Sveitarstjórn fundur nr. 193

28.11.2025 09:30

Föstudaginn 28. nóvember 2025 kl. 09:30 kom sveitarstjórn Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.
Fundarmenn: Axel Grettisson oddviti, Jón Þór Benediktsson, Ásrún Árnadóttir, Sunna María Jónasdóttir og Jónas Þór Jónasson.
Fundarritari: Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri

Þetta gerðist:

1. Fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar frá 27.11.2025
Fundargerðin er í 5 liðum og þarfnast 4 liðir afgreiðslu sveitarstjórnar.

a) Í lið 1, Aðalskipulag Hörgársveitar – endurskoðun (H2305001)
Skipulagshöfundur Aðalskipulags Óskar Örn Gunnarsson mætti á fund skipulags- og umhverfisnefndar og fór yfir stöðuna á endurskoðun á Aðalskipulagi Hörgársveitar. Lögð fram vinnslutillaga að endurskoðun á Aðalskipulagi Hörgársveitar 2024-2044. Einnig lögð fram skýrsla frá Verkís um efnistökusvæði í Hörgársveit.
Sveitarstjórn samþykkti að vinnslutillagan verði kynnt skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Haldið verði opið hús í janúar 2026 til kynningar á vinnslutillögunni.

b) í lið 2, Glæsibær – næstu áfangar IV-VII (H2511044)
Lagt fram erindi frá GLB17 ehf. þar sem óskað er eftir að hafin verði vinna við breytingu á aðalskipulagi vegna Glæsibæjar. Breytingin verði unnin í samræmi við meðfylgjandi kynningargögn. Jafnframt er óskað eftir heimild til að vinna að gerð deiliskipulags fyrir áfanga fjögur samhliða vinnu við aðalskipulagsbreytinguna.
Sveitarstjórn samþykkti að vísa erindinu til frekari skoðunar m.a. með tilliti til þess að mögulega verði byggðakjarninn formlegt þéttbýli. Í því samhengi verði skoðuð réttindi og skyldur sem því fylgja, sem og lausnir varðandi samgöngur, veitur ofl.

c) Í lið 3, Garðshorn Kræklingahlíð – umsókn um byggingarheimild (H2511041)
Lagt fram erindi frá landeiganda þar sem óskað er eftir að reisa viðbyggingu við íbúðarhúsið. Með erindinu fylgja teikningar frá HSÁ Teiknistofu.
Sveitarstjórn samþykkti að erindið verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mg. 44 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Heimilt verði að stytta grenndarkynningartímabil ef hagsmunaaðilar lýsa því yfir skriflega að ekki sé gerð athugasemd við áformin. Erindið teljist samþykkt ef ekki berast andmæli á grenndarkynningartímabilinu.

d) Í lið 4, Hraun í Öxnadal L152440 – nýtt deiliskipulag (H2410010)
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Hraun í Öxnadal, unnin af Landslagi ehf. Tillagan tekur til uppbyggingar gestastofu í núverandi útihúsum, endurbóta á aðkomu, bílastæðum, gönguleiðum og varðveislu fornleifa á svæðinu.
Sveitarstjórn samþykkti að deiliskipulagstillaga á vinnslustigi verði kynnt skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

2. Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar frá 18.11.2025
Fundargerðin er í 6 liðum og þarfnast 2 liðir afgreiðslu sveitarstjórnar.

a) Í lið 2, erindi frá foreldrafélagi Þelamerkurskóla
Foreldrafélag Þelamerkurskóla sækir um styrk að upphæð allt að 400.000 kr. til að bjóða nemendum í ÞMS á menningartengda viðburði skólaárið 2025-26.
Sveitarstjórn samþykkti að veittur verði styrkur kr. 400.000 til að fara með nemendur skólans á menningarviðburði.

b) Í lið 5, starfsemi Drangans, félagsmiðstöðin í Hörgársveit
Opnanir eru einu sinni í viku fyrir börn á unglingastigi á fimmtudögum klukkan 20-22. Miðstigsopnanir eru tvisvar í mánuði fyrsta og þriðja þriðjudag klukkan 16:15-18:00. Farið var að stað með prufuverkefni að hafa opnanir einu sinni í mánuði fyrir ungmenni á aldrinum 16-18 ára og hefur lukkast vel og aðsóknin góð, ungmennin óska eftir að halda áfram með opnun fyrir þau á nýju ári einu sinni í mánuði.
Sveitarstjórn samþykkt að haldið verði áfram með opnanir fyrir 16-18 ára til prufu fram á vor.

