Sveitarstjórn fundur nr. 197

25.02.2026 17:00

Miðvikudaginn 25. febrúar 2026 kl. 17:00 kom sveitarstjórn Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.
Fundarmenn: Axel Grettisson oddviti, Jón Þór Benediktsson, Ásrún Árnadóttir, Sunna María Jónasdóttir og Jónas Þór Jónasson.

Fundarritari: Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri

Þetta gerðist:

1. Fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar frá 24.2.2025
Fundargerðin lögð fram og er hún 9 liðum og þarfnast 8 liðir afgreiðslu sveitarstjórnar.
Varamennirnir Jóhanna María Oddsdóttir og Ásta G Hafberg tóku sæti aðalmannanna Ásrúnar Árnadóttur og Jónasar Þórs Jónassonar á fundinum.

a) Í lið 1, breyting á Aðalskipulagi Hörgársveitar vegna Blöndulínu 3 - H2308005
Aðalskipulagsbreyting vegna Blöndulínu 3 var auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og var athugasemdafrestur til 17.01.26. 16 umsagnir bárust á auglýsingatímabilinu og eru þær nú til umfjöllunar sveitarstjórnar.

1. Erindi, sendandi Náttúruverndarstofnun.
Athugasemd: Stofnunin bendir á vernd vistgerða, fuglalíf, jarðmyndanir við Hraun í Öxnadal, sjónræn áhrif og möguleg áhrif efnistöku á bleikjustofna. Leggur áherslu á vöktun og mótvægisaðgerðir.
Afgreiðsla sveitarstjórnar: Í greinargerð og umhverfismati verður fjallað nánar um vistgerðir, fuglalíf, jarðmyndanir og mótvægisaðgerðir. Vísað er til umhverfismats Blöndulínu 3 og gert ráð fyrir vöktun þar sem við á.

2. Erindi, sendandi Vegagerðin norðursvæði
Athugsemd: Gerir ekki athugasemdir, en minnir á leyfisskyldu framkvæmda innan veghelgunarsvæða og samráð vegna þverunar Hringvegar.
Afgreiðsla sveitarstjórnar: Tekið til greina. Í greinargerð er vísað til vegalaga nr. 80/2007 og að allar framkvæmdir innan veghelgunarsvæðis séu háðar leyfi Vegagerðarinnar.

3. Erindi, sendandi Minjastofnun Íslands
Minnt á vernd fornleifa, lagfæringu á hugtakanotkun og að senda stofnuninni hönnunargögn með fyrirvara.
Afgreiðsla sveitarstjórnar: Tekið til greina. Hugtakanotkun verður leiðrétt.

4. Erindi, sendandi Náttúrufræðistofnun Íslands
Athugasemd: Áhersla á vöktun fugla, áhrif á jarðminjar og að nýta niðurstöður umhverfismats.
Afgreiðsla sveitarstjórnar: Tekið til greina. Vöktunaráætlanir og mótvægisaðgerðir byggja á umhverfismati Blöndulínu 3.

5. Erindi, sendandi Fiskistofa
Athugasemd: Bendir á hugsanleg áhrif efnistöku á bleikjustofna og leyfisskyldu framkvæmda við vatn.
Afgreiðsla sveitarstjórnar: Tekið til greina. Í greinargerð og umhverfismatsskýrslu er fjallað um áhrif á vatnshlot og vísað til leyfisskyldu samkvæmt lögum.

