Sveitarstjórn fundur nr. 190

30.09.2025 15:30

Þriðjudaginn 30. september 2025 kl. 15:30 kom sveitarstjórn Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.
Fundarmenn: Axel Grettisson oddviti, Jón Þór Benediktsson, Ásrún Árnadóttir, Sunna María Jónasdóttir og Jónas Þór Jónasson.
Fundrritari: Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri

Þetta gerðist:

1. Fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar frá 25.9.2025
Fundargerðin lögð fram og er hún í 5 liðum og þarfnast 4 liðir afgreiðslu sveitarstjórnar.

Ásrún Árnadóttir og Jónas Þór Jónasson véku af fundi undir þessum lið og tóku Jóhanna María Oddsdóttir og Ásta G Hafberg þeirra sæti á fundinum.

a) Í lið 1, Breyting á Aðalskipulagi Hörgársveitar vegna Blöndulínu 3 (H2308005).
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi vegna Blöndulínu 3 hefur verið í vinnslu og var vinnslutillaga auglýst með athugasemdafresti sem rann út 17. júlí 2025. Óskar Örn Gunnarsson hjá Landmótun hefur farið yfir þær athugasemdir sem bárust og viðbrögð við þeim. Fyrir liggur nú uppfærð tillaga þar sem tekið hefur verið tillit til ábendinga og athugasemda.
Sveitarstjórn samþykkti að uppfærð tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hörgársveitar vegna Blöndulínu 3 verði send Skipulagsstofnun til athugunar skv. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að hún verði auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Haldið verði opið hús til frekari kynningar á auglýsingatíma tillögunnar sem verði auglýst sérstaklega.

Ásrún Árnadóttir og Jónas Þór Jónasson tóku aftur sæti á fundinum.

b) Í lið 2, Hallfríðarstaðir L152401 – umsókn um byggingarreit (H2508023)
Lögð er fram umsókn dags. 20.08.2025 frá Walter Ehrat um byggingarreit mhl. 14 fyrir frístundarhúsi á lóðinni Hallfríðarstaðir, Hörgársveit. Erindinu fylgja uppdrættir eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Sveitarstjórn samþykkti erindið og fellur frá grenndarkynningu þar sem málið varðar ekki aðra en umsækjanda að mati sveitarstjórnar.

c) Í lið 3, Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030 – auglýsing tillögu (H2508024)
Akureyrarbær óskar umsagnar Hörgársveitar vegna breytinga á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030, nr. 1317/2024: Auglýsing tillögu (breyting á aðalskipulagi).
Sveitarstjórn samþykkti að gera ekki athugasemd við auglýsta tillögu Akureyrarbæjar að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030, nr. 1317/2024.

d) Í lið 4, Brakandi – ósk um breytingu á staðfangi (H2509089)
Lögð fram beiðni frá Jóni Viðari Þorsteinssyni um breytingu á staðfangi fasteignarinnar Brakandi lóð (F2157265) í Hörgársveit og óskað eftir breyttu heiti.
Sveitarstjórn samþykkti breytingu á staðfangi og að F2157265 (Brakandi lóð) verði breytt í Brakandi III.

2. Fundargerð fræðslunefndar frá 29.9.2025
Fundargerðin lögð fram og er hún í 11 liðum og þarfnast 1 liður afgreiðslu sveitarstjórnar.
Í lið 7, úrræði fyrir tilvonandi grunnskólanemendur 2026
Rætt var um frístundaúrræði fyrir tilvonandi grunnskólanemendur í framtíðinni.
Sveitarstjórn samþykkti að stofnaður verði starfshópur sem verði falið að koma með tillögur í málinu. Í hópnum verði formaður fræðslunefndar og stjórnendur Þelamerkurskóla.

3. Fundargerð Ungmennaráðs frá 5. fundi
Fundargerðin lögð fram og er hún í 6 liðum. Sveitarstjórn tekur undir mikilvægi forvarnarfræðslu bæði í skóla og félagsmiðstöð og vísar umræðu um körfuboltavöll til gerðar fjárhagsáætlunar.

4. Fundargerð skólanefndar TE frá 151. fundi
Fundargerðin lögð fram.

5. Fundargerð Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra frá 243. fundi
Fundargerðin lögð fram ásamt fjárhagsáætlun og gjaldskrá 2026.
Sveitarstjórn tekur undir áhyggjur nefndarinnar af töfum sem orðið hafa á framkvæmdum við varanlegt geymslusvæði á athafnasvæði Skútabergs á Moldhaugnahálsi.

6. Fundargerð stjórnar SSNE frá 75. fundi
Fundargerðin lögð fram.

7. Fundargerð stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga frá 984. fundi
Fundargerðin lögð fram.

8. Hjalteyri ehf, fundargerð aðalfundar og ársreikningur 2024
Fundargerðin lögð fram ásamt ársreikningi 2024.

9. SSNE, drög að samstarfssamning um svæðisbundið farsældarráð á Norðurlandi eystra
Drög að samstarfssamningi ásamt fylgigögnum lögð fram. Óskað er eftir sveitarfélagið tilnefni einn aðalmann og einn varamann í ráðið.
Sveitarstjórn samþykkti samninginn og tilnefnir Sigríði Guðmundsdóttur sem aðalmann í ráðið og Báru Björk Björnsdóttur til vara.

10. Kvennaathvarfið, styrkbeiðni
Erindið lagt fram en þar er óskað aðkomu sveitarfélagsins að leigu húsnæðis fyrir Kvennaathvarfið á Akureyri ásamt öðrum sveitarfélögum á svæðinu.
Sveitarstjórn samþykkti erindið og mun hlutur Hörgársveitar verða kr. 117.516,- á árinu 2026.

11. Göngu- og hjólastígur
Umræður um stöðu mála.

12. Viðauki 2, við fjárhagsáætlun 2025
Lögð fram tillaga að viðauka 02 við fjárhagsáætlun 2025.
Sveitarstjórn samþykkti viðauka 02 við fjárhagsáætlun ársins 2025 sem gerir ráð fyrir að rekstrarniðurstaða ársins verði jákvæð sem nemur 33.440 þús.kr. og handbært fé í árslok verði 64.495 þús.kr.

13. Fjárhagsáætlun 2026
Umræður og undirbúningur fyrir vinnu fjárhagsáætlunar 2026.

14. Trúnaðarmál

 

Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 18:40