Sveitarstjórn fundur nr. 170

15.08.2024 15:30

Sveitarstjórn Hörgársveitar 170. fundur

 

Fundargerð

Fimmtudaginn 15. ágúst 2024 kl. 15:30 kom sveitarstjórn Hörgársveitar saman til

fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.

Fundarmenn: Axel Grettisson oddviti, Jón Þór Benediktsson, Ásrún Árnadóttir, Sunna María Jónasdóttir og Jónas Þór Jónasson

Fundarritari: Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri

Þetta gerðist:

  1. Fundargerð skipulags og umhverfisnefndar frá 13.8.2024

Fundargerðin er í 11 liðum og þarfnast 8 liðir afgreiðslu sveitarstjórnar.

  1. a) Í lið 1, Glæsibær, Hagabyggð – aðal- og deiliskipulag áfangi III (2301004)

Sveitarstjórn Hörgársveitar samþykkti á fundum sínum 8. maí og 13. júní 2024 að vísa aðal- og deiliskipulagstillögu vegna 3. áfanga íbúðarbyggðar í landi Glæsibæjar í auglýsingu skv. 1. mgr. 31 gr. og 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Auglýsingatímabilið var frá 20. júní til 1. ágúst sl. og bárust 9 umsagnir sem eru nú til umfjöllunar sveitarstjórnar.

  1. erindi, sendandi Umhverfisstofnun:

Athugasemd a): Umhverfisstofnun telur að þar sem skipulagstillagan tekur til íbúðarsvæðis utan þéttbýlisstaða sveitarfélagsins sé mikilvægt að það komi fram í tillögunni hvernig hún samrýmist kafla 2.1.1 í Landskipulagsstefnu þar sem fjallað er um sjálfbæra byggð í skipulagsáætlunum, en þar segir: „Við skipulagsgerð sveitarfélaga verði miðað að því að styðja og styrkja samfélag viðkomandi byggðarlags með því að beina vexti að þeim kjörnum sem fyrir eru. Í dreifbýli tengist fjölgun íbúða fremur búrekstri eða annarri staðbundinni landnýtingu eða atvinnustarfsemi.“

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að í kafla 5.1 í greinargerð aðalskipulagstillögu er fjallað um tengsl tillögunnar við landsskipulagsstefnu. Þar segir að í Hörgársveit séu þrjú svæði skilgreind sem íbúðarbyggð; Lónsbakki, Hjalteyri og Blómsturvellir. Hins vegar hefur ekki verið unnið deiliskipulag fyrir Blómsturvelli og engin uppbygging verið á því svæði. Lágreist íbúðarbyggð er að rísa í landi Glæsibæjar sem fellur vel að náttúrulegu landslagi svæðisins í nágrenni við Akureyri. Ekki eru uppi áform um að ráðast í deiliskipulagningu íbúðarsvæða í landi Blómsturvalla í fyrirsjáanlegri framtíð og því hafa uppbyggingaráform í Glæsibæ ekki áhrif á framvindu þess svæðis. Skipulags- og umhverfisnefnd telur að þar sem ekki séu uppi áform um skipulagningu íbúðarsvæðis í landi Blómsturvalla sé uppbygging íbúðarsvæðis í Glæsibæ ekki að fjölga íbúðarsvæðum sveitarfélagsins miðað við fyrirliggjandi skipulag. Skipulags- og umhverfisnefnd telur athugasemdina ekki gefa tilefni til breytinga á auglýstum skipulagstillögum.

Athugasemd b) Umhverfisstofnun hvetur sveitarfélagið til að skoða aðrar náttúrulegar lausnir, t.d. blágrænar ofanvatnslausnir fremur en að veita ofanvatni í fráveitu sveitarfélagsins þar sem of mikið aðkomuvatn í fráveitukerfi eykur kostnað við fráveituhreinsun og þyngir reksturinn. Stofnunin bendir á að hægt væri að gera ráð fyrir hreinsivirki sem er minna umfangs ef hægt væri að koma ofanvatni í annan umhverfisvænni farveg

Afgreiðsla: Sveitarstjórn samþykkti að fela skipulagsfulltrúa að ræða við skipulagshönnuð um mögulega uppfærslu greinagerðar deiliskipulags í samræmi við ofangreinda athugasemd.

