Sveitarstjórn fundur nr. 187
Fimmtudaginn 14. ágúst 2025 kl. 16:00 kom sveitarstjórn Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.
Fundarmenn: Axel Grettisson oddviti, Jón Þór Benediktsson, Ásrún Árnadóttir, Sunna María Jónasdóttir og Jónas Þór Jónasson.
Fundarritari: Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri
Þetta gerðist:
1. Fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar frá 12.8.2025
Fundargerðin lögð fram og er hún í 11 liðum og þarfnast 8 liðir afgreiðslu sveitarstjórnar.
a) Í lið 2, Árskógsvirkjun, Þorvaldsdal, nr. 0214/2025: Kynning tillögu á vinnslustigi (breyting á aðalskipulagi) (H2502024).
Dalvíkurbyggð óskar umsagnar Hörgársveitar vegna kynningar tillögu á vinnslustigi að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 fyrir allt að 5 MW vatnsaflsvirkjun í Þorvaldsdalsá, stíflu og stöðvarhús auk 3,7 km langrar aðrennslispípu. Tillagan er unnin af Eflu verkfræðistofu, dags 04. júní 2025. Umsagnarbeiðni barst þann 25. júní 2025, en umsagnarfrestur var veittur til 12. ágúst 2025.
Sveitarstjórn samþykkt að gera ekki athugasemdir við vinnslutillöguna en bendir á nálægð við sveitarfélagamörk Hörgársveitar.
b) Í lið 3, Sandvík - Hauganesi. Breyting á aðalskipulagi, nr. 0383/2025: Kynning tillögu á vinnslustigi (H2503050)
Dalvíkurbyggð óskar umsagnar Hörgársveitar vegna kynningar tillögu að breytingu á aðalskipulagi vegna áforma um uppbyggingu afþreyingar- og ferðamannasvæðis við Hauganes. Tillagan er unnin af Nordic Office of Architecture, dags 05. júní 2025. Umsagnarbeiðni barst þann 25. júní 2025, en umsagnarfrestur var veittur til 12. ágúst 2025.
Sveitarstjórn samþykkti að gera ekki athugasemdir við vinnslutillöguna.
c) Í lið 4, landeldi norðan Hauganess - breyting á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar, nr. 0871/2025: Lýsing (breyting á aðalskipulagi) (H2507020)
Dalvíkurbyggð óskar umsagnar Hörgársveitar vegna kynningar á skipulagslýsingu fyrir breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 og nýtt deiliskipulag vegna áforma um uppbyggingu norðan Hauganess fyrir landeldi, landfyllingu og viðlegumannvirki. Lýsingin er unnin af Teikna - teiknistofu arkitekta, dags júní 2025. Umsagnarbeiðni barst þann 25. júní 2025, en umsagnarfrestur var veittur til 12. ágúst 2025.
Sveitarstjórn samþykkti að gera ekki athugasemdir við skipulagslýsinguna.
d) Í lið 5, Ytri-Bægisá 2 L152509 - stofnun tveggja lóða (H2503052)
Skipulags- og umhverfisnefnd fjallaði á 112. fundi sínum þann 28. apríl sl. um beiðni á stofnun tveggja lóða úr jörðinni Ytri-Bægisá 2 L152509 og nýjum staðföngum á þeim, "Húsá" og "Ytri-Bægisá" og vísa erindinu í grenndarkynningu (mál nr.663/2025). Þær athugasemdir sem bárust á grenndarkynningartímabilinu voru lagðar fram til umfjöllunar. Lögð fram ný merkjalýsing vegna lóðarinnar Húsá en fallið hefur verið frá stofnun á hinni lóðinni.
Sveitarstjórn samþykkti fyrir sitt leyti stofnun lóðarinnar Húsá samkvæmt framlögðum uppdrætti og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að fullnusta stofnun lóðarinnar með afgreiðslu merkjalýsingar.
e) Í lið 6, Lónsbakki þéttbýli, breyting á deiliskipulagi vegna Lónsvegar 9 og 11 (H2508002)
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðirnar Lónsvegur 9 og 11. Um er að ræða fjölgun íbúða úr 6 í 7 á hvorri lóð ásamt fleiri breytingum samkvæmt tillögunni.
