn Svavar Knút með tónlistaratriði og fræðsluerindi.
Sveitarstjórn samþykkti erindið.

3. Fundargerð kjörstjórnar frá 24.2.2026
Fundargerðin lögð fram.

4. Fundargerð afgreiðslufundar SBE frá 107. fundi
Fundargerðin lögð fram.

5. Fundargerð stjórnar Norðurorku frá 320. fundi
Fundargerðin lögð fram.

6. Lánasjóður sveitarfélaga - aðalfundarboð
Fundarboð aðalfundar sem verður 20. mars 2026 lagt fram.

7. UMSE – erindi vegna landsmóts UMFÍ 50+
Lagt fram erindi þar sem óskað er eftir styrk til UMSE vegna Landsmóts 50+, sem fram fer á vegum UMSE, UMFÍ og Eyjafjarðarsveitar dagana 26. - 28. júní 2026.
Sveitarstjórn samþykkti að styrkja viðburðinn.

8. Siglingasamband Íslands – áskorun til sveitarstjórna
Lagt fram erindi þar sem skorað er á sveitafélög landsins að leggja aukna og markvissa áherslu á vernd og góða umgengni um strandlengju landsins, tryggja aðgengi almennings að sjónum til útivistar og jafnframt huga sérstaklega að stuðningi við íþróttafélög og starfsemi sem byggir á nýtingu sjávar og strandar.

9. Norðurorka hf. - tillögur að breytingum á samþykktum - drög í vinnslu
Lagðar fram til kynningar tillögur (drög í vinnslu) að breytingum á samþykktum Norðurorku hf.
Sveitarstjórn Hörgársveitar fagnar því að fá drögin til umsagnar.
Sveitarstjórn telur að í 2. grein mætti skýra betur hlutverk Norðurorku sem innviðafyrirtækis sem starfar í þágu íbúa sveitarfélaganna.
Sveitarstjórn er sátt við faglega nálgun varðandi stjórn og hlutverk stjórnar, en telur 21. grein mögulega ganga gegn því sjálfstæði stjórnar og armslengd frá pólitískri stjórnun sem annars er verið að leitast eftir með breytingum samþykktanna.
Að öðru leyti gerir sveitarstjórn ekki athugasemdir við drögin sjálf, en leggur hins vegar áherslu á að minni hluthafar verði áfram með áheyrnarfulltrúa í stjórn svo sem verið hefur. Jafnframt að áheyrnarfulltrúi fái laun fyrir sína fundarsetu sem ekki hefur verið til þessa.
Loks telur sveitarstjórn eðlilegt og fer fram á að minni hluthafar fái beina aðkomu að ferli við val óháðra stjórnarmanna og varamanna þeirra.“

10. Trúnaðarmál

 

Fundi slitið kl. 19:00