3. Fundargerð fræðslunefndar frá 24.11.2025
Fundargerðin lögð fram en hún er í 11 liðum.

4. Fundargerð félagsmála- og jafnréttisnefndar frá 25.11.2025
Fundargerðin er í 3 liðum og þarfnast 1 liður afgreiðslu sveitarstjórnar.

a) Í lið 3, Fjölskylduþjónusta Norðurlands eystra, þátttaka í verkefninu
Lagt fram erindi um verkefnið og þátttöku í kostnaði vegna þess.
Sveitarstjórn samþykkti að Hörgársveit taki þátt í verkefninu og taki þátt í kostnaði vegna þess í samræmi við íbúafjölda sveitarfélagsins.

5. Fundargerð ungmennaráðs frá 10.11.2025
Fundargerðin er í 3 liðum og þarfnast 1 liður afgreiðslu sveitarstjórnar.

a) Í lið 3, reglur ungmennaráðs Hörgársveitar
Breytingar á reglum ráðsins.
Sveitarstjórn samþykkti að reglur um ungmennaráð verði endurskoðaðar og lagðar fyrir sveitarstjórn.

6. Fundargerðir afgreiðslufunda SBE frá 101 og 102. fundi
Fundagerðin lögð fram.

7. Fundargerð stjórnar SSNE frá 77. fundi og þinggerð haustþings
Fundargerðin og þinggerðin lagðar fram.

8. Fundargerðir stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga frá 987. og 988. fundi
Fundargerðirnar lagðar fram.

9. Fundargerðir stjórnar Norðurorku frá 315. og 316. fundi
Fundargerðirnar lagðar fram.

10. Fundargerð skólanefndar TE frá 20.11.2025
Fundargerðin lögð fram ásamt ársskýrslu og kostnaðaráætlun.

11. Breytingar á samþykktum um stjórn Hörgársveitar og fundarsköp sveitarstjórnar, síðari umræða
Sveitarstjórn samþykkti þær breytingar óbreyttar við síðari umræðu, sem samþykktar voru við fyrri umræðu í sveitarstjórn 7.11.2025.

12. Bjarmahlíð, ósk um styrk
Erindið lagt fram ásamt tölvubréfi frá Eyjafjarðarsveit er varðar erindið.
Sveitarstjórn samþykkti að veita styrk kr. 400.000,- vegna ársins 2026.

13. Ás Hjalteyri - erindi er varðar lóðarmörk og göngustíg
Erindið lagt fram ásamt fylgigögnum.
Sveitarstjórn samþykkti að fela sveitarstjóra og skipulagsfulltrúa að ræða við bréfritara og vinna að lausn málsins.

14. Birkihlíð 3 - erindi er varðar lóðarmál og framkvæmdir
Erindið lagt fram og ákveðið að kannað verði hvað sveitarfélagið geti gert til að bæta þá stöðu sem rætt er um í erindinu.

15. Kristnesspítali, staða mála
Lagt fram afrit af bréfi frá sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar til Heilbrigðisráðuneytis dags.20.11.2025.
Sveitarstjórn Hörgársveitar tekur undir áhyggjur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar og bendir á að á Kristnesi er unnið gífurlega mikilvægt starf sem ekki er í boði annars staðar á Norður- og Austurlandi

16. Þjóðlendumál, stærðarbreytingar
Lagðar fram yfirlýsingar Forsætisráðuneytisins dags. 30.9.2025 um stærðarbreytingar þjóðlendnanna Almenningur, land nr. 223269 og Vaskárdalur, land nr. 223198, en þjóðlendur þessar stækkuðu samkvæmt úrskurðum óbyggðanefndar í málum nr. 1-5/2023, birtum í Lögbirtingarblaði 21.10.2024. Svæðið í Vaskárdal er eftir úrskurðinn afréttareign Hörgársveitar, fyrrum Hörgárbyggðar og Einars Steindórs Valbergssonar, en svæðið í Almenningi er afréttareign Hörgársveitar, fyrrum Hörgárbyggðar.
Sveitarstjórn samþykkti að fela sveitarstjóra að árita skjölin af hálfu sveitarfélagins og endursenda ráðuneytinu.