Sveitarstjórn samþykkti að vísa erindinu, sem er óveruleg deiliskipulagsbreyting skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, í grenndarkynningu skv. 1. mgr. 44. gr. sömu laga. Heimilt er að stytta grenndarkynningartímabilið ef allir hagsmunaaðilar lýsa því yfir skriflega að ekki sé gerð athugasemd við framkvæmdina. Ef ekki berast andmæli á grenndarkynningartímabilinu telst breytingin samþykkt.
f) Í lið 7, Aðalskipulag Skagafjarðar- auglýsing tillögu (nýtt aðalskipulag) (H2508001)
Sveitarfélagið Skagafjörður óskar umsagnar Hörgársveitar vegna auglýsingu á tillögu að nýju aðalskipulagi Skagafjarðar, ásamt umhverfismatsskýrslu. Tillagan er unnin af VSÓ Ráðgjöf, dags júní 2025 og er umsagnarfrestur til 15. september næstkomandi.
Sveitarstjórn samþykkti að gera ekki athugasemdir við tillöguna, en bendir á misræmi sem verður á sveitarfélagamörkum er varðar Blöndulínu 3, þar sem í greinargerð með gildandi aðalskipulagi Hörgársveitar er enn gert ráð fyrir jarðstreng.
g) Í lið 8, Ægisgarður nhl. L152375 - umsókn um stækkun lóðar (H2508004)
Fyrir fundinum liggur umsókn dags. 2. ágúst 2025 frá Hrafnhildi Báru Hilmarsdóttur um stækkun á lóðinni Ægisgarði nhl. L152375. Uppdrættir fylgja umsókn sem sýna fyrirhugaða stækkun.
Sveitarstjórn samþykkti að hafna erindinu, enda samræmist það ekki samþykktu deiliskipulagi.
h) Í lið 9, Lækjarvellir - umsókn um auglýstar lóðir (H2310021)
Fyrir fundinum liggur umsókn um lóð við Lækjarvelli.
Sveitarstjórn samþykkti að gengið verði til samninga við SKG verktaka ehf kt. 591199-2429 um úthlutun lóðarinnar nr. 21 við Lækjarvelli.
2. Fundargerð afgreiðslufundar SBE frá 98. fundi
Fundargerðin lögð fram.
3. Fundargerð stjórnar Norðurorku frá 311. fundi
Fundargerðin lögð fram.
4. Fundargerð HNE frá 242. fundi
Fundargerðin lögð fram.
5. Fundargerð stjórnar Hafnarsamlags Norðurlands frá 298. fundi
Fundargerðin lögð fram.
6. Fundargerð stjórnar SSNE frá 74. fundi
Fundargerðin lögð fram.
7. Fundargerðir stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga frá fundum 981 og 982
Fundargerðirnar lagðar fram.
8. Norðurorka hf., erindi vegna lántöku
Lagt fram erindi frá Norðurorku hf. þar sem óskað er eftir að eigendur Norðurorku hf. taki ábyrgð á 300 milljón króna láni Norðurorku hf. hjá Lánasjóði sveitarfélaga í samræmi við hlutfall eignarhalds hvers og eins.
Sveitarstjórn Hörgársveitar samþykkir hér með á sveitarstjórnarfundi að veita einfalda ábyrgð og veðsetja til tryggingar ábyrgðinni tekjur sínar í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, til tryggingar láns Norðurorku hf. hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 300.000.000-, í samræmi við lánsumsókn í vinnslu hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum. Nær samþykki sveitarstjórnar jafnframt til undirritunar lánasamnings og að sveitarfélagið beri þær skyldur sem þar greinir.
Er lánið tekið til fjármögnunar á hitaveituframkvæmdum sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Sveitarstjórnin skuldbindur hér með sveitarfélagið sem eiganda félagsins til að breyta ekki ákvæði samþykkta félagsins sem leggur hömlur á eignarhald að félaginu að því leyti að félagið megi ekki fara að neinu leyti til einkaaðila. Fari svo að Hörgársveit selji eignarhlut í félaginu til annarra opinberra aðila, skuldbindur sveitarfélagið sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi á sig ábyrgð á láninu að sínum hluta.
Jafnframt er Snorra Finnlaugssyni, kt. 210260-3829, sveitarstjóra, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. sveitarfélagsins að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.
9. Slökkvilið Akureyrar, erindi vegna bílakaupa
Lagt fram erindi frá Slökkviliði Akureyrar þar sem kynnt er áætlun um kaup á krókheysisbíl og 10.000 lítra vatnstank og áætlun um þátttöku í fyrirhugðum kaupum.
Sveitarstjórn lýsir yfir jákvæðni varðandi kaupin en hefur fyrirvara um aðferð við skiptingu kostnaðar og telur eðlilegast að hún verði með sama hætti og við önnur tækjakaup slökkviliðsins.