6. Erindi, sendandi Landsnet
Athugasemd: Almenn afstaða: Landsnet fagnar því að stefna um 220 kV Blöndulínu 3 sé nú mörkuð í aðalskipulagi Hörgársveitar og telur breytinguna mikilvægt skref í uppbyggingu meginflutningskerfis raforku.
Afgreiðsla sveitarstjórnar: Tekið er undir að breytingin feli í sér mikilvæga stefnumörkun um Blöndulínu 3 í aðalskipulagi Hörgársveitar og er umsögn Landsnets lögð til grundvallar við áframhaldandi útfærslu greinargerðar og skipulagsuppdrátta.
Athugasemd: staða umhverfismats: Bent er á að umhverfismat framkvæmdarinnar hafi verið unnið samkvæmt lögum nr. 111/2021 og að málsmeðferð þess sé lokið. Ekki séu fyrirséðar frekari tilkynningar til Skipulagsstofnunar vegna Blöndulínu 3.
Afgreiðsla sveitarstjórnar: Greinargerð verður uppfærð þannig að skýrt komi fram að málsmeðferð umhverfismats Blöndulínu 3 samkvæmt lögum nr. 111/2021 sé lokið og að ekki séu fyrirséðar frekari tilkynningar vegna framkvæmdarinnar.
Athugasemd: ónákvæmt orðalag í greinargerð: Landsnet bendir á að í greinargerð komi fram orðalag sem gefi til kynna að tilkynna þurfi framkvæmdina til Skipulagsstofnunar, sem sé ekki rétt þar sem umhverfismatið sé þegar lokið.
Afgreiðsla sveitarstjórnar: Orðalag í inngangi og öðrum viðeigandi köflum greinargerðar verður lagað til samræmis við framangreint og ónákvæmar eða villandi tilvísanir felldar brott.
Athugasemd: staða framkvæmda (Hólasandslína 3): Í greinargerð sé fjallað um uppsetningu Hólasandslínu 3, en Landsnet bendir á að framkvæmdum við þá línu sé lokið og hún komin í rekstur.
Afgreiðsla sveitarstjórnar: Umfjöllun um Hólasandslínu 3 verður leiðrétt þannig að fram komi að framkvæmdum sé lokið og línan komin í rekstur.
Athugasemd: deiliskipulög innan breytingarsvæðis: Bent er á að í töflu um deiliskipulög sé vísað til svæða sem ekki séu á þeirri línuleið Blöndulínu 3 sem nú er kynnt, og að þarfnast þau því ekki breytinga.
Afgreiðsla sveitarstjórnar: Tafla og umfjöllun um deiliskipulög innan breytingarsvæðis verður endurskoðuð og leiðrétt þannig að einungis sé vísað til þeirra skipulagssvæða sem raunverulega kunna að verða fyrir áhrifum af fyrirhugaðri legu Blöndulínu 3.
Athugasemd: kerfisáætlun og tímaáætlanir: Landsnet bendir á að vísað sé til eldri kerfisáætlunar og að tímaáætlanir framkvæmdarinnar hafi breyst frá því sem greint er frá í greinargerð.
Afgreiðsla sveitarstjórnar: Greinargerð verður uppfærð með vísan til gildandi kerfisáætlunar Landsnets og breyttra tímaáætlana framkvæmdarinnar.
Athugasemd: Rangárvallalína 1: Bent er á að Rangárvallalína 1 sé áætluð til niðurtöku eftir að Blöndulína 3 hefur náð öruggum rekstri og æskilegt sé að það komi fram í aðalskipulagi.
Afgreiðsla sveitarstjórnar: Í aðalskipulagi og greinargerð verður skýrt tekið fram að Rangárvallalína 1 sé víkjandi mannvirki og stefnt að hún verði tekin niður innan þriggja ára að uppfylltum skilyrðum um öruggan rekstur Blöndulínu 3.
Athugasemd: helgunarsvæði loftlínu: Landsnet leggur áherslu á að helgunarsvæði Blöndulínu 3 sé skilgreint í aðalskipulagi í samræmi við fyrirliggjandi útreikninga (41 - 61,5 m), fremur en almenn viðmið (65-85 m).
Afgreiðsla sveitarstjórnar: Helgunarsvæði Blöndulínu 3 verður skilgreint í aðalskipulagi í samræmi við fyrirliggjandi útreikninga Landsnets (41 - 61,5 m), með skýrum ákvæðum um byggingarbann og takmarkanir á landnotkun innan svæðisins.
Athugasemd - víðerni: Bent er á að umfjöllun um áhrif á víðerni í greinargerð taki til svæða sem ekki séu á þeirri línuleið sem breyting aðalskipulagsins nær til.
Afgreiðsla sveitarstjórnar: Umfjöllun um áhrif á víðerni verður endurskoðuð þannig að hún taki meðal annars til þeirrar línuleiðar Blöndulínu 3 sem breyting aðalskipulagsins nær til.
Ekki eru gerðar athugasemdir við auglýsta skipulagstillögu í erindum sem bárust frá Sveitarfélaginu Skagafirði, Dalvíkurbyggð, Veðurstofu Íslands, RARIK, Norðurorku, Akureyrarbæ, Eyjafjarðarsveit, Veitum Dalvíkurbyggðar, Sverri Brynjari Sverrissyni (Ási), Heilbrigðiseftirliti Norðurlands Eystra og Ingva Rúnari Guðmundssyni.
Sveitarstjórn samþykkti að auglýstri aðalskipulagstillögu verði breytt eins og fram kemur í afgreiðslu sveitarstjórnar á athugasemdum og samþykkti svo breytta skipulagstillögu skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa er falið að fullnusta gildistöku skipulagsins þegar uppfærð gögn berast.
Varamennirnir Jóhanna María Oddsdóttir og Ásta G Hafberg véku af fundi og tóku aðalmennirnir Ásrún Árnadóttir og Jónas Þór Jónasson sæti á fundinum.

