Sveitarstjórn fundur nr. 167

23.05.2024 08:30

Sveitarstjórn Hörgársveitar 167.fundur

Fundargerð

Fimmtudaginn 23. maí 2024 kl. 08:30 kom sveitarstjórn Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.

Fundarmenn: Axel Grettisson oddviti, Jón Þór Benediktsson, Ásrún Árnadóttir, Sunna María Jónasdóttir og Jónas Þór Jónasson

Fundarritari: Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri

Þetta gerðist:

  1. Úrvinnslumál og sorphirða

Lagðar fram hugmyndir vegna breytinga í framhaldi á gildistöku nýrra laga. Umræður um fyrirhugðar breytingar. Umræðu frestað til næsta fundar.

  1. Fundargerð fræðslunefndar frá 21.5.2024

Fundargerðin er í 10 liðum og þarfnast 3 liðir afgreiðslu sveitarstjórnar.

  1. a) Í lið 2, Frístund við ÞMS

Fram kom að Frístund hefði gengið vel í vetur. Umræður urðu um hvort í gjaldskrá ætti að setja gjald ef börn eru sótt of seint. Þá var rætt um hvort bjóða á uppá Frístund á starfsdögum.

Sveitarstjórn samþykkti að í gjaldskrá verði sett inn gjald sem verði innheimt ef barn er ítrekað sótt of seint. Tillaga að útfærslu komi fyrir sveitarstjórn til samþykktar á næsta fundi.

Þá samþykkti sveitarstjórn að Frístund verði opin þá starfsdaga sem ekki eru sama dag og starfsdagur í Álfasteini.

  1. b) Í lið 3, skóladagatal Álfasteins 2024 – 2025

Lögð fram tillaga að skóladagatali Álfasteins 2024 – 2025.

Sveitarstjórn samþykkti skóladagatal leikskólans Álfasteins 2024-2025 eins og það liggur fyrir.

  1. c) Í lið 4, skóladagatal Þelamerkurskóla 2024-2025.

Lögð fram tillaga að skóladagatali Þelamerkurskóla 2024 – 2025.

Sveitarstjórn samþykkti skóladagatal Þelamerkurskóla 2024-2025 eins og það liggur fyrir.

  1. Fundargerð kjörstjórnar frá 15.5.2024

Fundargerðin lögð fram.

  1. Fundargerð afgreiðslufundar SBE frá 70. fundi

Fundargerðin lögð fram.

  1. Fundargerð Svæðisskipulagsnefndar Eyjafjarðar frá 14. fundi

Fundargerðin lögð fram.

  1. Fundargerð stjórnar SSNE frá 63. fundi

Fundargerðin lögð fram.

  1. Fundargerð aðalfundar Hafnarsamlags Norðurlands frá 8.5.2024

Fundargerðin lögð fram.

  1. Lækjarvellir, úthlutun lóða

Framhald umræðna frá síðasta fundi.

  1. Jónasarlundur, samningur um vatn

Lögð fram drög að samningi við landeigendur að Þverá um þjónustu varðandi vatnsmál í Jónasarlundi.

Sveitarstjórn samþykkir samninginn.

  1. Blöndulína 3

Umræður um framhald skipulagsvinnu.

  1. Háls – stofnun íbúðarhúsalóðar

Erindi sem frestað var á seinasta fundi skipulags og umhverfisnefndar: Eigendur jarðarinnar Háls (L152438) óska eftir heimild sveitarstjórnar til að stofna 9.934 m² lóð undir byggingarnar á jörðinni. Lóðin myndi fá staðfangið Háls II. Erindinu fylgir umsókn um stofnun nýrrar landeignar ásamt merkjalýsingu, unnin af Búnaðarsambandi Eyjafjarðar dags. 02.05.2024.

Sveitarstjórn samþykkti erindið, enda verði tryggður aðkomuréttur að lóðinni samkvæmt afstöðumynd og eftir samkomulagi við jarðeigendur.

  1. Samningur, Áfangastaðastofa

Kynnt afrit af samningum SSNE annars vegar við Ferðamálastofu og hins vegar við

Markaðsstofu Norðurlands.

Lögð fram drög að þjónustusamningi milli Hörgársveitar og SSNE, varðandi Áfangastaðastofu Norðurlands.

Sveitarstjórn samþykkti þjónustusamninginn.

  1. Umsókn um launalaust leyfi

Lagt fram erindi frá Jelenu Kovacevic deildarstjóra á leikskólanum Álfasteini þar sem hún sækir um launalaust leyfi frá ágúst 2024 til maí 2025 vegna náms.

Sveitarstjórn samþykkti að veita leyfið í samræmi við 4. grein reglna um veitingu launalauss leyfi starfsmanna Hörgársveitar.

Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 10:35