Sveitarstjórn fundur nr. 196
Þriðjudaginn 27. janúar 2026 kl. 17:00 kom sveitarstjórn Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.
Fundarmenn: Axel Grettisson oddviti, Jón Þór Benediktsson, Ásrún Árnadóttir, Sunna María Jónasdóttir og Jónas Þór Jónasson.
Fundarritari: Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri
Þetta gerðist:
1. Deiliskipulag Lónsbakkahverfis og Hjalteyrar
Framhald umræðu um framtíðar skipulag. Ómar Ívarsson kom til fundar við sveitarstjórn.
2. Fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar frá 23.1.2025
Fundargerðin lögð fram og er hún 15 liðum og þarfnast 13 liðir afgreiðslu sveitarstjórnar.
a) Í lið 1, H2305001 - Aðalskipulag Hörgársveitar endurskoðun
Vinnslutillaga vegna endurskoðunar Aðalskipulags Hörgársveitar var kynnt skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og var athugasemdafrestur til 22.01.26. 25 umsagnir bárust á kynningartímabilinu. Sveitarstjórn fór yfir umsagnir og athugasemdir sem teknar höfðu verið saman af skipulagshönnuði og nefndinni.
Sveitarstjórn samþykkti að skipulagshönnuði verði falið að hafa hliðsjón af innkomnum umsögnum við gerð aðalskipulagstillögu og að hún verði síðan auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
b) Í lið 3, H2410010 - Hraun í Öxnadal L152440 - nýtt deiliskipulag
Deiliskipulagstillaga fyrir Hraun í Öxnadal var kynnt skv. 4. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og var athugasemdafrestur til 07.01.26. 7 umsagnir bárust.
Sveitarstjórn samþykkti að skipulagshönnuði verði falið að hafa hliðsjón af innkomnum umsögnum við gerð skipulagstillögu. Bent er á umsögn Minjastofnunar um að skráning húsa og mannvirkja á svæðinu þurfi að liggja fyrir áður en skipulagið verði auglýst og á athugasemd stofnunarinnar um mikilvægi þess að færa þurfi bílastæðið út fyrir heimatúnið. Einnig er bent á umsögn Vegagerðarinnar um tengingu þjónustuvegar við veg að bílastæði. Deiliskipulagstillagan verði síðan auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar uppfærð gögn hafa borist.
c) Í lið 4. H2512009 - Lónsbakki - beiðni um breytingu á aðal- og deiliskipulagi
Eik fasteignafélag ehf. óskar álits nefndarinnar um beiðni um breytingu á aðal- og deiliskipulagi Lónsbakka fyrir lóðirnar Lónsbakka (L152555) og Dvergastein lóð (L178783). Umræddar lóðir eru verslunar- og þjónustulóðir í gildandi deiliskipulagi en óskað er eftir því að fá að breyta þeim í iðnaðar- og athafnasvæði.
Sveitarstjórn samþykkti að skilgreiningu lóðanna verði breytt í athafnasvæði í yfirstandandi endurskoðun Aðalskipulags Hörgársveitar.
d) Í lið 5, H2512006 - Moldhaugaháls - Framkvæmdaleyfi fyrir vegi frá Hringvegi að námu
Skútaberg ehf. sækir um framkvæmdaleyfi til að byggja veg frá hringvegi og inn í námu á Moldhaugahálsi en vegurinn verður staðsettur skv. samþykktu deiliskipulagi. Gatnamót við hringveg verða skv. tillögu Vegagerðarinnar og verða gerð í samráði við stofnunina. Áætlaður framkvæmdatími er 1 ár.
Sveitarstjórn samþykkti að erindinu verði frestað og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að ræða við umsækjendur.
e) Í lið 6, H2512007- Moldhaugaháls - Framkvæmdaleyfi fyrir vegi að lóðum 21-23 og mön
Skútaberg ehf. sækir um framkvæmdaleyfi til að gera veg frá vegi að námu og að lóðum 21-23 á Moldhaugahálsi en vegurinn yrði staðsettur skv. samþykktu deiliskipulagi. Áætlaður framkvæmdatími er eitt ár,
Sveitarstjórn samþykkti að erindinu verði frestað og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að ræða við umsækjendur.
f) Í lið 7, H2512008 - Moldhaugaháls - Framkvæmdaleyfi fyrir mön við Hringveg
Skútaberg ehf. sækir um framkvæmdaleyfi fyrir mön við hringveginn á Moldhaugahálsi ásamt vegslóða innan við mönina en mönin verður staðsett skv. samþykktu deiliskipulagi. Áætlaður framkvæmdatími er 2 ár.
Sveitarstjórn samþykkti að að erindinu verði frestað og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að ræða við umsækjendur.
g) Í lið 8, H2512010 - Spónsgerði 2 (L239616) - umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku
Finnur ehf. sækir um framkvæmdaleyfi til efnistöku á 2,49 ha svæði í landi Spóngerðis 2 (L239616). Ætlunin er að taka um 49.500 rúmmetra af efni.