b) Í lið 2, Árskógsvirkjun Þorvaldsdal - umsagnarbeiðni vegna deiliskipulags - H2602008
Dalvíkurbyggð óskar umsagnar sveitarfélagsins um nýtt deiliskipulag fyrir vatnsaflsvirkjun í Þorvaldsdal sem er í auglýsingu skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Umsagnarfrestur var til 24. febrúar 2026.
Sveitarstjórn samþykkti að gera ekki athugasemdir við deiliskipulagstillöguna, en bendir á nálægð við sveitarfélagamörk Hörgársveitar í Þorvaldsdal.

c) Í lið 4, Lónsvegur - framkvæmdaleyfisumsókn vegna lagningar dreifikerfis - H2602011
Norðurorka hf. sækir um framkvæmdaleyfi vegna lagningar dreifikerfis hita-, vatns- og fráveitu sunnan Lónsvegar fyrir lóðirnar Lónsveg 1-11 sbr. meðfylgjandi yfirlits- og afstöðumynd.
Sveitarstjórn samþykkti að framkvæmdaleyfi verði veitt fyrir framkvæmdinni í samræmi við umsókn og framlagðar teikningar. Lögð er áhersla á að umferðaröryggi verði tryggt á framkvæmdatíma og á góðan frágang að framkvæmdum loknum. Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja málinu eftir og fullnusta útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 11. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi.

d) Í lið 5, Dvergasteinn lóð L178783 - beiðni um uppsetningu auglýsingaskjás - H2602018
Eik fasteignafélag hf. sækir um leyfi fyrir uppsetningu LED-auglýsingaskjás á norð-vesturhorni lóðarinnar Dvergasteins lóð á Lónsbakka skv. meðf. gögnum frá Kollgátu dags. 10.02.26
Sveitarstjórn samþykkti að hafna erindinu.

e) Í lið 6, Björg 2 L219557 - breyting á aðalskipulagi og nýtt deiliskipulag vegna efnisnámu - H2602021
Bjargarnáma ehf. sækir um heimild til breytingar á aðalskipulagi Hörgársveitar og vinnslu nýs deiliskipulags vegna stækkunar efnisnámu að Björgum 2. Meðfylgjandi er skipulagslýsing, unnnin af Lilium teiknistofu dags. 06.01.2026.
Sveitarstjórn samþykkti að hafna erindinu.

f) Í lið 7, skógrækt í landi Fagraness í Öxnadal, nr. 0088.2026 Tilkynning um framkvæmd - Umsagnarbeiðni - H2601012
Skipulagsstofnun óskar umsagnar Hörgársveitar um tilkynningarskylda framkvæmd vegna skógræktar í landi Fagraness í Öxnadal. Skipulagsstofnun metur hvort framkvæmdin skuli háð umhverfismati og er meðfylgjandi umsagnarbeiðni og greinargerð framkvæmdaraðila.
Sveitarstjórn samþykkti að mæla með því að umhverfismat fari fram.

g) Í lið 8, Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2025-2037 - umsagnarbeiðni - H2506007
Eyjafjarðarsveit óskar umsagnar Hörgársveitar um vinnslutillögu að endurskoðuðu Aðalskipulagi sveitarfélagsins sem gildir frá 2025-2037 og er umsagnarfrestur til 5. mars nk.