  1. erindi, sendandi Jón Örn Pálsson:

Athugasemd: Sendandi bendir á að fjölgun íbúa í Hagabyggð leiði af sér stóraukna umferð og segir þetta kalla á að gatnamót vegar nr. 816 og Þjóðvegar 1 verði lagfærð sem allra fyrst.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir athugasemd sendanda og bendir á að sveitarfélagið er í viðræðum við Vegagerðina vegna úrbóta á gatnamótum Þjóðvegar 1 og Dagverðareyrarvegar (vegnr. 816). Skipulags- og umhverfisnefnd telur athugasemdina þó ekki gefa tilefni til breytinga á auglýstum skipulagstillögum.

  1. erindi, sendandi Vegagerðin:

Athugasemd a) Vegagerðin bendir á að á aðalskipulagsuppdrætti tillögunnar er vegurinn að Eyrarvík (Eyrarvíkurvegur, vegnr. 8160) sýndur sem tengivegur en hann er í raun héraðsvegur.

Afgreiðsla: Sveitarstjórn felur skipulagshönnuði að uppfæra aðalskipulagsuppdrátt í samræmi við ofangreinda athugasemd Vegagerðarinnar.

Athugasemd b) Vegagerðin lítur svo á að svæðið sé þéttbýli skv. skilgreiningu skipulagslaga 123/2010. Verði síðar sótt um að vegurinn að hverfinu verði tekinn inn á vegaskrá mun hann því enda við fyrstu tengingu skv. vegalögum.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Gefur ekki tilefni til breytinga.

Athugasemd c) Vegagerðin bendir á að stækkun íbúðarbyggðar í landi Glæsibæjar kallar á aukna umferð um Dagverðareyrarveg (816) en vegurinn er frekar mjór og ekki gerður fyrir mikla umferð. Þá er bent á að gatnamót Dagverðareyrarvegar (816) og Hringvegar (1) séu ekki góð og geti oft verið varasöm. Með fjölgun íbúa aukist umferð um gatnamótin og þar með slysahætta og geti uppbygging svæðisins haft neikvæð áhrif á umferðaröryggi. Stofnunin segir engar fjárveitingar séu í lagfæringar eða breytingar á Dagverðareyrarvegi eða gatnamótum við Hringveg og því séu lagfæringar eða breytingar ekki fyrirsjáanlegar.

Afgreiðsla: Sveitarstjórn bendir á að sveitarfélagið og Vegagerðin hafa áður átt í viðræðum vegna mögulegra úrbóta á gatnamótum Dagverðareyrarvegar (816) og Hringvegar (1) og sú athugasemd Vegagerðarinnar að lagfæringar eða breytingar séu ekki fyrirsjáanlegar eru alls ekki í samræmi við það sem þar hefur verið rætt, þar sem m.a. hefur verið rætt um útfærslur til að bæta umferðaröryggi við gatnamótin. Sveitarfélagið mun því óska eftir skýrari afstöðu Vegagerðarinnar til óska um lagfæringar.

Athugasemd d) Vegagerðin bendir á að samkvæmt skipulagsreglugerð nr. 90/2013 þarf að sýna veghelgunarsvæði á deiliskipulagsuppdrætti.

Afgreiðsla: Sveitarstjórn samþykkti að fela skipulagshönnuði að uppfæra deiliskipulagsuppdrátt í samræmi við ofangreinda athugasemd Vegagerðarinnar.

Athugasemd e) Vegagerðin bendir á að Dagverðareyrarvegur (816) er tengivegur og að samkvæmt skipulagsreglugerð nr. 90/2013 megi ekki staðsetja íbúðar- eða frístundahús nær stofn- og tengivegum en 100 m. Samkvæmt deiliskipulagsuppdrætti eru 70 m frá vegi að næstu húsum. Stofnunin tiltekur að ef byggja á nær Dagverðareyrarvegi en skipulagsreglugerð segir til um muni Vegagerðin ekki taka þátt í aðgerðum vegna óþæginda eða ónæðis frá Dagverðareyrarvegi síðar, t.d. vegna hávaða.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Gefur ekki tilefni til bókunar.