17. Gjaldskrár, tillögur vegna ársins 2026
a) Rætt um álagningarhlutfall útsvars fyrir árið 2026.
Sveitarstjórn samþykkti að álagningarhlutfall útsvars fyrir árið 2026 verði óbreytt 14,97%.

b) Rætt um álagningarreglur fasteignagjalda fyrir árið 2026 og afsláttarreglur fasteignaskatts vegna elli- og örorkulífeyrisþega.
Sveitarstjórn samþykkti að álagningarhlutfall fasteignaskatts fyrir árið 2026 skv. a-lið lækki úr 0,40% í 0,36%, skv. b-lið 1,32% og skv. c-lið 1,40% af fasteignamati.

Þá samþykkti sveitarstjórn að 2. gr. gjaldskrár fráveitna í Hörgársveit verði þannig að holræsagjald fráveitu á Hjalteyri og á skipulögðum atvinnusvæðum verði 0,18% af fasteignamati og ennfremur að vatnsgjald Vatnsveitu Hjalteyrar verði kr. 16.208,- á hverja íbúð og hvert frístundahús. Rotþróargjöld verði eftir stærðum rotþróa.

Fráveitugjald og vatnsgjald í Lónsbakkahverfi verði samkvæmt gjaldskrá Norðurorku.

Sorphirðugjald heimila verði kr. 74.360,- sorphirðugjald frístundahúsa verði kr. 23.244,- enda sé þjónusta þar ekki veitt á vetrum, sorphirðugjald vegna búrekstrar verði 151,- kr. fyrir hverja sauðkind, 811,- kr. fyrir hvern nautgrip, 582,- kr. fyrir hvert hross og 801,- kr. fyrir hvert svín.

Reglum um afslátt tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega af fasteignaskatti verði breytt á þann hátt að þær geri ráð fyrir að tekjumörk afsláttar breytist í samræmi við breytingu á launavísitölu milli viðmiðunarára.

c) Rætt um aðrar gjaldskrár fyrir árið 2026 og samþykkt að önnur gjöld hækki að jafnaði um 4% milli áranna 2025 og 2026 nema að gjöld vegna barna í leik- og grunnskóla hækki að jafnaði um 3,2%.
Sveitarstjórn samþykkti að frá 1. janúar 2026 kosti hver klst. frá kl. 08:00-16:00 í vistun í Álfasteini 4.876- kr. á mánuði og hver klst. fyrir kl. 08:00 og eftir kl. 16:00 kosti kr. 8.751,- .
Fullt fæði í leikskóla kosti 10.727,- kr. á mánuði. Afsláttarreglur í leikskóla verði óbreyttar frá árinu 2025.

Skólamáltíðir nemenda í Þelamerkurskóla á skólatíma verði fríar en mötuneytisgjald annarra en nemenda verði 900,- kr. á dag. Vistunargjald í Frístund verði kr. 700 á dag og síðdegishressing í Frístund kr. 165 á dag. Vistunargjald í Frístund á lokunardögum verði kr. 2.580,- og fæðisgjald á lokunardögum verði kr. 1.175,- Aðrar gjaldskrár fyrir útleigu á húsnæði og húsbúnaði í Þelamerkurskóla hækki í samræmi við áætlaðar hækkanir í fjárhagsáætlun 2026 sem eru um 4,0% milli áranna 2025 og 2026.

Sveitarstjórn samþykkti að á árinu 2026 verði stakt gjald fyrir fullorðinn í sund kr. 1.300,- og kr. 320,- fyrir börn. Aðrar hækkanir á gjaldskrá íþróttamiðstöðvar verði að jafnaði um 4,0% milli áranna 2025 og 2026.

Sveitarstjórn samþykkti að á árinu 2026 eigi íbúar sveitarfélagsins og fastráðnir starfsmenn sveitarfélagsins kost á lýðheilsustyrk í formi árskorts í sund í Jónasarlaug án greiðslu.

Þá samþykkti sveitarstjórn að styrkur til niðurgreiðslu þátttökugjalda barna frá fimm ára aldursári til og með sautjánda aldursárs í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi verði kr. 54.000,- fyrir árið 2026.

Hækkanir á gjaldskrá fyrir akstursþjónustu verði að jafnaði um 4,0% milli áranna 2025 og 2026.

18. Fjárhagsáætlun 2026
Yfirferð milli umræðna og lagt fram erindi er varðar íþróttaaðstöðu fyrir börn í Lónsbakkahverfi.

19. Trúnaðarmál

 

Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 12:30