Sveitarstjórn fundur nr. 192
Föstudaginn 7. nóvember 2025 kl. 08:30 kom sveitarstjórn Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.
Fundarmenn: Axel Grettisson oddviti, Jón Þór Benediktsson, Ásrún Árnadóttir, Sunna María Jónasdóttir og Jónas Þór Jónasson.
Fundarritari: Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri
Þetta gerðist:
1. Fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar frá 6.11.2025
Fundargerðin er í 5 liðum og þarfnast 3 liðir afgreiðslu sveitarstjórnar.
a) Í lið 3, Grjótgarður – erindi er varðar efnistöku og frágang námu (H2511001)
Lagt fram erindi frá Árna Arnsteinssyni vegna framkvæmdaleyfisumsóknar. Óskað er eftir heimild upp á 10.000 m3 efnistöku og frágangi á námu í landi Grjótgarðs.
Sveitarstjórn samþykkti að ekki verði veitt heimild fyrir nýrri efnistöku fyrr en skýrsla um úttekt á efnistöku í Hörgársveit í tengslum við endurskoðun aðalskipulags liggur fyrir.
b) Í lið 4, Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045 – umsagnarbeiðni (H2410008)
Dalvíkurbyggð óskar umsagnar Hörgársveitar um vinnslutillögu vegna endurskoðunar Aðalskipulags Dalvíkurbyggðar 2025–2045. Tillagan er unnin af Yrki arkitektum og liggja nú fyrir uppfærð gögn sem eru til kynningar.
Sveitarstjórn samþykkti að gera ekki athugasemd við vinnslutillöguna en bendir á nálægð við sveitarfélagamörk Hörgársveitar varðandi fyrirhugaða Árskógsvirkjun í Þorvaldsdal.
c) Í lið 5, Engimýri III – Deiliskipulagsbreyting (H2510029)
Lagt fram erindi þar sem óskað er eftir breytingum á deiliskipulagi fyrir Engimýri III. Breytingin nær til gistihúsa á skipulagssvæðinu.
Sveitarstjórn samþykkti erindið sem óverulega deiliskipulagsbreytingu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að hún verði sent í grenndarkynningu. Heimilt verði að stytta grenndarkynningartímabil ef allir hagsmunaaðilar lýsa því yfir skriflega að ekki sé gerð athugasemd við áformin. Erindið teljist samþykkt ef ekki berast andmæli á grenndarkynningartímabilinu.
2. Fundargerð stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga frá 987. fundi
Fundargerðin lögð fram.
3. Umdæmi Barnaverndarþjónustunnar á Norðurlandi eystra, breyttur samningur, síðari umræða
Samningur ellefu sveitarfélaga um barnaverndarþjónustu á Norðurlandi eystra tekinn til síðari umræðu en fyrri umræða fór fram 24.10.2025.
Sveitarstjórn Hörgársveitar samþykkti samninginn.
4. Markaðsstofa Norðurlands - erindi vegna Flugklasans Air 66N
Lagt fram erindi er varðar rekstur Flugklasans og ósk um fjárstyrk 2026.
Sveitarstjórn samþykkti að veita Flugklasanum fjárstyrk árið 2026 kr. 500,- pr. íbúa.
5. Molta – erindi til sveitarfélaga sem aðild eiga að Flokkun
Lagt fram erindi þar sem kynntar eru breytingar á gjaldskrá Moltu og lagt til að samningur Flokkunar og Moltu verði tekinn til endurskoðunar.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við þær breytingar sem kynntar eru.
6. Réttir landsins- erindi
Lagt fram erindi þar sem kynntur er bæklingur um réttir landsins.
7. Breytingar á samþykktum um stjórn Hörgársveitar og fundarsköp sveitarstjórnar, fyrri umræða
Sveitarstjórn samþykkti að vísa til síðari umræðu eftirfarandi breytingum á gildandi samþykkt um stjórn Hörgársveitar og fundarsköp sveitarstjórnar:
8. gr. (2.mgr.)
Sveitarstjórn heldur reglulega fundi í skrifstofu sveitarfélagsins annan og fjórða fimmtudag í mánuði, kl. 08:30, nema sveitarstjórn ákveði annað. Þó heldur sveitarstjórn ekki reglulegan fund í júlímánuði.
40. gr.
B. Aðrar stjórnir, fulltrúar og samstarfsnefndir á vegum sveitarfélagsins þar sem sveitarstjórn skipar fulltrúa eða fulltrúar skipaðir af viðkomandi nefndum/ráðum:
5. Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar. Kjósa skal einn fulltrúa í nefndina og jafnmarga til vara. Kjörtímabil nefndarinnar er fjögur ár og er hið sama og sveitarstjórna.
C. Auk þess tekur sveitarstjórn þátt í kosningu og starfsemi við eftirtaldar nefndir, stjórnir, ráð og þjónustu á sameiginlegum vettvangi sveitarstjórna í Eyjafirði, eftir því sem við á hverju sinni:
1. Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra.
2. Skólanefnd Menntaskólans á Akureyri.
3. Skólanefnd Menntaskólans á Tröllaskaga.
4. Skólanefnd Verkmenntaskólans á Akureyri.
5. Gróðurverndarnefnd.
6. Byggingarnefnd Menntaskólans á Akureyri.
7. Byggingarnefnd Menntaskólans á Tröllaskaga.
8. Byggingarnefnd Verkmenntaskólans á Akureyri.
9. Stjórn Flokkunar Eyjafjarðar ehf.
10. Stjórn Moltu ehf.
Við C-lið bætast tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:
11. Umdæmisráð barnaverndar. Samkvæmt samningi um rekstur umdæmisráðs landsbyggða skipa aðildarsveitarfélögin fimm manna valnefnd sem fer með umboð sveitarfélaganna til skipunar í umdæmisráð barnaverndar. Skipunartími umdæmisráðs er fimm ár.
12. Barnaverndarþjónusta Norðurlands eystra. Samkvæmt samningi um rekstur barnaverndarþjónustu Norðurlands eystra, sbr. auglýsingu (samningur Akureyrarbæjar, Dalvíkurbyggðar, Eyjafjarðarsveitar, Fjallabyggðar, Grýtubakkahrepps, Hörgársveitar, Langanesbyggðar, Norðurþings, Svalbarðsstrandarhrepps, Tjörneshrepps og Þingeyjarsveitar um Barnaverndarþjónustu Norðurlands eystra og samþykkt um fullnaðarafgreiðslu mála hjá Barnaverndarþjónustu Norðurlands eystra), fer Akureyrarbær með verkefni barnaverndarþjónustu samkvæmt 10.gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 sem ekki eru falin öðrum.
8. Göngu- og hjólastígur
Umræður um stöðu mála.
9. Fjárhagsáætlun 2026-2029, fyrri umræða
Tillaga að fjárhagsáætlun lögð fram og rædd.
Sveitarstjórn samþykkti að vísa tillögunni til síðari umræðu.
10. Trúnaðarmál
Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 11:20