  1. erindi, sendandi Skógræktarfélag Eyfirðinga:

Athugasemd a) Skógræktarfélag Eyfirðinga telur mikilvægt að standa vörð um þá skóga og skógræktarsvæði sem eru á starfssvæði félagsins og forðast beri að taka skóga undir annars konar skipulag svo sem byggingarland. Ef til byggingaframkvæmda komi samt sem áður mælir félagið með því að hús séu reist inni í skógi í stað þess að ryðja burt allan skóg á byggingarlandinu og byggja svo.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir athugasemd Skógræktarfélags Eyfirðinga um mikilvægi þess að standa vörð um skóga og skógræktarsvæði sveitarfélagsins og bendir á að í greinargerð aðalskipulagstillögunnar er tekið fram að „...byggðin á svæðinu muni verða aðlöguð að núverandi gróðri og ekki sé ólíklegt að lóðarhafar muni planta gróðri á lóðum sínum sem að einhverju leyti mun vega upp á móti eyðingu skógar.“ Skipulags- og umhverfisnefnd telur athugasemdina ekki gefa tilefni til breytinga á auglýstum skipulagstillögum.

Athugasemd b) Skógræktarfélag Eyfirðinga bendir á að ekki ætti að líta á skóg sem sjálfsagt byggingarland þar sem þá er um óafturkræfa framkvæmd að ræða. Mikilvægt sé að standa vörð um græn svæði og hvetja til skógræktar.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að í greinargerð aðalskipulagstillögunnar er tekið fram að „...byggðin á svæðinu muni verða aðlöguð að núverandi gróðri.“ Skipulags- og umhverfisnefnd telur skipulagstillögurnar ríma vel við hugmyndir um mikilvægi grænna svæða á skipulagssvæðinu. Skipulags- og umhverfisnefnd telur athugasemdina ekki gefa tilefni til breytinga á auglýstum skipulagstillögum.

Ekki eru gerðar athugasemdir við auglýstar skipulagstillögur í erindum sem bárust frá Landsneti, Minjastofnun, Norðurorku, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra og Landi og skógi.

 

Sveitarstjórn samþykkti að fresta afgreiðslu á aðal- og deiliskipulagi þar til skýr svör fást frá Vegagerðinni um lagfæringar á gatnamótum Dagverðareyrarvegar (816) og Hringvegar (1).

  1. b) Í lið 2, Lónsbakkahverfi – aðal- og deiliskipulagsbreyting (2312004)

Sveitarstjórn Hörgársveitar samþykkti á fundi sínum 19. apríl 2024 að vísa aðal- og deiliskipulagstillögu fyrir land Lónsár og Berghóls í Lónsbakkahverfi í auglýsingu skv. 1. mgr. 31 gr. og 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Auglýsingatímabilið var frá 3. júní til 15. júlí sl. og bárust 9 umsagnir sem eru nú til umfjöllunar nefndarinnar.

  1. Erindi, sendandi Norðurorka:

Athugasemd a) Norðurorka bendir á að núverandi hitaveitulögn frá Norðurlandsvegi (Þjóðvegi 1) í Skógarhlíð liggur undir lóðir á skipulagssvæðinu. Til stendur að leggja nýja sverari lögn frá Norðurlandsvegi og í Skógarhlíð og þarf að tryggja henni pláss milli Lónsvegar og nýrra lóða upp með Lónsvegi. Einnig þarf að leggja vatnsveitulögn samhliða hitaveitulögninni til að þjóna nýjum lóðum.

Afgreiðsla: Sveitarstjórn samþykkti að ákvæði um að legu nýrrar hitaveitulagnar og vatnsveitulagnar frá Norðurlandsvegi og í Skógarhlíð (Lónsbakkahverfi), sem liggja mun milli Lónsvegar og nýrra lóða upp með Lónsvegi, skuli bætt við auglýsta skipulagstillögu.

Athugasemd b) Norðurorka bendir á að leggja þarf nýja vatnsveitulögn samhliða hitaveitulögninni til að þjóna nýjum lóðum og þarf að tryggja þeim pláss milli Lónsvegar og nýrra lóða upp með Lónsvegi.

Afgreiðsla: Sveitarstjórn samþykkti að ákvæði um að legu nýrrar vatnsveitulagnar samhliða hitaveitulögn milli Lónsvegar og nýrra lóða upp með Lónsvegi skuli bætt við auglýsta skipulagstillögu.

