Sveitarstjórn fundur nr. 194
Fimmtudaginn 11. desember 2025 kl. 16:00 kom sveitarstjórn Hörgársveitar saman til fundar í Bitrugerði.
Fundarmenn: Axel Grettisson oddviti, Jón Þór Benediktsson, Ásrún Árnadóttir, Sunna María Jónasdóttir og Jónas Þór Jónasson.
Fundarritari: Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri
Þetta gerðist:
1. Fundargerð Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra frá 244. fundi
Fundargerðin lögð fram.
2. Fundargerð stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga frá 989. fundi
Fundargerðin lögð fram.
3. Málaflokkur fatlaðra, ársskýrsla 2024
Lögð fram ársskýrsla þjónustusvæðis um málefni fatlaðra 2024.
4. Akureyrarbær, drög að ráðgjafasamningi um velferðar-, fræðslu- og frístundaþjónustu, fyrri umræða
Drögin lögð fram ásamt skjali um kostnaðargrunn til skiptingar og minnisblaði um samninginn.
Sveitarstjórn samþykkti að vísa drögunum til umfjöllunar í fræðslunefnd og félagsmála- og jafnréttisnefnd. Jafnframt er sveitarstjóra falið, í samstarfi við önnur sveitarfélög, að rýna kostnaðarliði samningsdraganna þar sem hlutfallsleg aukning frá núgildandi samningi er umtalsverð. Samningsdrögin verða aftur á dagskrá sveitarstjórnar þegar nefndir og sveitarstjóri hafa lokið yfirferð.
5. Fjárhagsáætlun Hörgársveitar 2026-2029, síðari umræða
Fjárhagsáætlun aðalsjóðs, eignasjóðs og veitna fyrir árin 2026-2029 var tekin til síðari umræðu. Lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun þessara ára. Þá var lögð fram greinargerð sveitarstjóra varðandi tillögu að fjárhagsáætlun.
Sveitarstjórn samþykkti framlagða tillögu að fjárhagsáætlun sveitarsjóðs og stofnana hans fyrir árin 2026-2029.
Fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir að á árinu 2026 verði rekstrartekjur A-hluta 1.539 millj. kr., að heildarrekstrarkostnaður verði 1.493 millj. kr. Heildar rekstrarafgangur verði því 46 millj.kr.
Veltufé frá rekstri verði 144 millj. kr.
Áætlað er að til framkvæmda og annarra eignabreytinga á árinu verði varið 159,5 millj. kr. Þar bera hæst framkvæmdir við endurbyggingu heimavistarálmu Þelamerkurskóla. Einnig eru ráðgerðar framkvæmdir við göngu- og hjólastíg og gatnagerð að Lækjarvöllum, ásamt fleiri smærri verkefnum. Áætlað er að gatnagerðargjöld og endurgreiðslur vegna fjárfestinga nemi 34,5 millj. kr. og því er áætlað að 125 millj. króna fari í fjárfestingar nettó á árinu 2026.
Ný lántaka er áætluð 85 millj. kr. á árinu 2026 og að afborganir langtímalána verði 86 milljónir.
Þá er áætlað að handbært fé í árslok 2025 verði 38 millj. kr.
Fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 gerir ráð fyrir að afgangur af rekstri verði 66 millj. kr., á árinu 2028 verði hann 76 millj. kr. og 83 millj. kr. á árinu 2029.
6. Velferðarsjóður Eyjafjarðarsvæðis, erindi
Erindið lagt fram en það er beiðni um styrk frá sveitarfélaginu vegna jólaaðstoðar á vegum sjóðsins.
Sveitarstjórn samþykkti að styrkja jólaaðstoðina um kr. 100.000,-
Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 17:45