10. Velferðarráð Akureyrar, erindi vegna skipunar áheyrnarfulltrúa
Lagt fram erindi þar sem tilgreint er að með vísan til samnings Akureyrarbæjar, Eyjafjarðarsveitar, Grýtubakkahrepps, Hörgársveitar og Svalbarðsstrandarhrepps um sameiginlegt þjónustusvæði í Eyjafirði um þjónustu við fatlað fólk, skuli sveitarfélögin, önnur en Akureyri, tilnefna sameiginlega einn áheyrnarfulltrúa með málfrelsi og tillögurétt á fundum velferðarráðs Akureyrarbæjar þegar til umræðu eru málefni fyrrnefnds samstarfssamnings.
Óskað er eftir tilnefningu á umræddum áheyrnarfulltrúa.
Sveitarstjórn samþykkti að fela sveitarstjóra að fara með málefni sveitarfélagsins er varðar áheyrnafulltrúa í velferðarráði Akureyrarbæjar og að koma á, í samstarfi við samstarfssveitarfélögin, föstu skipulagi á tilnefningu hins sameiginlega áheyrnafulltrúa hverju sinni. Sveitarstjórn verði gert kunnugt um skipulagið og nafn hins sameiginlega áheyrnafulltrúa þegar það liggur fyrir.
11. Samband íslenskra sparisjóða, erindi vegna Hrauns í Öxnadal ehf
Lagt fram erindi þar sem tilkynnt er að á aðalfundi SÍSP hafi verið ákveðið að bjóða Hörgársveit formlega til kaups, hlutabréf SÍSP í hlutafélaginu Hraun í Öxnadal ehf.
Sveitarstjórn samþykkti að ganga til viðræðna við SÍSP um kaup á hlutafénu.
12. Erindi vegna sjókvíaeldis
Lögð fram erindi vegna fyrirhugaðs burðarþolsmats í Eyjafirði og mögulegrar sjókvíaeldisstarfsemi.
Sveitarstjórn ítrekar andstöðu sína við sjókvíaeldi í innverðum Eyjafirði og telur því ekki þörf á burðarþolsmati í Eyjafirði.
13. Lítil þúfa, beiðni um rekstrarstyrk
Lagt fram erindi þar sem óskað er eftir rekstrarstyrk til Þúfunnar áfangaheimili fyrir konur sem hafa lokið meðferð vegna vímuefnaröskunar.
Sveitarstjórn samþykkti að vísa erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2026.
14. Félag atvinnurekanda, erindi v. fasteignaskatts
Lagt fram erindi er varðar hækkun á fasteignamati og fasteignaskatti fyrirtækja.
Lagt fram til kynningar.
15. SSNE, skipan í starfshóp vegna loftslagsstefnu
Lagt fram erindi þar sem óskað er eftir að Hörgársveit skipi einn fulltrúa í starfshóp fyrir mótun loftslagsstefnu Norðurlands eystra.
Sveitarstjórn samþykkti að skipa Jón Þór Benediktsson í starfshópinn fyrir hönd Hörgársveitar.
16. Félagsmiðstöð fyrir ungmenni, niðurstöður úr könnun
Lagðar fram niðurstöður úr könnun sem gerð var varðandi áhuga á þátttöku í félagsstarfi á vegum félagsmiðstöðvar fyrir ungmenni á aldrinum 16-18 ára.
Sveitarstjórn samþykkti að koma félagsmiðstöðinni á, einu sinni í mánuði til reynslu.
17. Göngu- og hjólastígur
Umræður um stöðu mála.
18. Glæsibær áfangi 3. – Hagaflöt 16 - óveruleg breyting á deiliskipulagi (H2301004).
Fyrir fundinum liggur erindi frá landeiganda varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna Glæsibæjar, áfanga 3, þar sem um er að ræða stækkun á byggingarreit að Hagaflöt 16.
Sveitarstjórn samþykkti að vísa erindinu, sem er óveruleg deiliskipulagsbreyting skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, í grenndarkynningu skv. 1. mgr. 44. gr. sömu laga. Heimilt er að stytta grenndarkynningartímabilið ef allir hagsmunaaðilar lýsa því yfir skriflega að ekki sé gerð athugasemd við framkvæmdina. Ef ekki berast andmæli á grennarkynningartímabilinu teljast áformin samþykkt og felur þá skipulagsfulltrúa að fullnusta skráningu á breytingu lóðarinnar.
Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 18:35