  1. Erindi, sendandi Vegagerðin:

Athugasemd a) Vegagerðin tiltekur að huga þurfi að gönguleiðum meðfram Lónsvegi og þverunum. Staðsetja þurfi þveranir þannig að þær nýtist gangandi og hjólandi sem best.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd telur að vel sé hugað að gönguleiðum við og þverunum yfir Lónsveg í deiliskipulagstillögunni en fjórar þveranir eru áætlaðar yfir Lónsveg samkvæmt deiliskipulagsuppdrætti. Skipulags- og umhverfisnefnd telur ábendinguna ekki gefa tilefni til breytinga á auglýstum skipulagstillögum.

Athugasemd b) Vegagerðin bendir á að samkvæmt skipulagsreglugerð nr. 90/2013 þarf að sýna veghelgunarsvæði á deiliskipulagsuppdrætti.

Afgreiðsla: Sveitarstjórn samþykkti að fela skipulagshönnuði að uppfæra deiliskipulagsuppdrátt í samræmi við ofangreinda athugasemd Vegagerðarinnar.

  1. Erindi, sendandi Magnús Valur Axelsson:

Athugasemd a) sendandi bendir á að gert sé ráð fyrir að svæði sem ætlað er til íþróttaiðkunar sé minnkað á aðaluppdrætti en gerir ekki athugasemdir við það eða tillögurnar að öðru leyti.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að svæði fyrir samfélagsþjónustu (S1) er stækkað til norðurs inn á svæði ÍÞ1(íþróttasvæði) til að gera ráð fyrir stækkun leikskólans Álfasteins. Skipulags- og umhverfisnefnd telur ábendinguna ekki gefa tilefni til breytinga á auglýstum skipulagstillögum þessa svæðis.

Athugasemd b) sendandi hvetur sveitarstjórn til þess að finna heppilegra svæði til íþróttaiðkunar sem er í/við þéttbýlið við Lónsbakka og koma þar upp litlum sparkvelli og körfuboltavelli og segir það myndi stuðla að aukinni íþróttaiðkun barna í sveitarfélaginu.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd þakkar fyrir ábendinguna en telur hana ekki gefa tilefni til breytinga á auglýstum skipulagstillögum.

  1. Erindi, sendandi Rarik:

Athugasemd: Rarik bendir á að gera þarf ráð fyrir lagnaleið frá spennistöð S035 að fyrirhugaðri byggð sunnan Lónsár.

Afgreiðsla: Sveitarstjórn samþykkti að ákvæði um lagnaleið frá spennistöð S035 að fyrirhugaðri byggð sunnan Lónsár skuli bætt við auglýsta skipulagstillögu.

  1. Erindi, sendandi Jóhannes Árnason:

Athugasemd: Sendandi bendir á að líklega sé um villu að ræða á deiliskipulagsuppdrætti í kafla 3.4.1 þar sem fjallað er um fjölda íbúða. Í texta stendur að miðað sé við 18-20 íbúðir á lóð nr. 5 við Lónsveg og lyftu og bílastæði í kjallara. Hins vegar eigi þessir skilmálar við lóð nr. 3 á uppdrættinum en ekki lóð nr. 5 sem er einbýlishúsalóð.

Afgreiðsla: Sveitarstjórn samþykkti að texti á deiliskipulagsuppdrætti í kafla 3.4.1 verði leiðréttur í samræmi við athugasemd sendanda.

Ekki eru gerðar athugasemdir við auglýstar skipulagstillögur í erindum sem bárust frá Minjastofnun Íslands, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Umhverfisstofnun og Dalvíkurbyggð.

 

Sveitarstjórn samþykkti að auglýstum aðal- og deiliskipulagstillögum verði breytt eins og fram kemur í afgreiðslu sveitarstjórnar á athugasemdum 1a, 1b, 2b, 4 og 5 og að svo breyttar skipulagstillögur verði samþykktar skv. 1. mgr. 32. gr. og 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur skipulagsfulltrúa að fullnusta gildistöku skipulaganna.

  1. c) Í lið 4, Holtahverfi ÍB18 Aðalskipulagsbreyting – umsagnarbeiðni (2407002)

Akureyrarbær hefur hafið vinnu við breytingu á aðalskipulagi Akureyrar sem felst í því að einnig verður heimilt að byggja lífsgæðakjarna innan vestari reit íbúðarbyggðar ÍB18. Óskað er umsagnar Hörgársveitar um skipulagslýsinguna.