Sveitarstjórn bendir á að í vinnslu er endurskoðun Aðalskipulags Hörgársveitar og að skilgreina þurfi nýtt efnistökusvæði vegna framkvæmdarinnar. Sveitarstjórn samþykkti að umsókn um framkvæmdaleyfi verði tekin fyrir þegar yfirstandandi endurskoðun Aðalskipulags lýkur.
h) Í lið 9, H2601007 - Skriða (L152409) - umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku og landmótunar
Nesbræður ehf. sækja um framkvæmdaleyfi fyrir hönd landeigenda Skriðu, Skriðuhesta ehf., vegna efnistöku og landmótunar. Umrætt framkvæmdasvæði er 3,2 ha að stærð og er ætlunin er að taka 12.500 m3 af malarefni og flytja svo í það moldarefni og móta sem landbúnaðarland.
Framkvæmdasvæðið er á svæði E8 en samkvæmt Aðalskipulagi er heimild fyrir að taka 75.000 m³ af efni á svæðinu. Landeigendur Skriðu eiga rétt á 1/3 af því efni skv. samkomulagi frá 2022 eða 25.000 m³ og hefur það efnismagn ekki verið fullnýtt.
Sveitarstjórn samþykkti að framkvæmdaleyfi verði veitt fyrir framkvæmdinni í samræmi við umsókn og framlagðar teikningar. Heildarmagn verði 25.000 m3 og til frádráttar er það magn sem búið er að taka. Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja málinu eftir og fullnusta útgáfu framkvæmdaleyfis skv. 11.gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdarleyfi.
i) Í lið 10, H2601001 - Ytri-Bægisá land (L189094) - umsókn um breytt staðfang
Eigendur Ytri-Bægisá land(L189094) sækja um að staðfangi fasteignar verði breytt í Ytri-Hamar.
Sveitarstjórn samþykkti að erindið verði grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulags-laga nr. 123/2010. Ef ekki berast athugasemdir við grenndarkynningu telst erindið samþykkt.
j) Í lið 11, H2601003 - Heiðarfjall L239113 - merkjalýsing um afmörkun lóðarinnar Öxnadalsheiði L172592
Fyrir fundinum liggur merkjalýsing dags. 06.01.2026 þar sem er verið að hnitsetja lóðina Öxnadalsheiði (L172592) en henni er skipt upp úr þjóðlendunni Heiðarfjalli (L239113). Um er að ræða lóð undir radíóstöð. Jafnframt er óskað eftir að lóðin fái staðfangið Öxnadalsheiði fjarskiptalóð.
Sveitarstjórn samþykkti að ekki verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024 og að lóðin fái staðfangið Öxnadalsheiði fjarskiptalóð.
k) Í lið 12, H2601004 - Stórabrekka L152349 - merkjalýsing vegna afmörkunar landspildu
Eigendur jarðarinnar Stórubrekku (L152349) sækja um afmörkun landspildu úr landi sínu sem ætlunin er að selja til eigenda Syðra-Brekkukots og sameina hana þeirra landeign.
Sveitarstjórn samþykkti að gera ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu og samþykkti hana á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024.
Axel Grettisson vék af fundi undir þessum lið.
l) Í lið 13, H2601006 - Hagaflöt 14 (L239202) - beiðni um breytingu á deiliskipulagi
Lóðarhafi Hagaflatar 14 (L239202) óskar eftir breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga Glæsibæjar þar sem byggingarreiturinn stækkar um 1 m til norðurs og 2 m til suðurs. Þá eru lóðanúmer skipulagsuppdráttar uppfærð til samræmis við landeignaskrá HMS.
Sveitarstjórn samþykkti að erindið verði grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ef ekki berast athugasemdir við grenndarkynningu telst erindið samþykkt.
m) Í lið 15, H2601008 - Brekkuhús 24, Halteyri - Umsókn um breytingu á deiliskipulagi
Fyrir fundi liggur erindi þar sem Haraldur S. Árnason f.h. eiganda óskar eftir leyfi til að byggja viðbyggingu við núverandi hús að Brekkuhúsum 24, Hjalteyri. Um er að ræða byggingu á einni hæð er tengist efri hæð núverandi húss. Viðbygging yrði um 50m2 og mesta hæð þaks um 4,35m frá gólfi 1. hæðar. meðfylgjandi er teikning eftir Harald S. Árnason
Sveitarstjórn samþykkti að gerð verði breyting á deiliskipulagi til samræmis við erindið. Er breytingin óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og er erindinu vísað í grenndarkynningu skv. 44. gr. laganna.
3. Fundargerð stjórnar SSNE frá 79. fundi
Fundargerðin lögð fram.
4. SSNE, drög að loftslagsstefnu Norðurlands eystra
Lögð fram drög að loftslagsstefnu Norðurlands eystra.
Sveitarstjórn Hörgársveitar lýsir yfir ánægju sinni með drögin og gerir ekki athugasemdir við þau.
5. Trúnaðarmál
Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 19:20