Skipulagsnefnsd fundur nr. 126

01.10.2026 09:00

126. fundur skipulagsnefndar Hörgársveitar haldinn á skrifstofu Hörgársveitar, fimmtudaginn 1. október 2026 og hófst hann kl. 09:00.

Fundinn sátu:

Agnar Þór Magnússon, Árni Rúnar Örvarsson, Katrín Olsen Björnsdóttir, Kolbrún Lind Malmquist, Bjarki Freyr Brynjólfsson var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Ásta Hafberg, Arnar Ólafsson skipulags- og byggingarfulltrúi og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.

Fundargerð ritaði: Snorri Finnlaugsson, Sveitarstjóri.

Dagskrá:

1.

Lerkigerði L241757 - fyrirspurn um uppbyggingu - H2608021

 

Fyrir fundinum liggur erindi frá Landslagi ehf. f.h. lóðarhafa Lerkigerðis L241757 þar sem óskað er eftir afstöðu sveitarfélagsins til fyrirhugaðrar uppbyggingar á lóðinni. Áformað er að reisa óupphitaða skemmu, um 100-300 m² að stærð og með mænishæð um 6 m. Lóðin er 1,0 ha að stærð og er innan skógræktar- og landgræðslusvæðis SL1 samkvæmt gildandi aðalskipulagi Hörgársveitar.

 

Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu þar til formleg breyting á landnýtingu er varðar samning um skógrækt liggur fyrir. Bent er á að áformin eru ekki samkvæmt samþykktu Aðalskipulagi.

2.

Glæsibær - erindi um skilmála efnistökusvæðis E11 - H2609011

 

Fyrir fundinum liggur erindi GLB17, dags. 25. ágúst 2026, f.h. landeiganda Glæsibæjar, þar sem óskað er eftir að skilmálar efnistökusvæðis E11 í landi Glæsibæjar verði teknir til skoðunar og framkvæmdaleyfi vegna svæðisins endurskoðað.

 

Skipulagsnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að sérákvæði sem takmarka efnistöku á E11 við eigin not landeiganda eða framkvæmdir innan eigin lands verði fellt niður. Landeigandi þarf að sækja um breytingu er varðar nýtt Aðalskipulag Hörgársveitar 2024-2044.

3.

Blómsturvellir L175645 - fyrirspurn um niðursetningu smáhýsis - H2609012

 

Fyrir fundinum liggur fyrirspurn Sveins A. Reynissonar og Reynis Hjartarsonar, dags. 19. ágúst 2026, þar sem spurst er fyrir um afstöðu sveitarfélagsins til þess að smáhýsi verði sett niður á lóð í landi Blómsturvalla (L175645).

 

Skipulagsnefnd vísar erindinu frá enda liggur ekki fyrir skriflegt samþykki Akureyrarbæjar sem landeiganda fyrir staðsetningu hússins á lóðinni. Eins liggja ekki fyrir upplýsingar frá umsækjanda um stærð og notkun hússins og umsögn Minjastofnunar Íslands um áformin.

4.

Hagatún 10 og Hagatún 10B - deiliskipulagsbreyting vegna sameingu lóða - H2609002

 

Tekin fyrir tillaga frá landeiganda að breytingu á deiliskipulagi íbúðarbyggðar í landi Glæsibæjar vegna lóðanna Hagatúns 10 (L230884) og Hagatúns 10B (L235577). Tillagan gerir ráð fyrir að Hagatún 10b sameinist Hagatúni 10 þannig að hin sameinaða lóð verði 2620 fermetrar að stærð. Ekki eru gerðar breytingar á ytri merkjum hinnar sameinuðu lóðar. Samhliða stækkar byggingarreitur í 5 m til vesturs en ekki eru gerðar breytingar á byggingarskilmálum.

 

Skipulagsnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að breyting á deiliskipulagi íbúabyggðar í landi Glæsibæjar verði samþykkt, til samræmis við fyrirliggjandi erindi. Breytingin er óveruleg skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal grenndarkynnt. Komi ekki athugasemdir á grenndarkynningartímabilinu telst breytingin samþykkt.

5.

Lónsbakki - breyting á deiliskipulagi vegna íbúðargötunnar Skógarhlíðar - H2609015

 

Fyrir fundinum liggur tillaga að breytingu á deiliskipulagi íbúðarbyggðar á Lónsbakka, dags. 8. apríl 2026. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi á að lengja íbúðargötuna Skógarhlíð til norðurs að leikskólanum Álfasteini. Í tillögunni er gert ráð fyrir að sú framlenging verði víkjandi. Breytingin nær aðeins til skilmála og skipulagsuppdrættinum verður ekki breytt.

 

Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að áður en tillagan fái afgreiðslu verði unnið að framtíðarlausn er varðar aðkomu að Álfasteini sem haldist í hendur við uppbyggingu leikskólans og Lónsbakkahverfis.

6.

Lónsvegur 3 L239648 - umsóknir um lóð - H2609025

 

Lóðin Lónsvegur 3 var auglýst til umsóknar og bárust tvær umsóknir sem eru meðfylgjandi.

 

Skipulagsnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að rætt verði við báða umsækjendur. Gengið verði til samninga við annan aðilann í framhaldi af þeim viðræðum um úthlutun lóðarinnar.

7.

Mið-Samtún - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - H2609024

 

Lögð fram umsókn frá eigendum Mið-Samtúns lóð L217228 um stöðuleyfi fyrir 40 feta gám á lóðinni.

 

Skipulagsnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að ekki verði gerðar athugasemdir við veitingu stöðuleyfis til eins árs fyrir geymslugám á Mið-Samtúni lóð L217228 en bendir á að liggja þurfi fyrir samþykki eiganda Mið-Samtúns L152512 þar sem fyrirhuguð staðsetning er á lóðarmörkum. Jafnframt verði umsóknin grenndarkynnt

8.

Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2025-2037 - umsagnarbeiðni - H2506007

 

Erindi frá Eyjafjarðarsveit þar sem óskað er umsagnar um tillögu að Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2025-2037 en tillagan er í auglýsingu skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og er umsagnarfrestur til 7. október nk.

 

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að ekki verði gerðar athugasemdir við tillögu að Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2025-2037.

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:01