Sveitarstjórn samþykkti að gera ekki athugasemd við skipulagslýsinguna.

  1. d) Í lið 5, Víðihlíð 3 L232215 – beiðni um deiliskipulagsbreytingu vegna bílastæða (2407001)

Erindi frá lóðarhöfum Víðihlíðar 3 þar sem sótt er um að stækka bílastæði lóðarinnar til þess að fjölga stæðum sem yrðu þá 12 bílastæði í stað 11 eins og deiliskipulagið gerir ráð fyrir.

Sveitarstjórn samþykkti að gera ekki breytingar á deiliskipulagi og hafnar því að fjölga bílastæðum úr 10+1 í 11+1.

  1. e) Í lið 6, Brakandi og Bláteigur – framkvæmdaleyfisumsókn vegna bakkavarna (2408001)

Landeigendur Brakanda og Bláteigs sækja um leyfi til bakkavarna í Hörgá til að verjast landbroti og eignartjóni vegna breytts rennslis árinnar. Meðfylgjandi eru umsagnir Fiskirannsókna ehf vegna umsóknarinnar, dags. 11.12.2023 og 14.12.2023 og umsögn Veiðifélags Hörgár dags. 19.11.2022

Sveitarstjórn samþykkti að landeigendum Brakanda og Bláteigs verði veitt framkvæmdaleyfi til að stöðva landbrot á landeignum sínum vegna breytt rennslis Hörgár. Ítrekað er að framkvæmdaleyfið á aðeins við um framkvæmdir vegna landbrots, en ekki efnistöku.

  1. f) Í lið 8, Brekkuhús 1 – beiðni um breytingu á deiliskipulagi (2408003)

H.S.Á. Teiknistofa sækir fyrir hönd eigenda Brekkuhúsa 1 nhl (L152358) og Brekkuhúsa 1 shl (L152357) um breytingu á deiliskipulagi Hjalteyrar. Sótt er um stækkun á byggingarreit lóðanna til vesturs, suðurs og norðurs og hækkun á vegghæð. Þá er sótt um að bæta við byggingarmagni á hvorri lóð fyrir sig.

Sveitarstjórn samþykkti að hafna erindinu.

  1. g) Í lið 10, Brekkuhús 4 og 5, Hjalteyri – umsókn um úthlutun lóða

Fyrir fundinum liggur umsókn frá Marc Cerisier og Sophie Cerisier um úthlutun íbúðarhúsalóðanna Brekkuhús 4 og Brekkuhús 5 á Hjalteyri.

Sveitarstjórn samþykkti að úthluta Marc Cerisier og Sophie Cerisier lóðunum nr. 4 og 5 við Brekkuhús á Hjalteyri.

  1. h) Í lið 11, Hjalteyrarvegur 13, Hjalteyri – umsókn um úthlutun lóðar

Fyrir fundinum liggur umsókn frá Sólþing ehf um úthlutun lóðarinnar Hjalteyrarvegur 13 á Hjalteyri.

Sveitarstjórn samþykkti að úthluta Sólþing ehf kt. 430812-0170 lóðinni nr. 13 við Hjalteyrarveg á Hjalteyri.

  1. Fundargerð fjallskilanefndar frá 08.08.2024

Fundargerðin lögð fram.

  1. Fundargerðir afgreiðslufunda SBE frá 75. og 76. fundi

Fundargerðirnar lagðar fram.

  1. Jafnréttisstofa, erindi

Lagt fram erindi frá Jafnréttisstofu þar sem fjallað er um ábyrgð og hlutverk sveitarfélaga vegna bils milli fæðingarorlofs og inntöku barna í leikskóla.

  1. Valur Benediktsson, erindi vegna gangnaslóða

Lagt fram erindi frá Val Benediktssyni þar sem óskað er eftir fjárstyrk vegna gerðar gangnaslóða upp Reistarárskarð.

Sveitarstjórn lýsir yfir ánægju sinni með framtakið en telur að framkvæmdin eigi að vera á hendi landeigenda/framkvæmdaaðila.

Jón Þór Benediktsson vék af fundi undir þessum lið.

  1. Rekstur og framkvæmdir

Lagt fram yfirlit yfir stöðu rekstrar Hörgársveitar 30.6.2024 og yfirlit yfir kostnað við framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins á árinu.

Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 18:35