Sveitarstjórn fundur nr. 188

03.09.2025 08:30

Miðvikudaginn 3. september 2025 kl. 08:30 kom sveitarstjórn Hörgársveitar saman til

fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.

Fundarmenn: Axel Grettisson oddviti, Jón Þór Benediktsson, Ásrún Árnadóttir, Sunna María Jónasdóttir og Jónas Þór Jónasson.

 

Fundarritari: Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri

Þetta gerðist:

1. Skipulagsmál
Ómar Ívarsson og Atli Steinn Sveinbjörnsson frá Landslagi ehf komu til fundar við sveitarstjórn.

2. Fundargerð fjallskilanefndar frá 18.8.2025
Fundargerðin lögð fram.

3. Samb. ísl. sveitarfélaga erindi vegna skipunar í bakhópa
Lagt fram erindi með beiðni um skipan í tvo starfshópa í umhverfismálum.
Sveitarstjórn samþykkti að Sunna María Jónasdóttir verði fulltrúi Hörgársveitar í bakhóp um úrgangsmál og hringrásarhagkerfið og Jón Þór Benediktsson verið fulltrúi Hörgársveitar í bakhóp um loftlagsmál.

4. Arnar Tryggvason, erindi vegna aðgengismála fatlaðra
Erindið lagt fram.

5. Ytri-Bægisá 2 L152509 - stofnun lóðar
Lögð fram merkjalýsing vegna stofnun lóðar úr landi Ytri-Bægisá 2. En áður hafði verið fallið frá því að stofna lóðina en nú er það breytt. Lóðin fái heitið Neðri-Bægisá.
Sveitarstjórn samþykkti fyrir sitt leyti stofnun lóðarinnar Neðri-Bægisá samkvæmt framlögðum uppdrætti og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að fullnusta stofnun lóðarinnar með afgreiðslu merkjalýsingar.

6. Fjárhagsáætlun 2026-2029, forsendur
Farið var yfir forsendur og vinnu við fjárhagsáætlun 2026-2029.

7. Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra, umsókn um gistileyfi, umsögn
Lagt fram erindi þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II-H, frístundahús að Syðra-Brekkukoti.
Sveitarstjórn samþykkti fyrir sitt leyti að rekstrarleyfið verði veitt.

8. Göngu- og hjólastígur
Umræður um stöðu mála.

 

Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 10:30