Sveitarstjórn samþykkti að gera ekki athugasemdir við vinnslutillögu Aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar.

h) Í lið 9, Hagalaut – áf. 4 í Glæsibæ - beiðni um breytingu á Aðalskipulagi - H2602046
Landeigendur Glæsibæjar óska eftir því að 4. áfanga íbúðarbyggðar í Glæsibæ, Hagalaut, verði vísað í yfirstandandi endurskoðun Aðalskipulags Hörgársveitar sbr. meðfylgjandi erindi dags. 19.02.26.

Sveitarstjórn samþykkti að þar sem yfirstandandi endurskoðun Aðalskipulagsins er langt komin telur sveitarstjórn að ekki sé hægt að vísa erindinu þangað á þessu stigi máls. Sveitarstjórn telur jafnframt að skoða þurfi betur allar hliðar máls áður en ákvörðun er tekin um að hefja frekari skipulagsvinnu í landi Glæsibæjar.

2. Fundargerð fræðslunefndar frá 10.2.2026
Fundargerðin lögð fram og er hún 11 liðum og þarfnast enginn liður afgreiðslu sveitarstjórnar.

3. Fundargerðir afgreiðslufunda SBE frá 105. og 106. fundi
Fundargerðirnar lagðar fram.

4. Fundargerð stjórnar SSNE frá 80. fundi
Fundargerðin lögð fram.

5. Fundargerðir stjórnar Norðurorku frá 317. og 318. fundi
Fundargerðirnar lagðar fram.

6. Fundargerðir stjórnar Samb.ísl.sveitarfélaga frá 992. og 993. fundi
Fundargerðirnar lagðar fram.

7. Samb. ísl. sveitarfélaga, landsþing 2026
Lagt fram erindi þar sem kynnt er að landsþing fari fram á Akureyri 23.- 25.sept. 2026

8. Húsnæðisáætlun Hörgársveitar 2026
Lögð fram tillaga að húsnæðisáætlun til umræðu og afgreiðslu, en tillagan hefur verið yfirfarin af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Sveitarstjórn samþykkti húsnæðisáætlunina eins og hún liggur fyrir.

9. Breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir
Lögð fram erindi frá HNE og umsögn SSNE vegna málsins.
Sveitarstjórn Hörgársveitar lýsir yfir áhyggjum sínum varðandi fyrirhugaðar breytingar og hvetur til þess að samráð verði aukið við sveitarfélög landsins um þær.

10. Lánasjóður sveitarfélaga, framboð til stjórnar
Lagt fram erindi þar sem auglýst er eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs Sveitarfélaga.

11. Atlantsflug ehf, erindi vegna sjúkraþyrlu
Lagt fram erindi varðandi þingsályktunartillögu um staðsetningu þyrlu Landhelgisgæslunnar.

12. Þelamerkurskóli, endurbygging heimavistarálmu
Lagður fram verksamningur við Tréverk ehf. um vinnu við íbúðarhluta endurbyggingar sem aðalverktaki í því verki. Samningnum fylgir tilboðsskrá dags. 10.02.2026.
Sveitarstjórn samþykkti samninginn.

13. Akureyrarbær, drög að ráðgjafasamningi um velferðar-, fræðslu- og frístundaþjónustu, síðari umræða
Lögð fram drög til síðari umræðu eftir yfirferð frá fyrri umræðu. Ljóst er að samningurinn leiðir til umtalsverðs kostnaðarauka í málaflokkunum en umfang þjónustunnar er einnig töluvert meira en í fyrri samningi og aðilar sammála um að með nýjum samningi hefur að fullu verið tekið tillit til þeirra breytinga á þjónustu sem á milli þeirra hefur orðið.
Sveitarstjórn Hörgársveitar samþykkti samninginn og er sveitarstjóra falið að skrifa undir hann fyrir hönd sveitarfélagsins.

14. Deiliskipulag Lónsbakkahverfis
Framhald umræðu frá síðasta fundi.

15. Deiliskipulag Hjalteyrar
Framhald umræðu frá síðasta fundi.

16. Steinstaðir II, erindi v. ofanflóðahættu
Lagt fram erindi varðandi ofanflóðahættu og ofanflóðavarnir.
Ásrún Árnadóttir vék af fundi undir þessum lið.

 

Fundi slitið kl. 19:55